Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Síða 24
Þegar staðið er upp
Eins og svo oft áður áttu ýmsar stéttir lands-
ins í samningum um kaup og kjör við vinnu-
veitendur sína síðastliðið vor. Meðal þeirra, sem
nýja samninga gerðu að þessu sinni, voru hinir
svokölluðu farmenn, en sú deila leystist með
samningum yfirmanna á kaupskipaflotanum
við skipafélögin seinnihluta júnímánaðar.
Hér skulu engir þeir samningar, sem gjörðir
voru, raktir og heldur ekki deiluatriðin, því allt
það þekkja þeir nú gjörla, sem við eiga að búa.
Heldur skal nokkuð sagt frá hvernig samning-
ar launþega við vinnuveitendur verða yfirleitt
til, þeim til nokkurs fróðleiks, sem ekki vita
hvernig slíkt skeður nú á dögum í okkar frjálsa
lýðræðislandi. Því þótt tugþúsundir manna eigi
að búa við náð samkomulag, eru það þó aðeins
örfáir menn, sem samið hafa í umboði fjöldans.
Byrjun slíkra deilumála er ætíð sú, að félag
eða stéttarsamband samþykkir með löglegum
atkvæðamun að segja upp gildandi samningum
við vinnuveitendur sína, annað hvojt vegna
þess, að einhver atriði hans þurfa lagfæringar
við, eða hins, að stéttinni finnst hún eiga kröfu
á bættum kjörum, einhverra hluta vegna.
Stjórn viðkomandi félags er þá falið að segja
gildandi samningum upp og koma kröfunum á
framfæri við rétta aðila. Slíkt er svo gert skrif-
lega og svarið ætíð neikvætt. Félagið hefur því
kosið menn í samninganefnd, sem ásamt stjórn-
inni eiga að mæta til viðræðna um málið, en þá
hefur verið ákveðið að boða til verkfalls, ef samn-
ingar nást ekki. Oftast er það stjórn félagsins,
ásamt fáum trúnaðarmönnum, sem verða að
bera þunga og hita dagsins í málinu, en þar
kemur margt til greina, meðal annars, að menn
eru ekki tiltækilegir vegna starfa tíl slíkra
verka, eða þá að kæruleysi og ábyrgðarleysi er
um að kenna.
Eftir að samninganefnd stéttarfélagsins hef-
ur borizt neitun vinnuveitenda um breytt kjör,
verður hún að bíða átekta, eða þar til mótaðlin-
um þóknazt að boða þá á viðræðufund, sem oft
dregst þar til í óefni er komið, eða samnings-
frestur er liðinn og verkfall yfirvofandi. En er
slíkt skeður, koma deiluaðilar saman á sinn
fyrsta fund, sem alls ekki er ætlazt til að beri
annan árangur en þann, að samkomulag náist
um að leita aðstoðar sáttasemjara ríkisins, sem
nú er Torfi Hjartarson, tollstjóri. Þessi fyrsti
fundur aðila fer í að skiptast á um rök og mót-
rök fyrir breyttum samningum. Hann er því
venjulega mjög stuttur og eins og áður er sagt
ber engan árangur, nema kannske þann, að aðil-
ar kynnast lítillega, hafi um ókunnugleika verið
að ræða, og vita hverjum þeir eiga að mæta,
þegar til kastanna kemur. En nú er málið kom-
ið á annað stig og kemst venjulega skriður á
það.
Nú hefjast fundir undir stjórn sáttasemjara,
sem einn ræður hvenær þeir skuli haldnir og
hve lengi þeir standa að hverju sinni. Aðilar
eru nú oftast aðskildir, þannig að þeir sitja
hvor í sínu herbergi, en er svo hleypt saman,
þegar sáttasemjara finnst það rétt, eða þegar
annar hvor vill koma með skýringar á orðsend-
ingu eða tilboði, sem farið hefur á milli. Fund-
ir þessir eru oft haldnir í Alþingishúsinu á
fyrstu hæð, vegna þess að þar er nægilegt rúm,
ef um margmenni, sem oft er að ræða. Deilu-
aðilum eru þá fengin til umráða fundarherbergi
hinna ýmsu stjórnmálaflokka, en andrúmsloftið
er ætíð hreint í þessum fundarsölum, því engar
stjórnmálaumræður fara þarna fram.
Brátt mjókkar hið breiða bil og samkomulag
næst um ýmiss smáatriði, er ekki hafa mikla
þýðingu, en er þó nauðsynlegt að séu tilgreind
í samningum, en svo er komið að aðalatriðum
og þá fer að ganga hægar og hríðin að harðna
og svo loks virðist allt komið í strand.
Menn reikna og rökræða. Slá af og halda í.
Einstakri kröfu er fórnað af illri nauðsyn fyrir
aðra, sem ætla má að frekar samkomulag náist
um. Sáttasemjari kemur með ýmsar athuga-
semdir og leiðbeiningar eða aðfinnslur, gengur
á milli herbergjanna og túlkar sjónarmiðin. —
Liggi svo eitthvað atriði ekki ljóst fyrir, setjast
allir aftur að sama borði og ræða þar til rökin
eru þrotin í það sinn, en þá er skilið aftur og
ný rök og skýringar sendar á milli.
Þegar líður að þeim tíma, er verkfall á að
IBB
VIKINGUR