Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Síða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Síða 18
Jóhann Klausen: SÍLDARTUNNUR í 3.—4. tölublaði Víkings er athyglisverð grein eftir Guðfinn Þorbjörnsson um „Síldartunnur og aðrar tunnur." Við grein þessa vil ég engu bæta að sinni, en aðeins geta þess, að Norðmenn eru þegar farnir að nota plast- umbúðir, a.m.k er þeir ganga frá síld til sölu á innanlandsmarkað í smærri pakkningum. Það er upphafið að notkun plastumbúða í stærri stíl. 1 3. tölublaði Ægis 15. febrúar 1958 ritaði ég grein um svipað málefni. Læt ég greinina fylgja til endurprentunar í Viking. Það eru liðin 9 ár, síðan ég vakti máls á þessu, og er grein Guðfinns það fyrsta, sem ég hefi séð eða heyrt um þetta síðan. Ég veit ekki til, að nokkrar tilraunir hafi verið gerðar hér á landi með söltun síldar í plastílát, sem þeg- ar eru til af ýmsum gerðum, og enginn vandi er að fá búin til, sem henta mundu til þessara hluta. — Fyrir mörgum árum ræddi ég þetta við síldarmats- stjóra og Gunnar Flóvenz, skrif- stofustj óra Síldarútvegsnefndar, en hvort þær stofnanir hafa nokkuð aðhaf st, er mér eigi kunn- ugt. Má merkilegt heita, ef slík- ir aðilar hafa ekki opin augun fyrir öllum hugsanlegum úrbót- um á þessu sviði. „Bætt verkun og vinnuskilyrði. í 7. tbl. Ægis 1957 ritar Hólm- steinn Helgason frá Raufarhöfn grein, er nefnist „Öfugt stefnt." Þetta er í höfuðatriðum ádeila á Síldarmat ríkisins og margt, sem þar kemur fram, þess vert, að um það sé rætt, þótt ég hafi hvergi getað rekizt á undirtektir né mót- mæli. Að þessu sinni er það held- ur ekki ætlunin að gera grein Hólmsteins að umræðuefni, en aðeins geta hennar sem framlags til úrbóta. Það segir sig sjálft, að þær þjóðir, í þessu tilfelli fiskveiði- þjóðir, sem vilja og nauðsynlega þurfa að standa jafnfætis og helzt að komast fram úr öðrum í vöruvöndun, eru tilneyddar að að hafa vakandi auga með ýms- um nýjungum á sviði fiskveiða, fiskiðnaðar, vörusölu og flutningi svo og þeim möguleikum, sem fyrir hendi eru hverju sinni að koma með nýjungar. Hér á landi eru til tvær stofn- anir, Fiskimat ríkisins og Síld- armat ríkisins, er hafa yfir- stjórn hvort á sínu sviði. Frá hinu fyrrnefnda heyrist oft. Það birtir tíðum skýrslur um niður- stöður merkilegra rannsókna, segir frá ferðalögum til markaðs- landa og nýbreytni í saltfisk- verkun, er það stendur fyrir, svo eitthvað sé nefnt. Hinsvegar þeg- ir Síldarmatið, annaðhvort fyrir óheppilega hlédrægni eða þá ein- faldlega vegna þess að það hefir ekkert að segja. Það hefst sem sé ekkert það, er leitt geti til úrbóta í síldarverkun, er í frásögur sé færandi. Hvað kemur þarna til? Getur það verið, að þessum annars ná- skyldu stofnunum sé mismunað fjárhagslega og Síldarmatinu sé þess vegna nauðugur sá kostur að halda að sér höndunum? Úr þessu væri gott að fá skorið, en ekki aðeins það — á því þarf einnig að verða breyting. En nú skulum við fara svolít- ið aftur í tímann. Við tökum okk- ur það leyfi að tilfæra glefsur úr bókum Ástvalds Eydal fil. lic. 1 bókinni „Silfur hafsins" á blað- síðu 36 segir, að síldveiðarnar á Skáni hafi náð hámarki á tíma- bilinu frá lokum 12. aldar til miðrar 16. aldar, og á blaðsíðu 37: „Saltendum varþáþegarljóst, að vanda bæri verkunina sem mest, og að tunnur og salt yrði að vera af beztu tegund. Tunn- urnar áttu að vera af ákveðinni stærð og búnar til af löggiltum tunnusmiðum" og á bls. 38: „Skánska síldin var í miklu áliti og var einvöld á markaðinum, þangað til hollenzka síldin út- rýmdi henni, vegna þess að ný verkunaraðferð var tekin upp og til þeirrar vöru ennþá betur vandað.“ Og á bls. 24 í bókinni „Síldveiðar og síldariðnaður" segir svo: „Hornsteinninn að yfirburðum Hollendinga í síld- verkun lagði William Beukels um miðja fjórtándu öld. Hann fann upp nýja verkunaraðferð. Hann lét kverka síldina og salta hana með þurru salti í tunnur, en áð- ur hafði hún verið lögð í pækil.“ Þessar tilvitnanir eru upp teknar svo menn minnist þess að það eru mörg hundruð ár síðan farið var að verka síld á svipað- an hátt og gert er enn þann dag í dag og það, sem merkilegra er, að ílátin skuli vera hin sömu, tunnur úr tré. Undanfarin ár, næstum á hverju þingi, hefur verið rætt um aukna framleiðslu Tunnu- verksmiðja ríkisins og jafn- framt að byggja fleiri slíkar. — Ekki skal hér mælt á móti þeirri nauðsyn að flytja sem mest af þeirri smíði inn í landið, síður en svo. En þá erum við líka komin að þungamiðju þessarar greinar, því sem henni er ætlað að vekja athygli á. Er ekki kominn tími til að hætta smíði íláta undir síld úr tré? Nú eru miklir uppgangs- tímar allra gerfiefna. Það eru smíðaðir björgunarbátar úr plasti, skíðastafir úr glasfiber og nú hér á landi nótabátar úr svip- uðu efni, svo við nefnum eitt- hvað. Væri nú ekki reynandi að nota eitthvað slíkt í síldarílát, gera tilraun með það? Skjóta svo keppinautum okkar um markað- inn ref fyrir rass ef vel tækist. Því fé væri ekki illa ráðstafað og og slíkt ílát úr gerfiefnum mætti vera dýrt, ef það kostaði meira en gamla trétunnan með sínu vafasama innihaldi, komin VÍKINGUR 198

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.