Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Page 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Page 22
eins ein hugsun að: Bismarck skal ekki sleppa. Allar stöður brezku herskipanna voru merktar inn á sjókortin, og brátt höfðu 109 þeirra ásamt ílugvélum frá ýmsum bækistöðvum fengið það hlutverk á hendur að sökkva þýzku flotadeild- inni. Yfirforingi brezka heimaflotans Sir John Towey aðmirál, sem hafði á hendi stjórnina, var Ijóst að draga varð úr hraða Bismarck fyrir kvöldið, þar sem myrkrið gæti veitt honum tæki- færi til að hrista af sér óvinaherskipin. Eini möguleikinn á því að þetta tækist var að senda tundurskeytaflugvélar á vettvang. f orustunni við Hood flotadeildina varð Bis- marck fyrir 3 skotum frá Prince of Wales. Eitt þeirra hæfði einn olíugeymi skipsins og breið olíurák lá í kjölfari þess, annað skotið lenti á byrðingnum og vann ekki á honum en hið þriðja lenti á bógnum, reif upp nokkrar plötur svo sjór féll inn í nokkra vatnsgeyma, nóg til þess að hraðinn minnkaði um nokkrar mílur á klst. Prinz Eugen slapp óskaddaður úr orrahríðinni, en eldsneytisforði hans var á þrotum og hann varð að leita uppi eitt af þýzku birgðaskipun- um. Um eftirmiðdaginn versnaði veðrið skyndi- lega. Flugvélaskipið Victorious var þegar tekið að velta í hinum vaxandi sjógangi, og það var ekki fyr en kl. 10 um kvöldið að móðurskipið var komið innan flugvíddar til árásar á Bismarck, en þá hófu 9 flugvélar sig til flugs. Allt í einu kom Bismarck í ljós. Allar 9 flugvélarnar sleppa tundurskeytum sínum, en aðeins eitt þeirra hæf- ir stjórnborðssíðuna. Bismarck hristist við sprenginguna og einn háseti lætur lífið, en or- ustuskipið heldur áfram með 28 mílna hraða í áttina til frönsku strandarinnar. Útlitið er ískyggilegt fyrir Bretana. Tilraunin til að draga úr hraða Bismarck hefir mistekist. Towey aðmirál] fær tilkynninguna um hina misheppnuðu tundurskeytaárás og við þetta bætist, að hann verður að senda tundurspilla- deild til íslands til þess að taka eldsneyti og or- ustuskipið Repulse verður einnig að hætta elt- ingarleiknum af sömu ástæðu. Kl. 3 um morguninn berst brezku herskipun- um tilkynning frá flotastjórn sinni um að kaf- bátaárás sé yfirvofandi. Þau neyðast því til að sigla í krákustigum, en við það missa þau sjónar af Bismarck. Og það liðu 31^2 klst. þar til þýzki jötuninn kom aftur í ljós. Úr suðri kemur brezk flotadeild æðandi á fullri ferð móti norðan- stormi og stórsjó. Henni er ætlað að loka und- ankomuleið Bismarck til frönsku hafnanna. Sommerville aðmiráll er sannfærður um að Þjóðverjarnir hafi valið þessa leið, og glögg- 7B skygni þessa brezka sjómanns ræður úrslitum í þessum hildarleik. Nú er komið norðan ofsarok og herskipin neyðast til að draga úr hraðanum því að þau liggja undir áföllum. Um borð í Ark Royal búast menn til að senda 10 flugvélar á loft og enda þótt flugdekkið sé í 18 metra hæð brýtur sjór yfir það. Með öndina í hálsinum fylgjast skipverjar á brezku flota- deildinni með að þær hefja sig til flugs hver af annarri. Tvær klst. eru liðnar frá því er flugvélarnar lögðu af stað. Allt í einu heyra loftskeytastöðv- arnar tilkynningu um að Bismarck sé fundinn, og þegar staða hans er merkt inn á sjókortið, kemur í ljós, að hann er langt frá öllum brezk- um herskipum. Þegar Vian, foringi tundurspilladeildar, sem var á leið til liðs við brezku herskipin, fékk loft- skeyti um að Bismarck hefði sést, breytti hann um stefnu á eigin ábyrgð og sigldi beint á Bis- marck. Á nýju stefnunni velta tundurspillarnir svo geigvænlega, að erfitt er að halda þeim á stefn- unni. Sjóirnir brjóta yfir skipin stafnanna á milli. Manni skolar fyrir borð, en áfram er hald- ið með 27 mílna hraða til móts við óvininn. Á Ark Royal standa hendur fram úr ermum. Flugvélarnar á heimleið lenda hver af annari á móðurskipinu, sem veltur ægilega. Einni mis- heppnast lendingin og hún splundrast á dekkinu um leið og skipið tók þunga dýfu. Könnunar- flugvélar eru komnar á loft til þess að fylgjast með Bismarck og kl. 1450 hefja tundurskeyta- flugvélar sig á loft Tíminn er að verða naumur. Verði ekki hægt að draga úr hraða Bismarck fyrir kvöldið, minnka óðum líkurnar fyrir því að takast megi að sökkva honum, vegna þess að í næstu dögun kæmist orustuskipið inn fyrir flugvídd þýzkra flugvéla. Um kl. 16.00 fara menn að búast við fréttum frá flugvélum Ark Royal. Klukkan verður 16.00, 17.00 og 18.00 og ekkert heyrist l'rá þeim. Kl. 18.30 berst svo stutt tilkynning um að ekkert skeyti hefði hæft í mark. Það voru niðurdregnir flugmenn, sem gáfu yfirmanni sínum skýrslu. Komið hafði í ljós að tundurskeytin, sem útbúin voru segulkveikjum, virkuðu ekki í þessu veðri. Frekari flugárásir virtust tilgangslausar í slíku óveðri. Jafnvel þótt tundurspillar Vians kæmust í færi var veðrið of slæmt til þess að nokkur árangur næðist. Flaggskipið King George V. átti aðeins eftir um 30% af eldsneyti sínu, og orustuskipið Rod- ney var að verða eldsneytislaust. Kl. 17.40 upp- götvar Sheffield milli óveðurshryðjanna grá- V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.