Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Síða 16
Illhveli. Illhveli eru önnur undirdeild hvalfiskanna. Sjómenn óttast þam mjög, þegar þau nálgast strendurnar. Það er fullyrt, að sum þeirra séu svo gráðug, að þau taki heila báta með mönnum og öllum veiðarfærum, moli bátinn með kjaftinum og gleypi mennina. Sagt er, að þeir séu mjög sólgnir í mannakjöt og þar, sem þeir einu sinni hafa fengið það, halda þeir sig í heilt ár eða lengur í von um meira. Sjómenn varast því að sækja þau mið fyrr en löngu seinna, þegar þeir verða þar ekki lengur varir nokkurra illfiska. Ýmsar teg- undir þessara illhvela eru í sjónum og margt af þeim. Forn lög og einkum þó kirkjulögin, banna að neyta þeirra. í lögunum evu tvær tegundir nafngreindar, sem iandsbúar hafa sagnir af, rauðlcembingur, sem mikill vafi leikur á um, og náhveli. Það er alkunnugt undir nafninu Monodon eða Unicornu marinum. Sumir höf- undar nefna hann narhval, sem er afbökun úr ná, sem er nár í nefnifalli og merkir mannslík eða dauðann mann. Hvalsins verður sjaldan vært við íslands strend- ur, en hið dýrmæta einhyrningshorn rekur stundum á fjörur. Konungsskuggsjá segir, að hann fælist menn (s. 130), og elzta handrit Grágásar bannar stranglega að eta hann. (Lib. 1., 17. kap.). Sögur eftir Einar í Rauðhúsum. Einu sinni þegar ég var í Villingadal, varð mjög hart í búi hjá húsbændum mínum, og hugði ég að reyna að bæta úr því með því að ganga til rjúpna. Vetur var harður og nóg af rjúpunni. Þegar ég fór að at- huga skotfæri mín, sá ég að ég átti nóg af púðri og perlum, en ekki nema eitt hagl. Ég lagði samt af stað með byssu mína og hlóð hana með þessu eina hagli. Ekki hafði ég lengi gengið, áður en ég sá eina rjúpu. Ég miðaði á sarpinn á henni, hleypti úr byssunni, og rjúpan steinlá. Ég rannsakaði nú sarpinn og fann hagl- ið, hélt ég svo áfram rjúpnaveiðinni og skaut þrjátíu rjúpur með þessu eina hagli um daginn. Siglingar útlendinga. Útlendingar koma ekki lengur til Vesturlands aðrir en Hollendingar. Leita þeir helzt inn á Tálknafjörð og Jökulfirði. Kaupmenn kvarta mjög undan verzluninni á þessum slóðum og halda, að Hollendingar dragi hana mjög frá sér. Fyrrum var meiri ástæða til að halda slíku fram en nú, því menn eru orðnir leiðir á þessari launverzlun. Stafar það bæði af því, að hún er óleyfi- leg, og af því, að þeir skaðast á henni, en til þeirra hluta taka alþýðumenn mest tillit. Útlendingar þeir, sem hér koma, eru aðeins sjómenn og hafa ekkert að selja nema gömul föt, skyrtur, færi og þ. h. Þeir selja ekkert brauð, sýróp, tóbak né brennivín, nema það litla, sem afgangs er útgerð þeirra, en það er engin býsn, því þeir hafa litlu meira en til brýnustu þarfa sinna. Þar að auki eru vörur þessar miklu dýrari hjá þeim en dönsku kaupmönnunum, en það, sem þeim er goldið, er líka það versta af ullarvörum landsmanna, sem kaup- menn ekki hafa viljað taka. Annars er Hoilendingum það lagið að kaupa vörur landsmanna með lágu verði, en selja sínar með háu, og taxta kaupmanna á erlendri og innlendri vöru kunna þeir utanbókar. Alls staðar A FRÍV hafa landsmenn sjálfir miklu meiri skaða af verzlun- inni við Hollendinga en kaupmenn og einkum þó þeir, sem lítt eru hagsýnir. Fram til 1700 komu bæði Frakkar og Bretar árlega til Vesturlands. Stunduðu Frakkar hvalveiðar, en Eng- lendingar fiskveiðar. Hvortveggja ráku launverzlun, en þeir réðu einnig íslendinga á skip sín yfir sumarið. Á árunum 1700—1730 var hvalveiðum, fiskveiðum og verzlun þessara þjóða að mestu lokið. Hvalirnir lögð- ust frá landinu og fiskimennirnir leituðu annarra miða. En jafnframt hefur Hollendingum og Dunkerquebúum fjölgað mjög. Englendingar hafa síðan stundað veiðar við Austurland. (FerSab. E. O. og B. P. 1752—1757). Tófan. Einu sinni þegar ég var á Strjúgsá, bauð Hallgrímur Thorlacius mér til drykkju út að Hálsi, því að þar átti hann heima. Milli bæjanna eru beitarhús. Þegar ég kom þangað, varð mér, „svona rétt af tilviljun"1) litið upp á fjallið (fjallið er mjög hátt), og sá ég svarta þústu á fjallsbrúninni. Ég hafði byssuhólk minn með mér að vanda, og miðaði, „svona hinseigin",1) á þetta og skaut. Ég hélt nú áfram ferð minni og drakk mig kenndan hjá Hallgrími. Þegar ég kom að beitarhúsunum í heim- leiðinni, rak ég fótinn í eitthvað og datt. Ég skeytti þessu ekkert í fyrstu, en þó kom mér til hugar að snúa við og hyggja að, um hvað ég hefði dottið. Ég sá þá, að þetta var tófa. Hún hafði verið svarta þúst- an, sem ég skaut á, og oltið þarna ofan hjarnfönn. Þótt þetta sé ótrúlegt, þá er það nú samt satt. Stórlygarar, Þjóðs. Ol. Dav. Jón Drumbur. Hjón ein höfðu svo mikla ást hvort á öðru, að ná- lega þótti úr hófi keyra. Bóndinn hét Jón, en ekki er getið um nafn konunnar. Hún sagði það oft, að hún myndi ekki giftast aftur, ef hún yrði fyrir því óláni, að maður hennar dæi á undan sér. Þar kom, að Jón andaðist, og harmaði ekkjan hann svo mjög, að menn hugðu að hún myndi varla bera það af. Þá er hún hafði syrgt bónda sinn um hríð, tók hún það til ráðs, að hún lét smíða trélíknesku eftir Jóni heitnum í fullri stærð, lét hún smyrja hana og baka og leggja í rekkju hjá sér í stað manns síns. Við þetta virtist mönnum harmi ekkjunnar létta nokkuð, og var líkneskjan köiluð Jón Drumbur. Þá er ekkjan hafði sofið alllengi hjá Jóni Drumb, bar svo til eitt sinn, að henni var boðið til veizlu, og bað hún vinnukonu sína þess, áður en hún af stað, að láta Jón Drumb sinn vera smurðan og volgan, er hún kæmi 1) Orðtiltæki Einars. 72 V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.