Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Blaðsíða 18
Eitt sinn komu gistihúseigendurnir í japönsku borg-
inni Ogaki saman á fund til þess að stofnsetja ferða-
mannaskrifstofu á staðnum, en eftir langar umræður
komu þeir sér saman um að hætta við þetta áform.
Ástæðan var sú, að þeim varð öllum ljóst, að borgin
hafði ekkert til þess að bjóða ferðamönnum!
* h= *
Á meðal hinna sérstaklega eftirtektarverðu, sem
höfðu náð því að verða 100 ára og þar yfir og létust
síðastliðið ár, má nefna Carl Gloeckner frá Frankfurt
í Vestur-Þýzkalandi. Hann varð 107 ára og einasti eftir-
lifandi af hermönnunum frá fransk-þýzka stríðinu 1870
—’71. Þá Jane Mitchell frá Belleville í Bandaríkjun-
um. Hún varð 106 ára og hafði aldrei séð kvikmynd.
Loks má nefna Robert Woodlridge frá Leeds í Eng-
landi. Hann varð 100 ára og hafði verið athafnasamur
innbrotsþjófur til 94 ára aldurs.
* * *
Sum dýr hafa sérstaklega þroskuð skilningarvit á
kostnað annarra. Þannig hafa fuglar yfirleitt mjög
sterka sjón, en lélega þefnæmi. Slöngur, sem hafa til-
tölulega slæma sjón og heyrn, eru afar bragðnæmar
með hinni löngu og klofnu tungu sinni. Þannig er það,
er hún liggur kyrr og bíður eftir bráð, þá sveiflar hún
tungunni til og frá í loftinu, en þefurinn frá dýrum
berast með vindinum og setzt á tunguna og finnur þá
slangan hvers konar skepna er í nágrenninu.
* * *
Víða í Danmörku er sterk hreyfing til að gæta hrein-
lætis á almannafæri, og er eftirfarandi sagt í því sam-
bandi: Ökuþór frá Kaupmannahöfn stöðvaði vagn sinn
á götu í Vejle. Kveikti sér í sigarettu og fleygði tómum
pakkanum á götuna. Kona nokkur, sem fram hjá gekk,
tók öskjuna upp af götunni, rétti að ökuþórnum og
sagði:
— Viljið þér ekki pakkann yðar?
— Nei, þökk, svaraði ökuþórinn.
— Það vill Vejle ekki heldur, sagði konan og fleygði
pakkanum inn í vagninn.
* * *
Stjórnmálasérfræðingur er sá maður, sem getur sagt
okkur í dag hvað skeður á morgun, síðan skýrt fyrir
okkur hinn daginn, vegna hvers það skeði ekki dag-
inn áður.
* * *
Hinn frægi stjörnufræðingur Palomar, sagði eitt
sinn, eftir að hafa horft rannsakandi út í himingeym-
inn, gegnum hinn stóra sjónauka:
— Nú breytir um veðurfar á morgun.
Einn af hinum ungu lærisveinum hans spurði undr-
andi:
— Hvernig getið þér vitað slíkt með vissu?
— Það skal ég segja yður, ungi vinur. Gigtin í vinstri
fótlegg mínum lýgur aldrei.
* * *
Ef þú ert einn af þeim, sem finnst lífið hafi leikið
þig illa, og lítið lánsamur verið, þá skaltu hugsa til
aumingja Jack gamla frá Texas. Hann var allt sitt líf
að grafa fyrir olíu, sem hann aldrei fann. Loks dó
hann beygður og bláfátækur. Skyldmenni hans auruðu
saman fyrir ómerkilegum grafreit, en þegar grafar-
/I FRÍVI
- VíÍM
arnir stungu fyrstu skófluna, gaus olía upp og var
straumurinn nærri búinn að skola kistugarminum með
sér.
* * *
Hinn fljótandi þjónn.
I baðhöll Henry Hudson gistihússins í New York var
nýlega kynnt nýtt, enskt fataefni, sem sagt er að úti-
loki að þeir geti drukknað, sem eru í fötum úr þessu
efni, en í þetta sinn er ekki um nylon eða önnur gerfi-
efni að ræða, heldur hreina, venjulega baðmull, sem
ofin er næstum tvisvar sinnum þéttar en venjulegt er,
með þeim árangri, að hún heldur loftinu, en vatn kemst
ekki í gegn. Framleiðsla þessa efnis er nú auðvitað
hafin í stórum stíl, en það er ætlað í baðföt, sérstak-
lega fyrir börn.
* * *
Flugmaðurinn Scott Crossfield náði fyrir nokkru
2207 kílómetra hraða á klukkustund, eða um helmingi
meiri hraða en hljóðið. Við flug þetta notaði hann sér-
staka gerð af „Jet“-flugvél. Er hann lenti var hann
spurður, hvernig honum hafi liðið, en svaraði var:
— Alveg eins og að fá kvínandi magapínu og slæma
inflúenzu samtímis.
H= H= *
Nýlega tilkynnti japanska símaþjónustan, að nú yrði
farið að afgreiða eldri pantanir á síma. Sú elzta var
frá árinu 1906.
* * *
Það er einkennilegt með þessar kvikmyndastjörnur.
Fyrst gera þær allt til þess að verða þekktar, en síðan
allt til þess að dyljast fyrir almenningi. Trúlega er hér
átt við Gretu Garbo.
* * *
Samkvæmt nýju ákvæði hollenzku herstjórnarinnar,
er yfirmönnum í hernum ekki lengur heimilt að hegna
hinum óbreyttu hermönnum, með því að láta þá skrifa
þúsund sinum: „Ég má ekki vera slæmur dáti“.
1Q2
VIKINGUR