Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1951, Page 28
2/2. Inflúensa breiðist hægt út f
Reykjavík, en er yfirleitt væg. 184
inflúenzusjúklingar í síðustu viku. —
Bretar heiðra íslenzka björgunar-
menn. Gefa Slysavarnarfélaginu
einnig 10 fullkomin taltæki, og fer
hið fyrsta að Látrum. — Skipaút-
gerð ríkisins hefur gert óvirk 1858
tundurdufl.
•
3/2. Jón forseti lagður af stað
heim frá Grimsby. — Bæjarútgerðin
gerir 3,1 milij. króna björgunarlauna-
kröfu. — Tvö skip leituðu flugvélar-
flaksins í gærdag og slæddu á
Flekkuvík, en ekkert hefur fundizt.
Þeirra, sem fórust með Glitfaxa,
minnzt á Alþingi í gær. — Mikið
magn af saltfiski var flutt út í jan-
úar. Alls fluttar út í mánuðinum
7000—8000 lestir.
•
5/2. Aflabrögð Faxaflóabáta hafa
yfirleitt verið fremur léleg í vikunni
sem leið.
• •
6/2. Aðeins tveir bátar róa nú
frá Bíldudal. Hreppurinn ábyrgist
útgerð þeirra til að bæta úr hinu
bágborna atvinnuástandi. — Skip
Eimskipafélagsins hafa komið 70
sinnum á hafnir úti á landi frá ára-
mótum.
7/2. Rannsókn á Glitfaxaslysinu
hófst í gær. — I ráði mun vera að
síldveiðiskipið Fanney fari út í dag,
ef veður leyfir, til að Ieita að flaki
Glitfaxa. Hefur komið til tals, að
skipið hafi meðferðis rafsegul. —
Tundurdufl rekur á land á Seyðis-
firði. — Fiskverð hækkar í Reykja-
vik. — Langvarandi gæftaleysi á
Hornafirði. — Togarar gera tals-
verðan usla á miðum Grundarfjarð-
arbáta. — Almennt sjómannaverkfall
boðað í Eyjum. Búið að lögskrá á-
hafnir á um þrjátíu báta þar, sem
byrjaðir eru fiskiróðra. — V.s. Ægir
verður fyrir miklu tjóni við ásigl-
ingu í höfninni í nótt. Verður jafn-
vel frá björgunarstörfum í vetur.
Hekla og Magni löskuðust líka. Var
það Hallveig Fróðadóttir, sem rakst
á skipin, en hún var að fara á veið-
ar. — Mikill áhugi fyrir að fá einn
nýju togaranna til verstöðvanna við
Eyjafjörð. Líklegt að Dalvíkingar og
ólafsfirðingar leggi saman i togara
— ef íinnt verður að fá skipið.
•
8/2. Þýzkur togari strandaði og
sökk við Reykjanes í nótt. Mann-
bjö'rg varð, enda gott veður. — Held-
ur tregur afli Akranesbáta.
•
9/2. Poki úr Glitfaxa fannst í
gær. — lsfiskútflutningurinn s.I. ár
er fjórðungur þess, sem var 1949.
Freðfiskútflutningurinn helmingi
minni 1950 en 1949. — Síldaraflinn
varð 60 þús. lestir á síðasta árL —
Tveir skipsfarmar af heyi sendir frá
Akranesi til Austur- og Norðurlands-
ins. — Tólf bátar byrjaðir róðra úr
Hafnarfirði.
•
10/2. Togarar gerast ágengir við
Garðskaga. — Verkfallinu í Vest-
mannaeyjum lokið. — Togararnir
hafa selt fyrir rúml. 7,4 millj. kr.
síðustu daga. — Næturferðir togara
upp við land á Snæfellsnesi. Sjómenn
þar orðnir kvíðandi um framtíð sína
vegna vaxandi ágangs veiðiþjófa. —
Bandaríkin og Holland beztu við-
skiptalönd íslands 1950. Keyptu þau
íslenzkar afurðir fyrir 55 millj. kr.
hvort um sig.
•
12/2. Danskt skip strandar á Odd-
eyrartanga, en komst sjálfkrafa út
og mun ekkert hafa laskast.
•
14/2. Sambandsskipin fluttu 74.-
216 lestir af vörum á siðastliðnu
ári. Höfðu 18 sinnum viðkomu á Ak-
ureyri. — Akureyrarbátar taka fisk
í Hornafirði og munu sigla með hann
til Bretlands. — Verðmæti fyrir 4
millj. kr. með einu skipi til Banda-
ríkjanna. Dettifoss fer vestur með
freðfisk, aðallega hraðfrystan karfa.
•
15/2. Herðubreið tók niðri við
Arnarstapa í fyrrinótt, en komst síð-
an á flot af eigin rammleik. —
Slysavarnardeildin Ingólfui vill nýj-
an björgunarbát. — SlS fær nýtt
kæliskip í apríl, „Jökulfell". — Enn-
þá er mjög tregur afli á vetrarver-
tíðinni. — Vonast eftir höfn á Rifi
á næstu þrem árum. Hætta á að
fyrri framk^æmdir við höfnina- þar
spillist, verði ekki haldið áfram í
vor. — Varastöð Akureyrarbæjar
brann til ösku í gærkvöldi. Vélar
skemmdust og olíubirgðir brunnu,
en gæ?Iumaður komst naumlega úr
eldhafinu. — Fjórir bátar við róðra
í Þorlákshöfn.. — Skip SlS í förurn
til þrettán landa. Höfðu þau við-
komu í fjörutíu íslenzkum höfnum
og 32 erlendum síðastliðið ár.
•
16/2. Fisksjáin hefur enn komið
að litlum notum. En með aukinni
æfingu við að þekkja fiskinn ætti
hún að verða að miklu gagni. —
Iskyggilegt atvinnuleysi á Bildudal.
Meðaltekjur margra fjölskyldufeðra
kr. 68,00 til 98,00 á mánuði á hvern
fjölskyldumeðlim.
•
17./2. Útgerð með mesta móti f
Vestmannaeyjum í vetur. Fjöldi að-
komufólks í vertíðarvinnu. — Góð-
ur færafiskur út af Papey. — Ingólfs-
garðurinn í Reykjavík verður lengd-
ur til muna og ný bryggja byggð.
9—10 þús. bílförmum af grjóti ekið
árlega í uppfyllinguna við Granda-
garð.
•
20/2. Hefja togararnir brátt veið-
ar fyrir innanlandsmarkaðinn? Er-
lendis þrengist markaðurinn á ný. —
Vélbáturinn Björn Jörundsson frá
Ólafsvík sekkur. Fimm manna áhöfn
bjargað nauðulega. — Þungar horf-
ur á isfiskmarkaðnum brezka. Verð-
ið fallið, fiskur ónýtist vegna sölu-
tregðu, togarar komast ekki að. —
Góður afli á handfæri úti fyrir
Austfjörðum. — Norðfirðingar ráð-
gera fiskflutninga frá Hornafirði til
vinnslu heima.
112
V í K I N Q U R