Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 9
HÓLMABORGAR-SLYSIÐ Hinn 30. janúar síðastliðinn lagði m.b. Hólma- borg, Eskifirði, 'af stað frá Neskaupstað og var ferðinni heitið til Peterhead á Skotlandi, en þar átti að setja nýja vél í skipið. 2. febrúar heyrði togarinn Austfirðingur í talstöð Hólmaborgar, sem þá var að kalla í loft- skeytastöðina í Þórshöfn í Færeyjum. Þetta er Jens P. Jensen, skipstjóri. það síðasta, sem til Hólmaborgar hefur spurzt. Eftir því, sem síðar fréttist hafði loftskeytastöð- in í Þórshöfn ekki heyrt í skipinu. 8. febrúar var leit hafin. Tóku þátt í leitinni: togararnir Austfirðingur og Goðanes, tvö skip frá landhelgisgæzlunni, og tvö veðurathuguna- skip. Flugvélar frá landhelgisgæzlunni, Kefla- víkurflugvelli og brezkar flugvélar tóku mikinn og góðan þátt í þessari leit. Þá lögðu íslenzkar farþegaflugvélar, er fóru á milli landa, lykkju á leið sína til að huga að skipinu. Skipulögð leit stóð í átta daga, en þó var talsvert leitað eftir það. Mun leitin að Hólmaborg vera ein- hver sú víðtækasta, sem gerð hefur verið til að leita að íslenzku skipi. Leitin bar ekki árangur, þrátt fyrir að góð leitarskilyrði voru flesta dag- ana, sem leitað var. Aðstandendur þeirra, sem á Hólmaborg voru, hafa beðið að koma á framfæri þökk til Slysa- varnafélags Islands fyrir ágæta forgöngu um leitina og til allra þeirra, er þátt tóku í henni. Hólmaborg var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 og var 92 smálestir að stærð. Eigandi var Hólmaborg h.f., Eskifirði. Fyrir skömmu varð breyting á hlutaeign í félaginu þannig, að nú var skipstjórinn, Jens Jensen, aðaleigandi og Sigurður Jónsson, háseti. Herbert Þórðarson, stýrimaður. Vilhelm Pétur Jensen, vélstjóri. VÍKINGUR 65

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.