Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Blaðsíða 23
Óskum sjómönnum og útvegsmönnum góðrar síldveiði í sumar Fljót og góð afgreiðsla. Söltunarstöðin VENNl] Húsavík. Fi’amkvæmdastjóri: Vernharður Bjarnason. Af þeim fyrirtækjum, er gera út ,,pareja“-togara til þorsk- veiða er M. A. R. fyrirtækið viðamest (Motopequeros de Al- tura Reunidos), en það er fisk- vinnslusamsteypa í samvinnu við tvö önnur fyrirtæki, Indu- strias y Subproductos de la Pasca og- Mutua de Armadores Industrias y Subproductos, sem gera sameiginlega út 68 mótor- skip frá 100 til 360 brt. smál. að stærð, og með þessum skipum ræður M. A. R. samsteypan yfir útgerð 120 fiskiskipa samtals. Fiskvinnslustöðvar þær, sem starfræktar eru af þessum þrem- ur fyrirtækjum eru að flatarmáli um 323,000 sqft. og árleg fram- leiðsla þeirra af saltþorski þurrkuðum um 12.000 metric tonn. En fyrirtækin hafa einnig hlutdeild í verzlunarfyrirtækjum viðkomandi fiskiðnaði, hrað- frystingu, fiskmjölsframleiðslu, vátryggingarstarfsemi o. fl. er viðkemur starfsemi þeirra. Það eru einnig allmörg smærri Skipasmíðar innanlands Mánudaginn 2. maí var haldinn aðalfundur Félags ísl. dráttar- brautaeigenda. Formaður félagsins, Bjarni Einarsson, skipasmíðameist- ari .skýrði frá störfum félagsins á s.l. ári. Var m .a. unnið að því að bæta aðstöðu dráttarbrautanna við nýsmíði fiskibáta innanlands. í þVí skyni hækkaði Alþingi að ósk fé- lagsins heimild til ríkisábyrgðar vegna nýsmíði úr 4 millj. kr. í 10 millj. kr. Auk þess voru endur- greiðslur aðflutningsgjalda af efni til nýsmíða hækkaðar verulega á s.I. ári. Reikna má með því, að nýsmíði fiskibáta muni aukast innanlands á næstunni, enda eru bátar smíðaðir hér nú fullkomlega samkeppnishæf- ir bæði að gæðum og verði á við báta byggða erlendis. Á s.l. ári gekk Félag ísl. dráttar- brautaeigenda í Landssamband iðn- aðarmanna. Stjórn Félags ísl. dráttarbrauta- eigenda var endurkosin, en hana skipa: Bjarni Einarsson, formaður, Marsellius Bernharðsson, ritari, og Sigurjón Einarsson gjaldkeri. VÍKINQUR fyrirtæki, er starfrækja ,,par- eja“-togara, og eru helzt þeirra Pesca y Navigacion í Corunna, Pequera Vasco og Vieira Ganz- ales í Vigo, þessi fyrirtæki selja afla sinn til ýmissa vinnslu- stöðva í Corunna, Vigo, Gijon og Pasejas. í aðalatriðum má segja um útgerðartímabil skipanna, að stóru togararnir gera tvo veiði- túra á ári. Þann fyrri á tíman- um frá janúar eða febrúar til júní. Og þann síðari frá júlí/ ágúst til nóvember eða desem- ber. „Pareja“-skipin hefja veið- ar sínar um marz til apríl og ljúka síðustu veiðiferðum sínum í september eða október. Sumir ,,pareja“-bátarnir fara heim til Spánar strax, þegar þeir hafa fengið fullfermi af saltþorski — engan ísfisk er um að ræða — en aðrir láta afla sinn um borð í flutningaskip, Kaupum síld hafnargarðinum í Húsavík, eins og undanfarin ár. Þökkum viðskiptin síðasta ár. sem til þess eru leigð, að flytja aflann til heimahafnar, en halda sjálf áfram að fiska. Engar nákvæmar tölur er að fá um heildar þorskveiði þessa fiskiflota, en þó er talið að afl- inn hafi verið um 178.000 metric tonn árið 1956 og ca. 150.000 metric tonn 1957. Um aflann 1958 eru engar tölur, en talið að hann hafi verið talsvert lægri heldur en bæði hin árin. Þrátt fyrir þá aukningu sem orðið hefur síðustu árin á þorsk- veiðiflota Spánverja, flytja þeir ennþá inn talsvert af saltfiski, og var það á tímabilinu janúar til nóvember 1958 um 14.293 metric tonn. Árleg heildarneyzla Spánverja af þurkuðum salt- fiski er talin vera um 70.000 metric tonn, en af einhverjum ástæðum mun neyzlan hafa dreg- ist saman eftir borgarastyrjöld- ina. Kaupum síld og annan fislc til verkunar. Fljót og góð afgreiðsla. 127

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.