Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Blaðsíða 20
BERGMÁLSMÆLINGAR — Framh. af bls. 181. Og svo er það loks deyfitxki, sem notuð eru við tún- fiskveiðar. Þegar fiskurinn hefur bitið á krókinn, er rafstraumur sendur eftir línunni í fiskinn. Deyfist hann þá og liggur kyrr, sem dauður væri, í um 15 mín- útur, en sá tími á að vera fiskimanninum nægi- legur til þess að draga hann að skipinu, innbyrða og drepa. Margt er enn ótalið af framleiðslu Elactroacustic í Kiel, eftir því, sem hinn þýzki sérfræðingur segir, en ekki verður rakið hér. Þó skal þess getið, að meðal þeirra hljóðflutn- ingatækjum (accustik), sem komið hefur á mark- aðinn, eru þokulúðrar fyr- ir landstöðvar, sem beina hljóðmerkjunum í vissar stefnur, svipað og ljós- vitar, en það hefur komið sigiingum að miklu gagni. Svo kveðjum við gestinn og þökkum allan fróðleikinn. * * * En eins að líkum lætur eru það fleiri, sem hafa náð árangri í þessari grein tæknivísinda, meðal annarra Bandaríkin, þar sem er: Hafsjáin. Á Hafsjánni eru tvær sjár. Sýnir önnur eins konar kort af sjónum fram undan skipinu, á sama hátt og radartæki sýnir kort af yfirborðinu í kringum skipið. Hin sjáin er til þess að sjá betur bergmálið frá því, sem sést, en reyndur maður getur ráðið af gerð berg- málsins í sjánni, hvort það muni vera fiskur, klettur eða annað. Auk þessara tveggja sjáa er svo hátalari í tækinu og heyrast bergmálin einnig í honum. Þetta er afar þægilegt, því vegna þess þarf ekki að stara stöðugt í sjárnar, heldur heyrist í tækinu hvenær eitthvað mark- vert kemur í færi. Hljóðin í tækinu eru og mismunandi, eftir því hvað það er, sem þeim veldur og má með æf- ingu segja til um það. Að sjálfsögðu er hægt að láta tækið sýna botninn beint undir skipinu, og gerir það þá sama gagn og dýptarmælir. Hafsjáin sýnir jafnt einstaka fiska sem fiskitorfur og hvali. Bæði hljóðið og myndin á sjánum er mismun- andi eftir því, hvers konar fiskur er á ferðinni. Haf- sjána má nota í hvaða skipi sem er. Hún er gerð fyrir 24 volta, 32 volta og 110 volta jafnstraum. Þægileg í meðförum, eða aðeins 100 kg. á þyngd. Þessi nýja gerð af fisksjá er nú nýskeð komin á markaðinn þar í landi. Með aðstoð hennar fékk til dæm- is túnfiskbáturinn Sun Ray frá Kaliforníu metafla, um 200 smálestir af túnfiski á aðeins sex vikum, en slíkt þykir í frásögur færandi, því verðmæti aflans varð um 70.000 dollarar, eða hvorki meiri né minni en íslenzkar kr. 1.142.400,00. Það er fyrirtækið Minnieapolis-Honeywell, sem hafið hefur f jöldaframleiðslu á þessu tæki og gefið því nafnið „Hafsjá“ — Sea Scanar. Tæki þetta, eða Hafsjá, vinn- ur að nokkru leyti eins og radar. Það sýnir mynd af sjónum í kringum skipið, á sama hátt og radartækið sýnir í sinni sjá það, sem ofansjávar er. Þó notar Haf- sjáin ekki útvarpsbylgjur eins og radarinn, heldur hljóð- bylgjur með mjög hárri tíðni. Að þessu leyti er Hafsjáin skyld dýptarmælinum, en hefur þann ágæta kost, að sýna ekki aðeins beint niður fyrir skipið, heldur er hægt að beina henni á ská fram undan skipinu í hvaða stefnu, sem vera skal. Auk þess er tæki þetta þannig útbúið, að hljóðgeislinn sveiflast sjálfkrafa úr einni stefnu í aðra. Byrjar t. d. á stjórnborða, stefnir svo fram. Síð- an á bakborða og loks sömu leið til baka. Hægt er að stilla hve stóran geira tækið skoðar á þennan hátt. Ef vill, má stöðva það í hvaða stöðu sem er og skoða ein- göngu í þá stefnu. Smcelki Ai-abar í Túnis hafa viðhaldið þeim ævagamla sið, að ríða á undan á asnanum sínum, ef um flutninga hef- ur verið að ræða. Konur þeirra komu svo á eftir klyfj- aðar búsáhöldum og skrani. En eftir árið 1942 hefur röðinni verið snúið við, og valda því jarðsprengjur, sem geta valdið vegfarendum fjörtjóni. H* 'fc Stjórnmálamaður var í ræðu að tala um þjóðarfleyið: — Öldurnar æða yfir skipið, seglin rifin, stýrið brotið og skipið rekur beint upp að grýttri brimströnd. Sjómaður, sem hlýtt hafði á ræðumann, óð fram og opti: — Láttu helv... akkerið falla, maður, og það án tafar. * * * — Ó, ég þykist sjá, að þú hafir spurt pabba. — Nei, ég lenti í umferðaslysi. * * * Sjómaður kom heim, er hann hafði verið 18 mánuði í siglingum. Hann hlakkaði auðvitað afskaplega til að hitta sína elskulegu konu, en brá heldur en ekki í brún, þegar hann sá hana vera að hagræða tvíburum í vöggu í svefnherberginu. — Hvaða börn eru þetta? spurði hann. — Þessi börn á ég, svaraði konan. — Hvenær fæddust þau? — Núna í vikunni. — Og þú getur sagt þetta við mig án þess að blikna, dækjan þín, öskraði sjómaðurinn í bræði og óð framan að konunni með reiddan hnefann. Allt í einu nam hann staðar, greip um höfuð sér og fór að hugsa. — Æi-já, þau eru tvö, sagði hann. — Ég áttaði mig ekki á þessu strax. Eftir dálitla eftirgangsmuni fyrirgaf hún honum. * * * Prófessor nokkur kom til þess að heimsækja sjúkan vin sinn. — Hann er nýskilinn við, sagði sá, sem kom til dyra. — Nú, jæja, sagði prófessorinn. — Segið honum, að ég hafi spurt eftir honum. Það hefur víst verið sami prófessorinn, sem skellti konunni sinni og kyssti hurðina. 4. mynd. 1B4 VIKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.