Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Side 6
Þarna var farið til veiða. Ljósm. Gnnnar Magnússon. Skömmu fyrir síðustu aldamót barst hingað til lands nýtt veiðar- færi til fuglaveiða. Það var „háf- urinn.“ — Fyrstir munu Vest- mannaeyingar hafa notað hann. Barst sú uppfinning frá Fær- eyjum. Háfurinn er úr tré, skaft sex og hálf alin á lengd, haft eins grannt og þol leyfir. Við skaftið eru festar grannar spelkur úr seigum við, baui eða ask, einnig má nota eik, en hún er þyngri í sér. Spækurnar voru festar með högldum', oft úr hrútshorni, en stundum úr tréi.Var högldinmeð þrem götum og höfð fremst á skaftinu. Á milli spækanna var svo haft net úh-þorskanetagarni eða öðru slíku efni, spækurnar voru fimm fet að lengd, voru þær svo hertar saman á endun- um með grannri snúru. Var þá allmikill poki á netinu. 1 neðri enda skaftsins var hafður stál- broddur, því oft þurfti veiðimað- urinn að tefla á tæpt í fugla- björgunum, og notaðist þá háf- skaftið sem fjallastöng. 1 háfinn var veiddur bæði fýll og lundi og svo stundum svart- fugl, þá er farið var í dranga, þar sem að hann var. Austur í Mýrdal mun háfur- Gunnar Matjnúxnon írá Iteynisdal: MEÐ HÁFINN í REYNISFJALLI Fuglaveiðar hafa lengi verið stundaðar sem atvinnugrein hér á landi þar sem skilyrði hafa verið til frá náttúrunnar hálfu. Hafa þar ýmis brögð komið til greina við að fanga fuglinn, á ég hér eingöngu við sjófugla. Kunn er hin aldagamla veiðiaðferð við svartfuglinn (langvíuna) við Drangey, flekaveiðin, sem nú fyr- ir skömmu hefir verið bönnuð. Þá var Kofutekja of lunda kunn veiðiaðferð víða hér við land, þar sem fuglinn var krækt- ur út úr holum sínum með járn- krókum, sú veiðiaðferð er nú lögð niður. Þá var víða fyrr meir fugl veiddur í net, sem lögð voru þar sem að mikil fuglabyggð var, barðist fuglinn oft um í lengri tíma, uns veiðimenn komu og hreinsuðu úr netunum. — Þessi veiðiaðferð er löngu bönnuð með lögum hérlendis. Þá var fugl meir víða skotinn með haglabyssum, og svo er gert enn, þar sem að svartfugl er skot- inn á hafi úti, kunn er auglýs- ingin „ný skotinn svartfugl fæst hjá N.N..“ inn hafa borist frá Vestmanna- eyjum skömmu fyrir síðustu aldamót. Þar voru ýmsir staðir þar sem að mátti með góðum árangri veiða í háf. En sérstak- lega var það í Reynisfjalli og Víkurhömrum sem mest var veitt í háf, var það fýll á vetrum, en lundi á vorin og sumrin. Fyrstir til þess að veiða í háfinn í Mýr- dal munu þeir hafa verið, Einar Finnbogason í Þórisholti, Skúli Unason, síðar á Suður-Fossi, Högni Högnason, Görðum, Hall- grímur í Hellum og Magnús VÍKINGUR 186

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.