Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Page 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Page 35
Hallfreður Guðmundsson Æskumennirnii* og sjómenn§kan Hinn 27. maí s.l. birtist í blaðinu „Skaginn“ á Akranesi grein eftir Hallfreð Guðmundsson, sem hann nefnir „Er þrá æskumanna til sjó- mennsku minni en áður var?“ Grein þessi er eink- ar athyglisverð, enda fjallar hún um mikilvægt mál, sem gefa verður meiri gaum hér eftir en hingað til. Víkingur tekur sér það bessaleyfi, að birta þessa grein Hallfreðs Guðmundssonar. Greinin er lítið eitt stytt. -— Ritstj. Fyrir ekki allöngu barst mér bréf frá vini mínum, þar sem hann leggur fyrir mig eftir- farandi spurningar, sem hann segist treysta mér til að svara á óhlutdrægan og sem réttastan hátt. 1. Hver er munur á unglingum nú eða áður var, af þeim, sem til starfa koma í þinni stétt ? 2. Telur þú, að unglingar sýni nú meiri ó- reglu og kæruleysi í starfi sínu en áður var? 3. Telur þú, að vankunnátta unglinga sé meiri nú en áður í þeim verkum, sem þeir ráða sig til? 4. Telur þú, að unglingar séu lélegri til vinnu nú en áður var? 5. Finnst þér, að hin uppvaxandi kynslóð verðskuldi yfirleitt þá mjög svo misjöfnu dóma, er hún fær nú til dags? Ég verð að segja þessum vini mínum það, að ég tel það ofmat á vitsmunum mínum hjá hon- um, að ætlast til þess, að þessum spurningum hans verði af mér gerð þau skil, er hann mun ætlast til. Enda þótt þetta sé eitt af þeim mál- um er ég vildi gjarnan vera þátttakandi í að skýra og ræða á opinberum vettvangi. Ég tel alveg útilokað að svara þessum spurn- ingum öðruvísi en að gefa um leið skýringu á þeim breyttu háttum er orðið hafa í íslenzku þjóðlífi á síðari árum, svo að fullkominn skiln- ingur komi fram á þessum málum, hjá þeim, sem telja þau þess virði að um þau sé hugsað. Fyrir 40—50 árum var sá háttur á, að ungl- ingar fóru til ,sjós eigi síðar en að aflokinni fermingu (sumir jafnvel fyrr). Það lætur að líkum, að vel flestir þessara hálfvöxnu unglinga, voru ekki fullgildir til þess- ara starfa, hvorki hvað dugnað né kunnáttu snertir. Að vísu var þetta æði misjafnt. Þeir unglingar, sem ólust upp við sjóinn, og fylgdust með starfinu og öllum tilfæringum því viðkom- andi frá barnæsku, stóðu heldur betur að vígi, hvað kunnáttu snertir, heldur en þeir, er voru að Hitler hefði hlaupið til fjalla, er hann fékk veður af hernáminu. Það var kallað skipulegt undanhald. — Svo liðu nokkrir dagar. Hrólfur gamli var á skektu sinni úti á firði. Þá rak hann augun í eitthvað á reki, marandi í vatnsskorpunni. Hann innbyrti rekaldið. Það var poki, vandlega bundið fyrir opið, dálítilli steinvölu tyllt við fyrirbandið. Hrólfur gamli tók upp vasakutann, brá hon- um, og afhjúpaði leyndardóm pokans. Þá kom í ljós — stór köttur. Hann var með svart höfuð, hvíta fætur og hvítan kvið. Eftir bakinu var svört rönd og úr henni teygðust svartir flekkir niður á síðurn- ar; — feldurinn minnti á landabréf af vog- V í K I N □ U R skorinni strönd með nokkrum sæbröttum eyjum. Rófan var svört með ofboðlitla ljósa týru í end- anum. Skolturinn var uppglenntur, eins og í stirnuðu glotti, þar blasti við skaddaður tann- garður. Hrólfur gamli öskraði nokkur kjarnyrði og damlaði í land. Þegar endalok Hitlers spurðust, þóttu það að vonum mikil tíðindi. Hrólfur gamli skóf ekkert utan af skoðunum sínum: „Einhvern tíma pokuðu þeir þýzkan biskups- djöful og drekktu í einhverri ársprænu. Það var hraustlega gert. En þeir, sem geta haft sig til þess að launmyrða þýzkan skipbrotshögna, það eru meiri helvítis óartarkvikindin". 175

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.