Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1954, Side 26
14/5. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu
þrjá mánuði ársins varð óhagstæð-
ur um 26,5 millj. kr. Á sama tíma
í fyrra varð hann óhagstæður um
74,2 millj. kr. — Slysavarnardeild-
in Hraunprýði í Hafnarfirði safnaði
31 þús. kr. á lokadaginn, og er það
hærri upphæð en nokkru sinni fyrr.
Formaður deildarinnar er frú Rann-
veig Vigfúsdóttir. — Undirritaður
hefur verið smíðasamningur um hið
nýja farþega- og flutningaskip milli
Reykjavíkur og Borgarness, og verð-
ur skipið fullbúið í júlí næsta ár.
Gísli Jónsson alþm. undirritaði
samninginn og skipa- og vélaeftir-
lit hans, og Erlingur Þorkelsson
mun hafa eftirlit með byggingunni.
Skipið verður 135 feta langt, 26 fet
á breidd og getur flutt 250 farþega.
Vörugeymsla 80 tonn og farangurs-
geymsla fyrir 15 tonn. Verð skips-
ins er áætlað 2,4 millj. d. kr. H. C.
Christensen Stalskibsværft byggir
skipið.
•
15/5. Hrefnuveiðar eru hafnar frá
Húsavik, og er það fimmta árið í
röð. Hafa veiðar þessar gengið vel.
Hrefnukjötið er selt á innanlands-
markað og er eftirspurn mikil. —
— Reykvíkingar fjölmenna til Grinda
víkur til þess að horfa á kvikmynd-
un Sölku Völku, sem nú stendur þar
yfir. — Blöðruselsveiði frá Ólafs-
firði gengur óvenjuilla í ár. Lítið er
um sel og hann mjög styggur.
•
17/5. Sviplegt slys i Vestmanna-
eyjum. Níu ára telpa, Halldóra Gísla-
dóttir, féll fram af 30 m háum hamri
og beið bana. — Carlsen ræður nið-
urlögum minks í varplandi Æðeyjar
í ísafjarðardjúpi.
•
19/5. Flugfélag íslands flutti í
siðastliðnum mánuði nær 3000 far-
þega. Er það 37% aukning frá því
í sama mánuði í fyrra. Vöruflutn-
ingar þrefölduðust á sama tímabili.
— Ágætis handfæraafli á Reyðar-
firði og stunda bændur róðra, en afl-
inn er frá 1 til 4 skp.
•
20/5. Vertíðaraflinn nam nær 95
þús. smál. og er um 20 þús. smál.
meiri en í fyrra. — Stofnað verk-
samband rafvirkja, í þeim tilgangi
að koma á víðtækari þjónustu og
fyrirgreiðslu um vinnu. Einnig unn-
ið að því að veita gjaldfrest með
samningum.
26/5. Vélbáturinn Sveinn Guð-
mundsson er hættur reknetjaveiðum.
Hafði aflað 240 tonn á 5 dögum. —
Rússar hafna kaupum á Hæring, en
fulltrúi þeirra var hér í Reykjavík
að athuga skipið. — Bæjarstjórn
Keflavíkur samþykkir að mælast til
þess að ríkissjóður greiði kostnað
við loftvarnir í Keflavík.
•
30/5. Guðmundur Óli Guðjónsson,
ungur maður, beið bana, er hann var
í bjargsigi við eggjatöku í Horn-
bjargi. Féll á hann skriða úr bjarg-
inu. — Sainningar hafa tekizt inilli
flestra þeirra verkalýðsfélaga, sem
sagt höfðu upp samningum, og at-
vinnurekenda. Yfirleitt var samið til
þriggja mánaða. — Fyrsta farþega-
flugvélin lendir á hinum nýja flug-
velli í Grímsey. — Afli Keflavíkur-
báta á vertiðinni var um 20 þúsund
lestir.
•
1/6. Tryllur og smærri vélbátar í
Neskaupstað byrjaðir róðra. Afli er
að glæðast. Bátaútgerð á staðnum
fer vaxandi. — Heildarsala KEA á
innlendum og erlendum vörum 133
millj. kr. á síðastliðnu ári. 5% endur-
greiðsla til félagsmanna. — Varð-
skipið Þór tók brezka togarann
„Tervani“ að veiðum í Þistilfirði.
Torgarinn reyndi að komast undan
varðskipinu, en árangurslaust. —
Dr. Richard Beck og frú eru komin
til Reykjavíkur, og verða fulltrúar á
lýðveldishátíðinni.
•
2/6. Hafsíld er komin beggja meg-
in Langaness og Rauðártangana.
Góður þorskafli á handfæri. Slátt-
ur hafinn í Eyjafirði og Skagafirði,
en það er um mánuði fyrr en verið
liefur undanfarin ár.
•
7/6. Hörmulegt slys í Eyjafirði,
þrjú börn brunnu inni og tvær konur
hlutu mikil brunasár. Foreldrar barn-
anna voru þau Sigtryggur Svein-
björnsson og Helga Jóhannesdóttir
að Sandhólum.
•
9/6. 14 ára gamall piltur beið
bana í Sundlaugunum. Mun snögg-
leg hjartabilun hafa verið banaor-
sökin. — Togarinn Geir fer á veiðar
með 30 tonn af svonefndum „ný-
ís“, eða foromycen-ís, sem er ís
blandaður foromycen og er bakteríu-
drepandi. Er efni þessu blandað í
ísinn og heldur fiskinum lengur ó-
skemmdum en venjulegur ís. — Far-
mannaverkfall skall á í Reykjavík
og Hafnarfirði hjá hásetum. — Hval-
veiðarnar hafa gengið treglega í vor.
Fjögur skip eru að veiðum og hafa
þau fengið 28 hvali til þessa. Aðal-
lega eru það dimmviðrin að undan-
förnu, sem hamlað hafa veiðum. —
Humarveiði hafin í Höfnum á fjór-
um bátum. Veiðin treg enn sem
•
13/6. Sjómannadagurinn i Reykja-
vík haldinn í fyrsta skipti við bygg-
komið er.
ingu Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna. Þátttaka var geysimikil.
•
16/6. Mokafli á karfaveiðum út af
Faxaflóa. Togarar liafa fyllt sig á
nokkrum dö^um. — Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna og SÍS hafa frá
síðastliðnum áramótum tekið á móti
23.343 tonnum af fiski, en til saman-
burðar má geta þess, að alls síðast-
liðið ár nam heildarmagnið ca. 22
þús. tonnum. Söluhorfur eru sagð-
ar mjög góðar og miklu betri en í
fyrra. — Uppgripaafli hefur verið
undanfarið í ýmsum verstöðvum
norðanlands. Mest hefur veiðzt á
Húsavík, Ólafsfirði, Hauganesi og
Árskógsströndinni. — Togarinn Geir
kominn úr fyrstu reynsluför sinni
með afla í foromycen-ís og virðist
geymslan liafa tekizt vel í ísnum.
19D
VIKINGUR