Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 13
Paul (jallicc: J) nátiícf i tiií 4auiam Framhaldssaga G. Jensson þýddi Hann snæddi miðdegisverð hjá Horcher, portúgalskar ostrurmeð vott af eirgrænubragði og dýra- hrygg í rjómasósu. Þetta var dýrðleg máltíð. Hann tók sérstaklega eftir, að meðal gestanna voru þó nokkrar glæsilegar konur, bjartar á hör- und, en frekar í framkomu. Þær orkuðu á hann með æsilegri en óþægilegri kennd. Hann hafði í vitund sinni áhrifin af inni- byrðri ástarþrá þeirra, dýrslegri girnd, sem þær höfðu verið aldar upp við í þeim tilgangi að þjóna þriðja ríkinu kynferðislega til að framleiða hrausta hermenn. Þær virtust aðeins þrá að fullnægja frumstæðustu skipulögðum hvöt- um sínum. Það var einhver sjúk- leg uppreisn í fari þeirra. Ófersk ástarþrá. „Þá er nú eitthvað annað upp- lit á „dömunum“ í París,“ hugs- aði Hiram Holliday. „Þar hafa þær leyfi til að elska eftir tilfall- andi áhrifum; án þess að spyrja kóng né prest!“ Eftir kvöldverðinn labbaði Hir- am sig út á Kurfiirsten Damm, meðal fólks, sem þar var á skemmtigöngu, framhjá veitinga- húsum, ölkrám og verzlunum. Það var einhver ónota pirringur í Hiram, eitthvað svipað og á meðan hann mataðist. Taugakerfið hans skynjaði eitt- hvað óeðlilegt. Það herti á háls- vöðvunum. Það voru einkenni, sem hann hafði áður fundið, en sem hann lærði að skynja, — og þau þýddu: Hætta á ferðum- Hann nam staðar við þekkta forngripaverzlun með fullt af dýrmætum listmunum úr postu- líni, marmara og eirblendingi. Þar gaf að líta ómetanleg lista- VÍKINGUR verk eftir málarann Diiren, austurlenzk bænateppi, lítill upp- mjór bláleitur vasi, minnti á hina ódauðlegu kínversku list, og þarna var einnig lítil slagharpa, sem Mozart hafði leikið á í sinni tíð. Hiram langaði til að ganga inn, leggja hendur sínar á þetta gljáfægða hljóðfæri og finna á- hrifin af hljómfegurð þess og innlifaðri tónlist fortíðarinnar. En verzlunin var lokuð og á glugga hennar stóð með stórum hvítum stöfum: Herchell Jacob- sen — Berlín, París, London, New York. Það fór hrollur um Hiram og hann hafði sig á burt. Klukkan var þegar þrjú að nóttu og hann hélt áfram göngu sinni um þá staði, sem hann hafði merkt hjá sér á ökuferðum um borgina. Strætin voru um það bil auð. Einstaka bifreið sást bregða fyr- ir. Að öðru leyti ríkti kyrrð og þögn. Hann hélt næturröltinu áfram, hafði brett upp frakkakraganum því nóvemberloftið var hráslaga- legt. Staðnæmdist við auglýs- ingasúlur, þar sem upplímdar voru opinberar tilkynningar inn- anum auglýsingaspjöld og leik- hússdagskrár. Þar á meðal gat að líta stórt blóðrautt spjald með svörtu letri. Það var í fyrsta skiptið sem hann las eina af þess- um ógnvekjandi tilkynningum með nöfnum á fólki, sem háls- höggvið hafði verið fyrir landráð í garði hins gamla fangelsis- garðs- Hiram gat jafnvel skilið innihaldið. Þar stóð, að Johann Grosch og Hertha Vieralt hefðu verið líflátin um morguninn fyrir Landesverrat. Hrollur fór um Hiram. Hann snerti skiltið með fingurgómun- um, eins og hann byggist yið ein- hverjum áhrifum við snertingu þess, — en hann fann engin á- hrif. Hann leit á armbandsúr sitt. Klukkan var fjögur að morgni hins lO.nóvember 1938. Samtím- is heyrði hann klukkuna í turni Gedáchtnis-kirkjunnar slá tíma- slögin. Við fjórða slagið skalf gangstéttin undir fótum hans af ægilegri sprengingu skammt í burtu, eftir fyrstu sprenginguna fylgdi önnur, þriðja og fjórða. Þær tóku við sem kaldhæðnislegt bergmál af slögum kirkjuklukk- unnar. Hiram vissi upp á hár hvaðan þær komu. — Fasanen- Strasse var aðeins hálf húsasam- stæða í burtu og þar stóð stórt og skrautlegt Gyðinga bænahús. Hann hljóp fyrir hornið og sá þegar fjórar reyksúlur stíga til lofts frá þaki byggingarinnar og eldslogum brá fyrir úr tveim þeirra. Samtímis heyrði hann hrópin, sem áttu eftir að berg- mála um gjörvalla Berlín næstu dægur við undirleik brothljóða glers og annarra verðmæta: Juda verreckel. ■— Tortíming yfir Gyð- ingdóminn! Það var sem stræti og breið- götur vöknuðu af svefni, við að fjöldi fólks kom æðandi út úr dimmum íbúðum sínum. Bifhjól og brunabílar heyrðust nálgast. Hiram kannaðist aftur við brún- skyrtur hinna illræmdu SA- manna og hin svörtu silfurslegnu einkennisföt SS-liðanna. — Hinn vaxandi mannfjöldi var sýnilega rólegur, en endrum og eins heyrð- ust hatursfullar athugasemdir og fótaspark. Það var líkast því að heljarstór slanga skriði áfram og veltist yfir strætin. Frá fjarlæg- ari borgarhlutum hljómuðu sprengingarnar eins og hljómlaus bambusslög. Eldtungurnar tóku að leika um hvolfþak hins glæsi- lega bænahúss. Bálköstur var hlaðinn á miðri götunni fyrir framan það, og stígvélaðir menn í leðurjökkum hlupu út og inn um aðaldyrnar. Þeir toguðust með bækur, skjöl, skrautmuni, 193

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.