Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Blaðsíða 8
á við veiði í Reynisfjalli að sunn- anverðu, en svo var einnig veitt vestan í fjallinu í vestan og norð- an áttum. Þar voru nokkrar setur sem vel veiddist, stundum þegar að góð átt var og vindur var hagstæður. Þar voru þessir veiðistaðir: Höfn, Grindanef, Hálsanef, Pína og Hælstó. Á öll- nm þessum stöðum veiddist oft /el þegar að vindáttin var þeim inegin. Venjulega báru veiðimenn veiði sína heim með sér að lokinni dagsveiði, svo fremi að hún væri berandi. Af lunda bárum við allt að einu hundraði, en af fýl ekki meira en fimmtíu fugla. Eg bar einu sinni upp keðju- stigan af Standinum eitt hundr- að lunda og háfinn að auki, ég hét því að gera það ekki aftur. Hefi ég sjaldan komist í meiri raun. Bar ég svo þessa 100 lunda heim til mín og var það leikur einn á móts við það að bera þá unn biargið. Mest veiddi ég af fvl á dag, 240 fugla, var það á Standinum í sniókassa og einkar hagstæðu veiðiveðri. Ég skildi alla veiðina eftir á Standinum, og fórum við faðirminn, Magnús, með hest og band fram á bjarg daginn eftir. Eg fór niður og kippaði, en hann halaði kipp- urnar upp. Var þetta álitleg hrúga þá er allt var komið upp á einn stað. Var ég vel ánægður með veiðina og hrósaði happi yf- ir miklum feng. Mjög voru þessar fjallaferðir hættulegar, ekki sízt að vetri til þá er allt var frosið og snjór í bjarginu. Vorum við þá alltaf í fjallajárnum og veitti ekki af. Þá var það karlmennsku raun að sitja allan daginn hreyfingar- laus á sama stað í kuldaveðri, og stundum blautir, en um þetta dugði ekki að fást. Þessar veiðar voru einn liðurinn í lífsbarátt- unni, og hjá mörgum fjölskyldu- manninum all veigamikill þáttur í því að komast sæmilega af. Það mátti heita sérstakt lán að aldrei urðu nein slys á þeim er fjallið stunduðu, en oft mátti lítið út af bregða, eitt misstigið fótmál gat orðið nóg. Við veiðimenn í Reyn- isfjalli reyndum að hafa allt í sem beztu lagi í því er að starfi okkar laut, við vorum djarfir, en þó varfærnir, og hvert fótmál var vandlega yfirvegað áður en það var stigið. I þessum ferðum gilti ekkert annað en karl- mennska og sjálfstraust án þess komst enginn feti lengra. Ýmis- legt bar við í þessum ferðum. Vorið 1932 vorum við þrír í lunda, úr Reynishverfi, auk mín voru þeir Gísli Skaftason frá Reynishjáleigu og Vigfús Ólafs- son frá Lækjarbakka. Eg var að veiða á Rótarpallinum, en þeir fóru niður í Urðir að veiða þar. Ég hafði ekkert samband við þá um daginn, sá aðeins til þeirra öðru hvoru. En þegar að ég kom heim frétti ég að þeir hefðu fund- ið lík í urðunum niður við sjó. Reyndist það vera af Gísla Run- ólfssyni frá Heiðarseli á Síðu. Það varð bátstapi í Vík um vet- urinn. Auk Gísla drukknuðu þeir Dagbjartur Ásmundsson og Ein- ar Gísli Sigurðsson. Þetta var af bátnum „Blika,“ formaður var Gísli Sigurðsson frá Búlandi.Var hann óvanur sjósókn, en fór í fiskiróður með mönnum austan yfir Mýrdalssand. Það fór ekki vel, og hafði lík Gísla falist í Urðunum þar til að Gísli og Vig- fús fundu það sem fyrr segir. Fengu þeir sér mannhjálp og báru líkið heim að Görðum. Þar var það kistulagt og síðan flutt austur yfir Mýrdalssand og jarð- sett þar. Svo fór um sjóferð þá. Nú hin síðari ár heyri ég sagt að Mýrdælir séu alveg hættir að stunda fuglaveiðar í háfogfinnst mér það mikil afturför frá því sem áður var. Þá lærðu tápmestu unglingarnir þessa íþrótt og tóku svo við af þeim eldri. En Mýrdælir hafa farið inn á viðskiptasviðið og mæna nú eftir hverjum mjólkurlítra, sem þeir senda út í Flóabú. Þetta kalla þeir leið til hagsældar og velmeg- unar og um það þýðir víst ekki að fást. En í huganum minnist ég margra samferðamanna, sem iðkuðu veiðiíþróttina með huga og hönd gripu hvern fugl, sem að í færi kom, spenntir og stæltir fullhugar, sem kunnu vel fótum sínum forráð. * BVV* ■ B ■ ■ ■ ■ ■ ■ B _■_■_■_ í VINNUDEILU FARMANNA TEKINN TIL STARFA Gerðardómurinn, sem skipaður var með bráðabirgðalögunum í júnímánuði s.l. til að fjalla um kaupgjaldsmál yfirmanna á kaupskipaflotanum, er tekinn til starfa. Dóminn skipa eftir útnefningu Hæstaréttar þeir: Guðmundur JónBson, borgar- dómari, formaður, Guðmundur Skaftason, lögfræðingur og Torfi Ásgeirsson, hagfræð- ingur. ■"■' ■_■_■■ _■_■ ■ VlKINGUR 188

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.