Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 41
en hvað um það, — drykkur er drykkur og ég setti mig í steil- ingar, — en hinn fóturinn komst aldrei nema hálfa leið og sat fast- ur, með þeim afleiðingum, að ég féll á grúfu á gólfið, ég sá stjörnur og fékk stærðar kúlu á ennið. Eftir drykklanga stund var törnin mín, og ákvað ég að nú skyldi æfingin verða erfið. Ég handlangaði mig upp súlu, sem lá upp með hljómsveitarpallin- um, sem var fest á vegginn í nokkurri hæð frá gólfinu, og var í laginu eins og bátslíkan. 1 mik- illi hæð — að mér fannst, sveifl- aði ég mér á annarri hendinni niður á dansgólfið. Af einskærri óheppni, að mér fannst, rann ég á hálu gólfinu, svo að ég féll nokkuð þungt á sitjandann. .. . „OK!“ sagði Alfredo. Eg dró þó nokkuð í efa að honum mundi takast þetta, sérstaklega stökkið, vegna tréfótsins. Hann handlangaði sig glæsilega upp súluna, ennþá hærra en ég, — og stökkið! Hann kom fyrst niður á heila fótinn og smádynk- ur heyrðist þegar tréfóturinn kom niður. Og til viðbótar rétti hann báða arma út og sveiflaði sér þannig heilhring á tréfætin- um. Það var klappað og hrópað húrra fyrir Alfredo, — og ég flýtti mér að panta næsta drykk. Við hvíldum okkur um stund, en svo tókum við til aftur. Útkoman varð sem áður, að Alfredo gat leikið eftir allar þær æfingar, sem ég gat gert og sum- ar stórum mun betur og ennþá fleiri en ég treysti mér til að framkvæma. Já, sigur „Tréfóts“ var óumdeilanlegur. Þegar lok- unartími kom, fylgdumst við nið- ur götuna. Á Terceira torginu námum við skyndilega staðar. „Sérðu það, sem ég sé,“ hróp- aði Alfredo. „Jú, það gerði ég. Á miðju torginu var fagurt blómabeð og upp úr því miðju óx stórt pálma- tré. „Nú skulum við taka síðustu æfinguna," hélt hann áfram. VÍKINGUR „Hvað segir þú um að skreppa upp í þetta pálmatré og ná í nokkrar döðlur?“ Eg lét ekki segja mér þetta tvisvar og var þegar lagður af stað upp tréð og var að teygja mig eftir nokkrum döðlum, þeg- ar ég heyrði Alfredo kalla: „Var- aðu þig, — löggan! Ég leit við og kom strax auga á lágvaxinn lögregluþjón, sem kom á harða hlaupum í áttina að trénu, en Alfredo hafði þegar stungið af inn í hliðargötu og ég undraðist stórlega hvað hann gat hlaupið hratt á tréfætinum. Lögregluþjónninn blés hátt í flautu sína. Ég húrraði mér nið- a—------------------------------ ur úr trénu, þótt ferðin væri væg- ast sagt mjög óþægileg, því mér fannst eins og börkurinn togaði í mig, og ég hljóp eins hratt og ég gat út í hliðargötu. Ég komst inn í dimmt skot og faldi mig. Þegar ég þóttist viss um, að eftir- förinni var hætt, fór ég að leita að Alfredo, en hann var hvergi að finna. Það var eins og jörðin hefði gleypt hann. Á leiðinni um borð, fór ég að hugsa um nokkrar æfingar, sem ég hafði gleymt, — en sem við hefðum gjarnan mátt reyna. — En þær verða að bíða þar til ég kem næst til Lissabon og hitti Alfredo. ---------------------------------æ Merkilegur áfangi í íslenzkum sjómælingum ■ Frli. af bls. 183 og lá milli Vestmannaeyja og Surtseyjar. Fjórða línan sem not- uð var til mælinga þessara var 100 km. V frá Þjórsárósum. Guðm. Pálmason, verkfræðing- ur, sem mun hafa mikinn áhuga á þessum rannsóknum, var mjög þakklátur Landhelgisgæzlunni fyrir það að gera þessar mæling- ar mögulegar, en hann mun einn færasti maður í þessari grein, • sem við eigum. Kannski verður þetta til þess ■ að við eignumst „Stöpulinn," sem landið okkar stendur á að einu og öllu. Samkvæmt alþjóða reglum ættum við hann ef olía fyndist! Hér hafa nú verið raktir lausir drættir úr þessum merkilega leið- angri v/s Þór. Veðurguðirnir voru þessum sérfræðingum mj ögk, hliðhollir og það stuðlaði að þeim ; árangri, sem þegar hefir náðst. Þess munu þeir þó ekki ganga duldir að framundan er geysilegt . framhaldsverkefni. Það verður vitanlega að bíða síns tíma og ástæðna. — Islenzkir fiskimenn ' munu eflaust kunna að meta hin merkilegu störf þessara manna og draga not af þeim. Það fer vel á því að við fylgjumst af áhuga með störfum og kunnum að meta þeirra störf, sem koma sjómönn- um einum í hag við fiskveiðarn- ar og siglingar á þeim slóðum. Sjómannablaðið Víkingur vill fyrir hönd sjómanna færa hverj- um og einum, er þátt tóku í starfinu, þakkir fyrir óeigin- gjarnt starf við að skilgreina og rannsaka sjávarbotninn til hags- bóta fyrir þá.Veðurguðirnir voru einnig einkar hliðhollir í þess- um túr. Hægviðri og bezta veður allan tímann. Þeir voru líka að vinna þjóð- þrifaverk, sem bera mun ríkuleg- an árangur þegar stundir líða fram. -x Skyggnzt inn í liðinn tíma — Framh. af bls. 207 fara um borð í herskipið — töldu sig ekki vera í nógu góðum föt- um, en skipstjóri varðskipsins sagði næg föt vera um borð í Heimdalli. I réttarhöldunum bar skipstj. á móti því að hafa verið í land- helgi og sór meira að segja á móti öllum hinum. Þá var Islend- ingur, sem hét Halldór Sigurðs- son frá Akranesi, háseti á togar- anum. Hann sór einnig með skip- stjóranum. Skipstjórinn fékk að fara með 221

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.