Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Blaðsíða 14
Haldið úr höfn.
Hvað viðvíkur aukningu fiskiðnaðar eru mjög
góð skilyrði fyrir slíku í öllum stærstu sjávar-
þorpum landsins, þar sem mikið hefur verið
kostað til hafnarframkvæmda, eins og t. d. á
Patreksfirði, þar sem upp eru að rísa ein mynd-
arlegustu og markverðustu hafnarmannvirki á
öllu landinu. Á ísafirði er að myndast stór-
kostlegt athafnasvæði, vegna þeirra hafnar-
mannvirkja, sem þar er langt komið að ljúka
við, og undirbúningur hafinn, til þess að byggja
myndarlegt fiskiðjuver, auk þess sem ísafjörð-
ur er lífhöfn frá náttúrunnar hendi. Á Akur-
eyri er að myndast mikill og myndarlegur sjáv-
arútvegur fyrir tilkomu, togaraútgerðarinnar
þar. Á Norðfirði er nú þegar fyrir hendi mjög
myndarlegt og afkastamikið fiskiðjuver, auk
annarra fyrirtækja, sem bæði stórútgerð og
smáútgerð tilheyra. í Vestmannaeyjum eru á-
gæt skilyrði fyrir smáútgerð og togaraútgerð,
og þar eru miklir möguleikar til vinnslu fiskj-
ar, og hefur verið áformað að koma þar upp
fiskiðjuveri.
1 Faxaflóa eru ef til vill langmestir mögu-
leikar til skjótaukinna afkasta í fiskiðnaði,
eins og t. d. í Reykjavík, höfuðborginni sjálfri,
sem ekki nýtir afkastamöguleika sína nema lít-
inn hluta ársins, sbr. hið afkastamikla Fiskiðju-
ver ríkisins, sem ennþá hefur aldrei getað starf-
að nema að mjög takmörkuðu leyti.
Gegn svo stóraukinni skipaöflun, sem hér er
rætt um að framan, munu að sjálfsögðu rísa
margir spámenn og vitringar með sömu rökin
eins og fyrir lágu, þegar þau nýju skip, sem
nú gista hafnir okkar og færa föngin í búið,
voru í undirbúningi, að við höfum ekki nógan
mannskap á fleiri skip, að markaður sé ekki
fyrir svo mikil aflaafköst, að fiskurinn sé að
eyðast af miðunum, og að fjármagn sé ekki
fyrir hendi.
Slíkum mótbárum er auðvelt að svara með
einföldum staðreyndum. Samkvæmt skýrslu um
atvinnuskiptingu í Reykjavík, er gerð var 1947,
störfuðu þá hjá Reykjavíkurbæ og fyrirtækjum
hans 1611 karlmenn, starfsmenn ríkisins í
Reykjavík aðeins voru 1862 karlmenn, við iðnað
unnu, um 2700 karlmenn, við heildverzlun og
smáverzlun unnu 1678 karlmenn, við húsasmíði
og múrhúðun 1068 karlmenn, við bifreiða-
154
V í K I N G U R