Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Side 19
útveginum, hafði hann afskipti af heilbrigðis- og menningarmálum til heilla og hagsbóta fyr- ir eyjaskeggja. Má þar til nefna sjúkrahús í Vestmannaeyjum, sem fullgert var 1927, en sú mikilvæga framkvæmd hvíldi aðallega á herð- um hans. Vestmannaeyingar réðust sjálfir í það stórvirki árið 1911 að leggja sæsíma frá Eyjum til lands. Þar stóð Gísli J. Johnsen fremstur í flokki, enda var ekkert hégómamál um að ræða, þar sem var að koma Vestmanna- eyjum í samband við landið og umheiminn. Þá má ekki gleyma hinum merkilega þætti Gísla J. Johnsen í öryggismálum íslendinga. Hann átti forgöngu um að stækka bátaflotann og fyrstur manna varð hann til þess að setja talstöðvar í fiskibáta. Þá mun seint fyrnast yfir síðasta afrek Gísla J. Johnsens í öryggis- málum okkar, en með því að gefa Slysavarna- félagi Islands 35 smálesta björgunarbát af nýj- ustu gerð með öllum útbúnaði, hefur hann reist sér sjálfum óbrotgjarnan minnisvarða. Mætti segja, að þetta síðasta atriði í framkvæmd- um Gísla J. Johnsens undirstriki sannleiksgildi þeirra fáu orða, sem hér hafa verið sögð um hugkvæmni hans og stórhug. Gísli J. Johnsen er mikilsmetinn meðal margra leiðandi manna í Svíþjóð. Hann hefur verið góð landkynning sinni þjóð þar og víðar á erlendum vettvangi. Framkoma hans er í senn glæsileg og virðuleg og hann vekur athygli hvar sem hann kemur á mannamót. Göteborgs-Posten helgaði Gísla J. Johnsen leiðara sinn á afmælis- degi hans 10. marz, auk afmælisgreinar. Mun þetta sjaldgæft tilfelli. Um leið og Víkingur- inn óskar Gísla J. Johnsen allra heilla og far- sældar á þessum merku tímamótum og þakkar honum ánægjuleg samskipti, tekur hann undir eftirfarandi ummæli sænska ritstjórans í leið- aranum 10. marz: ,, . . . hann er ennþá ungur. Hann er það vegna þess, að hann á hugsjónir, lífstakmark, vinnugleði. Annars er hann 75 ára í dag . . . “. G. J. Kaíbdturinn Nautilus Því miður var ekki unnt að birta framhald greinar- innar um ameríska, kjarnorkuknúna kafbátinn Nautilus í þessu blaði. Framhaldið verður birt í maí-blaðinu. * * * Nýliðinn í herdeildinni gerði allt vitlaust, sem honum var skipað á æfingu. Liðþjálfinn hellti yfir hann skömm- unum, en sá að dátinn lét sér fátt um finnast, og varð þá að orði: — Er yður alveg sama, þótt þér séuð skammaður? Og hvað er eiginlega lífsstaf yðar? — Ég er knattspyrnudómari, svaraði maðurinn rólega. Minntngarorð: Cuðmundur F. Gíslason Hann var fæddur að Öskubrekku í Barða- strandasýslu 5. marz 1899, sonur hjónanna Gísla Kristjánssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur. Barnungur hóf hann sjómennsku, fyrst á skútum, en síðan fór hann í siglingar og var m. a. á ,,Borg“, sem þá var í eigu íslenzka ríkis- ins, en einnig á dönskum og amerískum skipum. Prófi frá Stýrimannaskólanum lauk hann árið 1922, og var frá því árið 1926 stýrimaður á varðskipum ríkisins til ársins 1930, en frá þeim tíma var hann stýrimaður og skipstjóri í strand- siglingum á skipum Skipaútgerðar ríkisins. Guðmundur F. Gíslason fór víða og reyndi margt. Hann kynntist mörgum mönnum, og óhætt mun að fullyrða, að hann átti engan óvin, þvert á móti laðaði hann menn að sér með glað- værð sinni og góðmennsku, og hann var frá- bærlega vel liðinn af samstarfsmönnum sínum. Hann var sjómaður góður og einn þeirra, sem hafði „sjóast“ í hinum harða skóla reynslunnar og kunni vel þau verk, sem starf hans útheimti. Guðmundur F. Gíslason var félagslyndur og starfaði alla tíð í sjómannasamtökunum. Sjó- mannablaðið Víkingur á honum margt gott upp að unna. Hann var einn þeirra mörgu áhuga- manna, sem börðust fyrir vexti og útbreiðslu Víkings, þegar hann hóf göngu sína, og hann stakk ósjaldan niður penna um ýmis áhugamál og annað efni, sem hann taldi að ætti heima í málgagni sjómannanna. Guðmundur var giftur Guðríði Stefánsdóttur og áttu þau saman sex mannvænleg börn. Is- lenzkir sjómenn þakka Guðmundi Gíslasyni sam- leiðina og senda ekkju hans og börnum dýpstu samúðarkveðjur. — G. J. Ví K I N G U R 75

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.