Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1960, Síða 29
Alit varð auðveldara í þessum
efnum, þegar farið var að framleiða
raforku í stórum stíl í skipunum.
Með rafstreng er hægt að flytja raf-
orku til hvers staðar sem vera skal
í skipinu, og hagnýta hana þar í
viðeigandi tækjum, enda eru nú til-
tæk raftæki til nálega flestra hluta
þar sem orku er þörf. Þetta hefur þó
ekki reynst auðvelt í fiskibátum
okkar, og svipað mun vera annars
staðar .
í fyrsta lagi er takmarkað rúm
fyrir sérstakar vélar til raforku-
framleiðslu sem verulega munar um.
í annan stað standast rafmagns-
hreyflar illa vosbúðina sem jafnan
er á þilfari smáskipa, og rafknúin
tæki þar eru naumast eins traust
og nauðsynlegt er.
Fyrir all mörgum árum var farið
að breyta um aðferð við orkuflutn-
ing í fiskiskipum, þ. e. að farið var
að nota þrýstivökva — hydraulik —,
held ég að Norðmenn hafi verið þar
með þeim fyrstu. Aðferð þessi er
þó alls ekki ný. Hún hefur um langt
skeið verið notuð t. d. við hafnar-
mannvirki, þar sem skip eru losuð
og lestuð. Er þá vökva (vatni) dælt
inn í p'ípur sem liggja um hafnar-
bakkana. Þessar pípur eru svo
tengdar lyfti- eða dráttartækjum og
vatnið hreyfir þá bullur eða snæld-
ur eftir því sem við á. Háir vatns-
turnar eru hafðir í sambandi við
þetta kerfi til þess að auka og jafna
þrýstinginn.
Með margvislegum fíngerðum og
traustum búnaði er þessari aðferð,
samhliða raforkunni, beitt í mesta
f jölda skipa af öllum stærðum, eink-
um til þess að stýra með, en í stað
vatns er notuð olía eða annar svip-
aður vökvi sem ekki frýs. Mér skilst
að norskir vélsmiðir hafi verið mjög
athafnasamir um að finna hagkvæm
tæki til þessara hluta, enda munu
vökvaspil mjög mikið notuð í norska
fiskiflotanum .
íslenzkir útvegsmenn eru nú sem
óðast að koma þessum tækjum í
fiskibátana hér, og bátar sem koma
erlendis frá munu yfirleitt búnir
þessum tækjum. íslenzkar vélsmiðj-
ur hafa um skeið unnið að smíði
slíkra tækja, vökvadæla og lyfti-
og dráttarvinda. Til dæmis hefur
vélsmiðjan Héðinn h.f. í Rvík smíð-
að all mikið af þessum spilum og
tekist vel. Afkastamesta fyrirtækið
á þessu sviði mun nú vera vélsmiðja
Sigurðar Sveinbjörnssonar í Skúla-
túni 6 í Rvík. Hefur það fyrirtæki
komið í gang vísi að fjöldafram-
leiðslu á vökvadælum og vökvavind-
um fyrir fiskibáta. Er smíðað eftir
norskum fyrirmyndum. Var mér
tjáð að vélsmiðjan væri búin að
smíða um eitt hundrað vindur sem
allar væru nú í ísl. fiskibátum og
stæðu sig vel. Mun víðast sá háttur
hafður á, að olíudælan er knúin af
aðalvélinni með reim eða keðju-
drætti. Einn veigamesti kosturinn
við orkuflutning með þessum tækj-
um er sá, að smurolían sem sífellt
streymir um kerfið verndar það um
leið fyrir sliti og tæringu. í olíu-
dælunni eru engir lokar sem geta
Vökvaknúið tromluspil fyrir fiskibáta.
Vökvaknúið línuspil.
slitnað eða brotnað. í dæluhjólinu
eru aðeins smá raufar sem flytja
olíuna og gefa henni svo mikla
hreyfiorku að nægir vindunum á
þilfari til þess að draga línu og net,
lyfta þungum hlutum úr lest, draga
upp akker o. fl. Ég held að enginn
vafi geti leikið á þvi, að þetta er
traustasti vélabúnaðurinn til þess-
ara hluta, sem enn hefur verið tek-
inn í notkun.
í nýjustu flutningaskipum okkar
er nú þessari tækni beitt við flutn-
ing allrar þeirrar orku sem á þil-
fari þarf að nota. Frá sérstakri mið-
stöð í vélarúmi er smurolíu dælt
eftir stálpípum sem greinast í allar
vindur og krana sem á þilfari eru
staðsettar.
Það er ánægjulegt að sjá að ís-
lendingar eru einnig á þessu sviði
að tileinka sér það bezta sem völ
er á. Hallgr. Jónsson.
Eldey friðlýst
Náttúruverndarráð hefur ákveðið
að friðlýsa Eldey út af Reykjanesi,
sem friðland. í frétt frá ráðinu seg-
ir m.a.:
„Þar sem telja verður mikilvægt,
að friðlýsa Eldey sakir sérstæðs
fuglalífs, er hér með lagt bann við
því að ganga á eyna án leyfis nátt-
úruverndarráðs svo og að ræna þar
eða raska nokkrum hlut.
Jafnframt eru öll skot bönnuð
nær eynni en 2 km„ nema nauðsyn
beri til, og bannað er að hafa eyna
að skotmarki, hvort heldur er af
landi, sjó eða úr lofti“.
VÍKINGUE
133