Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Side 17
að handsama og eyðileggja feg-
urðina í hverju einasta landi,
knúsa hana á sama hátt og slag-
hörpuna hans Mozarts.
„ó, þér, þér, drengilegi aula-
bárður! Yðar land sleppur ekki.
Áformin eru þrauthugsuð; 5.
herdeildin vinnur þarna handan,
nætur og daga, og útsendarar
hans eru iðjusamir.
Éru allir Ameríkumenn eins og
þér, — reiðubúnir að deyja fyrir
fagurt hugtak? Verja fegurðina,
vernda þá veikbyggðu og láta líf-
ið fyrir þá?“
Við drepum fegurðina og við
sigrum þá veiku, því við verðum
að öðlast valdið-
Eg hefi selt mig Grunze til að
fá vald. Ég á ekki lengur sál
mína. Þýzkaland á ekki lengur
sína eigin sál.... Hiram — ég
verð að snerta yður, aðeins einu
sinni, ég verð... “
En það var Hiram, sem tók
hana. Óhreinn og blóðugur sem
hann var, hafði hann þegar tekiS
hana, við að heyra að hún var
eign dr. Grunze.
Ástarleikur þeirra tók á sig
mynd óreglulegra slagsmála lík-
ama og sálar, þar sem hvort um
sig hugsaði um það eitt að taka
og tileinka sér sem þau girntust
og þráðu. Hiram tók yndisþokka
hennar, orku og æsingu, en hún
beitti sér við að svipta hann
krafti hans frjálslegu sjálfi og
hetjulund. Það var sem hún reik-
aði áfram í sinni andlegu eyði-
mörk og fynndi að lokum krist-
alstæra svölun. Hungruð ástríða
hennar tók á sig blæ trúarlegrar
tjáningar.
Blóðið, sem draup úr sárum
hans og litaði líkama hennar gat
ef til vill þvegið hana hreina. Og
Hiram tók hana af holdugri fýsn
og vegna þess, að hann með því
bauð bæði guði og mönnum byrg-
inn-
Klukkan var sjö um morgun-
inn þegar hann fór frá henni.
Frá húsinu lágu neðanjarðar-
göng undir aðra byggingu með
útgangi í stutt afskekkt mjó-
stræti er lá út að Raucherstrasse.
Hann þurfti þvi ekki að nota
hinn hátignarlega útganginn til
Tiergartensstrasse, sem gat ver-
ið vaktaður. Honum fannst hann
allur af göflum genginn eftir allt
það, sem hann hafði séð og reynt,
en nú hafði hann fengið heldur
betur efni í blað sitt og það hélt
honum uppi.
Hann tók bíl út í Friedrich-
strasse og sá hvernig þeir höfðu
herjað og rænt verzlanirnar í
bogagöngunum. Hann sá börnin
róta í rústunum eftir leikföngum.
Þau voru útötuð í framan af sæl-
gæti, sem þau höfðu nælt sér í
annarsstaðar.
Hann ók um fleiri götur og sá
meiri eyðileggingu.
Hann fór loks til hótels síns og
skrifaði grein sína.
Hann hafði enga hugmynd um
hvernig hann færi að koma henni
út úr Berlín, en skrifa varð hann
og frásögn hans varð bitur og
beizk lýsing manns, sem sveið
undan sínum eigin sárum.
Setningarnar spruttu fram
með lifandi lýsingu á atburðum
næturinnar, brotnum spegilrúð-
um glæsilegra verzlana og drjúp-
andi blóði frá misþyrmdu fólki.
Hann var úttaugaður á líkama
og sál, þegar hann lauk grein-
inni, en hann unni sér ekki svefns
eða hvíldar Honum hafði komið
ráð í hug. Hann hafði ekki undir-
ritað greinina og lét afrit að
henni í umslag, sem hann boð-
sendi til Biedemanns á skrifstofu
„Varðmannsins" í Dorotheen-
strasse. Frumritinu stakk hann í
vasann og labbaði með það til rit-
símastöðvarinnar í Lehrter-
brautarstöðinni, og þar hjá hin-
um önnum kafna ritsíma, afhenti
hann hana sem símskeyti til
Wallace Reck, Hotel des Am-
bassadeurs í Prag. Hann borgaði
skeytið, gaf upp falskt nafn og
heimilisfang, hraðaði sér heim á
Hotel Adlon og beint í rúmið-
Biedemann fékk greinina, las
hana og varð gulgrænn í fram-
an. Skjálfandi á beinunum læsti
hann sig inni á einkaskrifstofu
sinni, bar eld að blöðunum í eld-
stónni og sat og skalf, þar hún
var brunnin til ösku, þá dreifði
hann öskunni í duft með skör-
ungnum.
En símritari á Lehrter-stöðinni
sendi greinina til Prag. Það kost-
aði hann síðar vist í fangabúðum.
Eina afsökun hans var sú að
hann hefði verið þreyttur og
syfjaður og að skeytið hefði ekki
átt að fara til Ameríku, Eng-
lands eða Frakklands. Reck sím-
sendi óðar greinina til New York.
Hiram svaf ellefu tíma. Klukk-
an var eitt um nóttina, þegar
hann vaknaði við að síminn á
náttborði hans hringdi. Það var
Irmgard:
„Hiram, ó, ég verð að sjá þig.
Kemurðu ekki núna.. . gegnum
Rauchstrasse, ég bíð þín þar...
Hiram... “
„Jú, ég kem,“ svaraði Hiram
Holliday.
Framhald í næsta blaði.
iimiimimmiiimmiiimiiiiimiiimiiiiiii
SPARISJÓÐUR
VÉLSTJÓR/V
Annast öll
venjuleg spari-
sjóðsviðskipti.
Opið daglega
kl. 13.80—17.30
föstud. 13.30—18.30
lokað laugardaga.
iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
197
VÍKINGUR