Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1961, Síða 33
0.105.000 f. Kr.
í síðasta sinn
liggja ísbreið
ur um Alpadali og N-EVKÓPU
(Wiirm-ísöldin). — Hið hánorræna
hreindýr er á ferðinni sunnan við
Pyrenæafjöll og mammútinn í íta-
líu. I fjalldölum og brekkum hefur
harðviði íshafslandanna útrýmt hin-
um fjölbreytta jurtagróðri mið-ís-
tímabilsins.
Neanderdals-maðurinn reynir að
draga fram lífið og búa í djúpum
hellum kalkfjalla, en oft verður
hann að berjast um húsaskjólið við
grimm rándýr eins og hellnaljón og
liellnabimi. — Hin margra metra
þykku úrgangshaugar sýna greini-
lega, að þeir hafa um langan aldur
verið á vixl bústaðir manna og
villtra dýra.
í ítalíu og á Spáni er veðráttan
mildari og þar lifir neanderdals-
maðurinn á bersvæðum. Verkfæri
þeirra eru að mestu miklu ófull-
komnari og einfaldari heldur en kyn-
bræðra þeirra norður frá, þar sem
hætturnar þvinga mannveruna til
þess að beita öllum kröftum og
hugsun til þess að sigrast á erfið-
leikum lífsbaráttunnar.
Moustier-menningin er að líða
undir lok. Meðan ísöldin þjappar
fastar að, dvín lífskraftur neander-
dals-mannsins hægfara niður.
0.85.000 f. Kr.
Neanderdals-
mennirnir virð
ast horfnir frá EVRÓPU og algjör-
lega ný manntegund hefur tekið sér
bólfestu í hellum þeirra og kletta-
skorum. Hinir ókunnu koma frá
austri og eru fyrstu þekktu full-
trúar nútímamannsins á meginlandi
Evrópu. í útliti svipar þeim til nú-
verandi frumbyggja Ástralíu, sem
einnig er talin standa næst þeirri
frumveru, sem nútímamaðurinn eigi
rót sína að rekja til. Um hin raun-
verulegu örlög neanderdals-manns-
ins er aðeins hægt að byggja á til-
gátum. Yfirbuguðust þeir af kuld-
anum og baráttunni við villidýr, eða
var þeim útrýmt af hinum nýju inn-
flytjendum, eða er hvoru tveggja
þetta ástæðan fyrir hvarfi þeirra?
í hinu mildara loftslagi ítalíu og
Spánar lifa þeir talsvert lengur en
annars staðar í Evrópu.
Hin nýja verkfæra- og vopna-
menning (Aurignac) ber vott um
algjör umskipti frá háttum fortíð-
arinnar, enda þótt ennþá verði vart
að hinir nýju innflytjendur hafi að
einhverju leyti og í einstöku tilfell-
um notað eldri vopnin. Aurignac-
veiðimennimir eru þó miklu snjall-
ari til þess að notfæra sér mögu-
leika fleinsins. Þeir smíða fyrstu
stingvopnin.
(Næst: 0.65.000 f. Kr.)
—o-O-o—
Maður nokkur hafði verið tekinn
ölvaður á almannafæri. Með því að
þetta. var fyrsta brot, og maðurinn
ekki líklegur til að vera mjög synd-
ugur í þessum efnum, var honum
sleppt með smásekt og strangri á-
minningu.
—- Og látið mig nú aldrei sjá yður
framar, sagði fulltrúinn með á-
herzlu.
— Því get ég ekki lofað, sagði
maðurinn.
— Hvers vegna ekki?
— Vegna þess, að ég er innan-
búðar í Áfengisverzluninni.
8TEINAVÖR H.F.
Norðurstíg 7, Reykjavík — Sími 24123.
Erum einkaumboðsmenn fyrir
ROLLS ROYCE diesel
bátavélar í stærðum 100 til 400 hestöfl, og
BHKmarine^^
bátavélar í stærðum 34/55 og 50/86 hestöfl.
Bæði merkin eru 1. flokks vélar, sterkar, spameytnar og öruggar.
Áherzla lögð á góða varahluta og leiðbeiningaþjónustu, í samvinnu
við Vélaverkstæði Bjöms & Halldórs, Síðumúla 9, Reykjavík.
VÍKINGUR
33