Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Blaðsíða 13
skipstjóri á. Hann hefur því unnið öll sín störf á sjó, að undanteknu stuttu tímabili, er hann neyddist til að vera í landi vegna heilsubrests. Hvort tveggja var, að Rafn ólzt upp við segl- og vélknúin knör. Undirstaðan undir lífsstarfið var því hið ákjósanlegasta, auk þess, sem hann með starfi sínu á útlendum skipum, tileinkaði sér ágæta þekkingu í erlendum málum, þannig að fáir munu þeir íslenzku skipstjórar vera, ef nokkur, sem talar til dæmis enska tungu jafn reiprennandi og vandað sem Rafn, en það sam- fara snyrtimennsku, nákvæmni, áreiðanlegleik og höfðingsskap, hefur gert honum fært að kynna sig og þar með land og þjóð, svo ekki sé nefnt íslenzka farmenn á þann hátt, sem við megum vera stoltir af. En Rafn hefur alls stað- ar, sem hann hefur komið, sem nú er orðið nokk- uð víða, strax við fyrstu kynni vakið traust og virðingu allra þeirra, sem hann hefur einhver samskipti haft við. Þetta er auðvitað mikil og ~ góð landkynning, ekki sízt er um hefur verið að ræða mjög framandi þjóðir, sem ekki hafa haft önnur kynni af íslendingum en skiptin við Rafn, og væri vel, að við ættum margra slíka farmenn. Rafn er maður, sem fyrir löngu hefur tekið afstöðu til lífsins, en sú afstaða er byggð á stað- góðri lífsreynslu, sem aflast hefur á viðburða- ríkri ævi. Hef ég sérstaklega tekið eftir því í fari Rafns, hve lítið eða ekkert hann hefur þurft að hafa fyrir því að finna kjarna hvers máls. Stundum finnst manni í fyrstu, að Rafn hafi á röngu að standa, en venjulegast fer svo að lok- um, að það reynist einmitt hið gagnstæða. Rafn er orðvar maður, eins og flestir traust- ir menn, en í starfi eru fyrirskipanir hans skýr- ar og ákveðnar, sem og nauðsynlegt er. Róm- urinn er þá kannske ekki sérlega blíður o,rðin ekkert tæpitungutal, en þar liggur ekkert ann- að á bak við en það, sem í orðunum felst. Það vita þeir, sem þekkja hann vel, þótt fáir séu, því ekki fleiprar Rafn tilfinningum sínum hvers- dagslega. Það lætur að líkum, að Rafni er illa við allan slóðaskap og yfirborðsmennsku, endahafamarg- ir, sem hjá honum hafa byrjað sjómennsku eða verið undir hans handleiðslu, komizt til vegs og virðingar í sjómannastétt. Aðrir hafa haft gott af hans yfirstjórn á annan hátt, því Rafn hef- ur ætíð viljað þeim vel, sem hann hefur tekið á skip sitt, þótt einstaka unglingur hafi ekki borið gæfu til að skilja það. Siglingafróðir menn segja mér, að Rafn sé afburða „navigator". Nákvæmur og viss í þeim fræðum, en það, ásamt að öðru leyti öruggri skipstjórn, kemur sér vitanlega mjög vel, ekki sízt í hinum löngu siglingum um úthöfin við misjafnar aðstæður. Því stundum ber vanda að höndum á hafinu. Aðstæður geta breytzt á, svip- stundu og óvænt vandamál krefjast skjótrar og réttrar úrlausnar, annars getur verr farið. í dag siglir Rafn sínu eigin, glæsilega skipi, Kötlu, um heimshöfin, en að hann hafi komizt sofandi að slíkri aðstöðu, dettur víst engum í hug. Hitt mun frekar, að þessi árangur hefur kostað mikið erfiði og sjálfsafneitun, þótt hann einn viti gjörla, hvernig þessum árangri hefur verið náð, en þótt stundum gerist ævintýri og skjótur og fyrirhafnarlítill frami, hefur það sjaldnast átt við þá, sem gert hafa sjómennsku að lífsstarfi. Hafi Rafn einhvern tíma verið heppinn og lánssamur í lífinu, fram yfir það lán, sem hann hefur skapað sér sjálfur, tel ég að það hafi ver- ið, er hann valdi sér lífsförunaut. Árið 1929 giftist hann Ingveldi, dóttur hins nýlátna, lands- kunna athafnamanns Einars Einarssonar í Grindavík, ágætri dugnaðarkonu, sem hún og á ætt til. Þau hjón eiga tvö börn, Ólafíu, gifta Níels P. Sigurðssyni hdl., stjórnarráðsfulltrúa, og Sigurð, 10 ára. Á nýársdag 1951 var Rafn sæmdur Riddara- krossi Fálkaorðunnar, og tel ég að sá viður- kenningar- og virðingarvottur hafi í það sinn komið á réttan stað. Að lokum vil ég persónulega og fyrir hönd Sjómannablaðsins Víkings óska Rafni til ham- ingju með þennan áfanga á lífsleiðinni, fullviss þess, að hann getur með hugarró litið yfir far- inn veg. Veit ég, að þá mæli ég fyrir munn margra, er ég óska þess, að hann megi enn um langt skeið sigla skipi sínu um höfin, sjálfum sér, íslenzku þjóðinni og ekki sízt íslenzkum farmönnum til sóma — hér eftir, sem hingað til. Magnús Jensson Jtá kafi til katfnar í ferð sinni kringum hnöttinn 1772—1775 komst James Cook alla leið á 71,10 gr. suðlægrar breiddar. Með honum var þá ungur stýrimaður, George Vancouver, sem síðar varð heimsfrægur landkönnuður. Hann hafði það til gamans að segja, að hann hefði komizt næst Suðurpólnum af þálifandi mönnum, því þegar Cook var að snúa skipi sínu við vegna ísbreið- unnar, sem hindraði ferð þeirra, hljóp Vancouver fram á Bugspjótið og hrópaði: „Non plus ultra“. * * * — Þér særðust í stríðinu, hvar? — í Bosporus“. — Ó, það var hryllilegt. VÍKINGUR 177

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.