Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1961, Síða 14
Æskan og fegurðin við fiskvinnu í Vestmannaeyjum.
Vetrarvertíöiii 1960
i Vestmaimaeyjiiiii
Sjómannablaðið Víkingur hef-
ur fengið kærkomið tækifæri til
þess að flytja lesendum sínum, í
þessu og næsta blaði, myndir af
nær öllum bátum og bátafor-
mönnum, er veiðar stunduðu frá
Vestmannaeyjum á vetrarvertíð-
inni 1960.
Þetta stórmerka myndasafn af
bátum og gjörfulegum sjósóknar-
mönnum, sem árlega flytja að
landi tugþúsundir tonna af fiski
á Suðurlandsvertíð og síðar fara
til síldveiða eða annarra veiði-
fanga, ber að þakka Sigurgeir
Jónassyni í Vestmannaeyjum,
sem á s.l. vetrarvertíð tók allar
þessar myndir í frístundum sín-
um. Þær eru teknar við misjöfn
veðurskilyrði, og allar myndirn-
ar af formönnunum eru teknar í
brúargluggum báta þeirra, ýmist
þegar þeir eru að fara í róður
eða að koma úr róðri.
Meirihluti bátanna stundaði
neta- og línuveiði, en nokkrir
þeirra línu- og handfæraveiðar.
Heildarafli lagður á land í Vest-
mannaeyjum af heimabátum og
aðkomubátum á vertíðinni 1960,
var samtals 37,2 þúsund tonn (42
þús. tonn 1959 og 40,6 þús. tonn
1958). Allar aflatölur eru teknar
úr „Ægir“ og miðast við slægð-
an fisk með haus.
Eftirfarandi aflatölur frá vertíð-
inni 1960 ná til báta, er fiskuðu
yfir 200 tonn:
Hálar með yfir 700 lentir.
Lestlr Róðrar
Gullborg RE 38 ............ 718 85
Loó VE 400 ............... 806 88
Snæfugl SU 20 ........... 709 81
Stíganrli VE 77 ........... 855 95
Itáíar með 500—700 lcstir.
Lestir Róðrar
Bergur VE 44 ............. 603 85
Dalaröst NK 25 ........... 603 85
Eyjaberg VE 130 .......... 678 86
14
VÍKINGUR