Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Page 25
hefjast, harðnar sáttasemjari að mun og nú er engin miskun. Fundurinn, sem allir aðilar vita að verður að vera lokafundur, byrjar, en endar ekki fyrr en samningar hafa verið gerðir, eða að samkomulag telst alveg útilokað í það sinn og verkfall kemur til framkvæmda. Venjulega hafa fundarmenn fullt umboð til þess að skrifa undir það samkomulag, sem náðst hefur, ann- ars skrifa þeir undir með þeim fyrirvara, að umbjóðendur þeirra samþykki, eða þá að þeir vilja ekki taka einir á sig ábyrgðina. Allir aðilar, og ekki sízt sáttasemjari, vilja með öllum ráðum forðast að til verkfalls komi, þess vegna er oft gefið eftir og slegið af í aðal- atriðum á þessum síðasta fundi. Málin eru rædd með meiri hita en áður og stundum jafnvel rif- izt. Einstakir nefndarmenn missa stjórn á skapsmunum sínum og kasta fram svívirðing- um, en þó er slíkt mjög sjaldgæft og slíkir menn eiga auðvitað ekki heima á þessum samkund- um. Eftir að samkomulagsumleitanir hafa stað- ið í marga daga, fer maður að kynnast lyndis- einkennum einstakra fundarmanna. Sumir eru hægir og ætíð rólegir. Margir eru rökfastir og stundum sanngjarnir, ef ekki ber mikið á milli. Aðrir merkilegir og hortugir og langar til að láta á sér bera o. s. frv. Svo eru hinir, sem ætíð þegja, nema þegar þeir hafa eitthvað fram að færa, sem leitt getur til skilnings og þannig samkomulags. Geta má nærri, að margt er sagt á þessum fundum, sem stundum geta staðið hátt á annan sólarhring í strikklotu, aðeins með smá hléum til kaffidrykkju eða annarrar hressingar. Um svefn er ekki að ræða fyrr en samkomulag hef- ur tekizt eða tilraunir augljóslega farið út um þúfur. Menn gerast syfjaðir, þreyttir og leiðir. Segja ýmislegt, sem betur hefði ósagt verið, bæði í sinn hóp eða út á við, — en svo er þessu öllu lokið í það skiptið. Og svo þegar staðið er upp, eru allir sáttir, eða eiga að vera það. Samningsatriðin, sem samkomulag hefur náðzt um, eru nú kannske óþekkjanleg borið saman við upprunalega mynd, og sum, jafnvel þau mikilsverðustu, verður ekki með vissu vitað hvernig reynast í framkvæmd við hinar ýmsu aðstæður, sem myndazt í hinu daglega lífi manna. Vinnuveitendur, sem mætt hafa kannske mannsterkir með lögfræðinga til aðstoðar, geta nú rólegir lagt eyrað á koddann eftir óneitan- lega erfitt og leiðinlegt starf, en fulltrúar stétt- arfélaganna eiga enn ýmislegt eftir, meðal ann- ars að verja gerðir sínar fyrir hinum óánægða hluta umbjóðenda sinna. Skýra ýmis samnings- atriði og samkomulag um þau og loks fullvissa SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND fSLANDS. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Magnús Jensson. Ritnefnd: Július Kr. ólafsson, Henry Hálídanarson, Halldór Jónsson, Sveinn Þcrsteinsson, Birgir Thoroddsen, Theódór Gíslason. — Blaðið kem- ur út elnu sinni í mánuði, og kostar árgangurinn 50 krónur. Rltstjórn og afgrelösla er í Fiskhöllinni, Reykjavik. Utanáskriít: „Vikingurpósthólf 1,25, — Reykjavík. Simi 5653. Ritstjórinn er til vlðtals á skrifstofu blaðsins, I Fiskhölllnni, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 9—10 f.h. Laugardaga kl. 1—1 e.h. Auk þess venjulega í heimasima hans 9177, eftir kl. 8 á kvöldin. Að öðru leyti eftir samkomulagi. Prentað í ísafoldarprentsmiöju h.f. þá um, að ekki hafi náðzt meira í það sinnið, eða réttara sagt, að þeir hafi ekki getað betur. Svo róast hugir. Vinnufriður er tryggður, að minnsta kosti í bili, eða þar til sagan endurtekur sig. Hlutverk sáttasemjara í slíkum deilum verð- ur varla sagt öfundsvert. Mikil ábyrgð hvílir á þessum manni, sem sennilega veit ekkert verra en ósigur, þ. e. mistakast að brúa bilið áður en til verkfalls kemur. Hann þarf líka að vera mörgum góðum kostum búinn. Greind, skap- stillu, glöggskyggni, sanngirni og festu, svo nokkuð sé nefnt. Han verður auðvitað að vera hlutlaus, en benda þó á og víta rangann og ósanngjarnan málflutning eða skakkan útreikn- ing. Þegar mikið liggur við skipar ríkisstjórnin honum til aðstoðar einn eða tvo menn, en samt hlýtur hann þó ætíð að bera hita og þunga dags- ins, vegna þess, að hann þekkir allt gjörla frá byrjun deilunnar og er vanur að umgangast stríðsmennina. Vinnudeilur og verkföll eru eitt af fyrirbrigð- um hins lýðfrjálsa skipulags, sem við viljum ekki án vera og metum sennilega aldrei eins óg skyldi. Þess vegna verðum við að taka slíkum vandræðum með þolinmæði, en reyna þó að koma í veg fyrir að slíkt valdi miklum truflunum og skaða í þjóðlífinu. M. J. Jtá kafi tií katfhar Nýlega hefur Bremen Vulkan í Bremen lokið við smiði á 10.000 tonna vöru- og farþegaskipinu „Schwa- benstein". Skipið tekur 87 farþega og er útbúið öllum þægindum, þ. á. m. sundlaug, sóldekki o. s. frv. Skipið er gert út af HAPAG-Loyds félaginu og gengur á jap- anskar og kínverskar hafnir með viðkomu á ýmsum stöðum í Asíu og Evrópu, þ. á. m. Antwerpen og Southmapton, en það er sama rúta og stórskipin þýzku, Gneisenau, Scharnhorst og Postdam, höfðu fyrir stríð. VIKINGUR 1B9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.