Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1956, Qupperneq 26
4/1. Miklir erfiðleikar hafa verið
á innanlandsflugi sökum veðurs. —
Um 3000 bifreiðir lentu í árekstrum
á s.I. ári. Sjö dauðaslys urðu og 168
önnur slys á fólki. 49 ölvaðir bíl-
stjórar áttu hlut að þessum slysum.
— Verzlunarhallinn áætlaður tæpar
400 milljónir kr. á árinu 1955. Heild-
arinnflutningur um 1240 millj., en
flutt út fyrir 850 milljónir. — Detti-
foss lenti í slæmu veðri á leiðinni
heim frá Gautaborg. 12 bílar af 50,
sem á dekki voru, skemmdust meira
og minna. — Olíufélögin hækka verð
á olíum til togaranna um 28%. Er
orsökin sögð vera hækkað farmgjöld.
— Flugvélar Loftleiða fluttu á s.l.
ári 16800 farþega, en um 11000 á ár-
inu 1954. Aukningin er ca. 53%. —
9790 nemendur eru nú í barnaskól-
um í Itvík, en 2407 í gagnfræða-
skólum. — Ofsaveður geysar um
Vestur- og Norðurland og valdið
spjöllum á húsum og öðrum mann-
virkjum. — Stjórn L.l.tJ. fellir til-
boð frá ríkisstjórninni um reksturs-
grundvöll fyrir bátaflotann og hefj-
ast róðrar því ekki fyrst um sinn.
•
6/1. Friðrik Ólafsson varð efstur
á taflmótinu í Hastings ásamt rúss-
neska skákmeistaranum Korchnoj,
höfðu 7 vinninga hver.
•
8/1. Ríkisstjórn íslands tilkynnir
að viðræður hafi átt sér stað í París
hjá Efnahagssamvinnustofnuninni og
um landhclgismálið hjá Efnahags-
samvinnustofnuninni og hefur stofn-
unin skipað nefnd til þess að kynna
sér málið frá öllum hliðum og koma
með tillögur.
•
12/1. Eldur kom upp í v.b. ísfirð-
ingi á siglingu með Reykjanesskaga.
Áhöfnin, þrír menn, renndu bátnum
á land og björguðust allir. — 180
Færeyingar komu með GuIIfossi til
Reykjavikur. Eru þeir ráðnir til
starfa á bátaflotann á vertíðinni. —
Saltfisksframleiðslan á árinu 1955
nam 42,4 þús. smál., og er það að
mestu leyti selt og flutt út. — Fimm
nýir bátar verða gerðir út frá Vest-
mannaeyjum á vertiðinni, en þaðan
verða gerðir út um 90 bátar.
14/1. Bent Larsen, skákmeistari
Danmerkur kom hingað til að keppa
við Friðrik Ólafsson um sákmeist-
aratitil Norðurlanda. — Nýjum 67
lesta bát, Höfrungi, hleypt af stokk-
unum á Akranesi. Báturinn er eign
Haraldar Böðvarssonar og er með
270 ha. June-Munktell vél.
•
19/1. Fargjöld með strætisvögn-
um Reykjavíkur hækkuð. — Sex
stúlkur slösuðust á Keflavikurflug-
velli á leið til vinnu sinnar í íslenzk-
um strætisvagni,er bandarískur vöru-
bíll ók aftan á vagninn. — Magnús
V. Magnússon skipaður sendiherra í
Svíþjóð. — Tvítugur piltur, Egill
Guðmundsson, féll niður um lestar-
opið á TröIIafossi, var fallið 11—12
metrar og beið hann þegar bana. —
Sala áfengis á s.I. ári nam 90 millj.
kr., en áfengisneyzla á hvern íbúa
minnkaði um 108 gr. af hreinum vín-
anda. —• Mikið gæftaleysi og ótíð
á Vestfjörðum, en fiskgengd virðist
óvenju mikil þegar gefur á sjó. Fá
bátar altt upp í 14 lestir i róðri þeg-
ar þeir geta sótt út í Djúpál, en
ágangur er þar vegna erlendra tog-
ara. — Rikisstjórn Indlands býður
H. K. Laxness Nóbelsverðlaunahöf-
undi heim. — Meiri ís á Breiðafirði
en sést hefur í 30 ár. Firðir lokaðir
og eyjar innifrosnar. — Félag ís-
lenzkra iðnrekenda gefur iðnaðar-
deild háskólans kr. 10.000,00, sem er
andvirði 5 Geigerteljara, með það
fyrir augum að rannsakað verði
hvort úraníum finnst hér á landi.
•
23/1. Vetrarríki er mikið á Norð-
urlandi, og Fnjóskadal var 22 stiga
frost í nótt. Á Akureyri 17 stig, í
Möðrudal og Nautabúi í Skagafirði
20 stig, Mývatni 15 stig, Köldukinn
18 stig og á Húsavík og víðar geysar
hríðarveður. — Fulltrúafundur L.Í.Ú.
samþykkti í nótt að bátar og togarar
hefji veiðar, en bátaflotinn hafði
verið stöðvaður frá því um áramót.
— 4—5 þumlunga ís er á Reykja-
víkurhöfn og er Magni önnum kaf-
inn að brjóta ísinn.
24/1. Mældist mesta frost í Reykja
vík í 35 ár, 17,1 stig, og er það mesta
frost, s'em mælst hefur hér í bæ
síðan Veðurstofan tók til starfa. í
morgun var 20 stiga frost í Borgar-
nesi og eru þar mestu ísalög frá því
árið 1918. — Þjófnaðartilraun var
gerð hjá ríkisféhirði, lykilskegg
fannst i skránni að peningaskáp hans
og var það brotið af, en ekkert hafði
horfið úr skápnum. — 400 Færey-
ingar eru nú komnir hingað til lands
til að starfa yfir vertíðina á fiski-
skipaflota Iandsmanna. — Allmikið
jökulhlaup kom í Múlakvísl og bar
fram mikla jakahrönn fram í sand-
inn. — Iíosning stjórnar í Sjómanna-
félagi Reykjavíkur fór þannig, að
A-listinn, borinn fram af stjórn og
trúnaðarmannaráði, fékk 580 atkv.
og alla stjórnarmeðlimi kjörna, en
B-listinn fékk 465 atkvæði.
•
26/1. Gengið frá áætlun um hafn-
arframkvæmdir á Akranesi næstu tvö
ár fyrir um 12 millj. kr. Fram-
kvæmdir hefjast í apríl n.k. og ann-
ast þær þýzkt fyrirtæki, en lán til
framkvæmdanna hefur verið útvegað
í Þýzkalandi. — EgiII Skallagrímsson
seldi ísfisk í Bremerhaven fyrir
82.800 mörk og Askur fyrir 84.000
mörk. — Verkamannafélagið Dags-
brún 50 ára. Hátíðafundur haldinn
í Austurb^jarbíó. Fékk að gjöf
bókasafn Héðins heitins Valdimars-
sonar.
•
28/1. Á áttunda hundrað manns
eru starfandi á Vestmannaeyjabát-
unum og annað eins starfar við
hraðfrystihúsin í landi að hagnýt-
ingu aflans. Hafa aldrei verið eins
stórir og góðir bátar á vertíð í
Eyjum og í ár, eru flestir yfir 50
rúmlestir. — Munaði minnstu að
feðgarnir að Möðrudal köfnuðu af
kolsýrueitrun, er þeir voru að ganga
frá jeppabíl til vetrargeymslu í skúr.
az
V í K I N G U R