Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Side 10
M. Jensson
Afmæli Víkings
Það er ekki óþekkt fyrirbrigði hér á landi,
að blað eða tímarit hefur göngu sína einn góðan
veðurdag, með pomp og pragt og miklu veldi,
en hverfur svo jafn snögglega, eftir örfá ein-
tök, og er þegar gleymt. Það mun þess vegna
vera almennt álitið, að blað, sem komizt hefur
lifandi yfir fyrsta áratuginn, sé orðið fast í
sessi meðal kaupenda sinna og blaðlesenda.
Efnisval og tilhögun öll komin í fast form og
fjárhagurinn á fastan grundvöll.
Um rekstur Sjómannablaðsins Víkingur get
ég verið fáorður, af þeirri einföldu ástæðu að
ég er honum, að vonum, næsta ókunnur. Hins
vegar get ég getið mér til, að þar sé við ýmsa
erfiðleika að etja, á þessum síðustu og verstu
tímum viðskipta og verzlunar í landi okkar.
Ég hef bæði heyrt og lesið kvartanir blaðaút-
gefenda, yfir pappírsskorti, pappírsverði og
alls konar öðrum örðugleikum í sambandi við
útgáfustarfsemina, og býst ekki við, að útgef-
endur Víkings fari varhluta af því ástandi, sem
ríkir í þessum efnum, fremur en aðrir.
Hvað efnisvali í blaðið viðvíkur, má auðvitað
að ýmsu finna, þótt segja megi að yfirleitt hafi
þar tekizt til „vonum framar“. Aðalgallinn er
náttúrlega hinn gamli óvinur blaðamennskunn-
ar, vöntun á hugkvæmni, sem aftur leiðir af sér
fábreytnina. Lesendum hefur fundizt blaðið
stundum vera þurrt og jafnvel stirt. Mér hefur
á köflum fundizt það fá á sig of strangfræði-
legan blæ, ef svo mætti að orði komast. Með
öðrum orðum, verið of fátækt af fjöri, eða
skemmtiatriðum, sem eru þó að margra áliti
alveg nauðsynleg til almennra vinsælda. Vís-
indalegar fræðigreinar, tölur og línurit, eru að
vísu sjálfsagður þáttur í vönduðu stéttarblaði,
en því verður að fylgja léttara hjal eða efni
til upplífgunar. Sem sagt, mánaðarrit verður
að leggja mikla áherzlu á fjölbreytni í efnis-
vali, svo að tryggt sé að þar verði ávallt eitt-
hvað fyrir hvern lesanda. Það er til dæmis á-
vallt mikill fengur í að lesa greinar um nýjung-
ar í tækni og framfarir í einhverri sérgrein,
ef þær eru svo alþýðlega skrifaðar, að leikmenn
skilji og geti notið fróðleiksins. Annars er það
þeim dauður bókstafur og aðeins lesið af örfá-
um fagmönnum. Þetta er oftastnær hægt, enda
oft verið gert. Langri grein um faglegt efni
verður að dreifa í fleiri blöð. Annars verður
lesmálið lítið fyrir fjöldann, sem telur sig svik-
inn.
íslendingar hafa fengið orð fyrir að vera
þunglamalegir í smásagnagerð, dramatískir og
ádeilugjarnir, og má með nokkrum sanni segja,
að varla lesi maður íslenzka sögu, langa eða
stutta, án þess að í henni sé að finna ádeilu á
þjóðskipulag, eða því um líkt. Auðvitað meira
eða minna dulið. En við erum fátækir af léttri
og skemmtilegri gerð sagna, sem ekki krefjast
of mikils af lesandanum, en slíkt léttmeti er þó
víðast talið nauðsynlegt með, til dægradvalar,
í blöðum með stóran hóp lesenda.
Nú má enginn skilja mig svo, að Víkingur
sé ávallt þurr, stirður og leiðinlegur. Síður en
svo. Sum blöðin hafa verið ágæt, jafnvel á
evrópískan mælikvarða, en það eru ekki aðeins
sum, sem þannig eiga að vera, heldur öll. Á
eftir þessum ágætu blöðum hefur venjulega
komið lélegt blað, eða blöð. Alveg eins og út-
gefendur hafi þá ofreynt sig, eða tekið sér verð-
skuldaða hvíld. Dagblað getur leyft sér að vera
lélegt öðru hvoru, því þar er hægt að gera bót
næsta dag, áður en lesandinn er búinn að átta
sig. En mánaðarrit ekki. Þar hefur lesandinn
of langan tíma til að gagnrýna.
Það má nú ef til vill segja, að lesendur Vík-
ings eigi nokkra sök á því, að blaðið er stund-
um ekki nógu fjölbreytt, því það er áberandi,
hversu lítið blaðinu berst af efni úr þeirra hóp.
Þó er það vitað, að margir ,sj ómenn gætu sagt
frá ýmsu athyglisverðu, minnisstæðum eða
skemmtilegum atburðum úr sinni fjölbreyttu
ævi, bæði á sjó og landi, eða reynslu? sem gæti
komið öðrum að gagni. f blaðinu hafa nokkrar
slíkar frásagnir komið, sem hafa sannað, að á
meðal sjómanna eru til margir prýðilega rit-
færir menn, sem kunna listina að segja skemmti-
lega frá. Frá öðrum, sem vitað væri að lumuðu
á einhverju sögulegu, en ekki vildu rita það
niður, mætti kannske fá efni í viðtalsformi. En
15D
V I K I N G U R