Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1967, Qupperneq 19
um borð í flutningaskip. Það vita ekki aðrir en þeir, sem reynt bafa, hve gramt hún hefur gert í geði, matsmanninum, beykin- um, eigandanum. Við tilkomu nýrra íláta undir síld mundi annar útbúnaður við síldarverkun e. t. v. breytast nokkuð. Hnoð, gjarðir, dixlar, drífjárn og fleira slíkt yrði úr sögunni.Hinumnýju ílátum verð- ur lokað á allt annan hátt, þau drekka hvorki í sig pækilinn né leka honum og eru öll steypt í sama mótið. Þótt okkur tækist að smíða fyrrnefnd ílát, hentug að gerð og lögun, með hóflegum tilkostnaði, eigum við síður en svo að láta staðar numið. Það er enn mikið hægt að bæta meðferðina á hrá- efninu um borð í veiðiskipunum. Núverandi aðstaða til losunar á síld til söltunar er ekki góð. Vél- arnar eiga að taka við því hlut- verki að hausskera og slógdraga síldina, vöðla upp úr salti og jafnvel að koma henni í hin væntanlegu nýju ílát. Það er eng- inn kominn til að segja að þau gætu ekki verið þannig úr garði gerð að með vélum yrði mögu- legt að leggja síldina nægilega vel niður og um leið að vigta salt og hráefni nákvæmlega í hvert ílát. Reynist slíkt framkvæman- legt væri óhætt að strika að miklu leyti yfir það erfiði og þras, er oft á sér nú stað við yfirtöku. Þetta ætti að vera nóg til að vekja menn til umhugsunar. Það fellur undir Síldarmat ríkisins að standa fyrir slíkum tilraunum sem hér eru nefndar og gera til- lögur til viðkomandi ráðuneytis. Verði ekki af slíku gæti ráðu- neytið máske ýtt við Síldarmat- inu?“ Ski|> írá finim þjóáum. Skip þessi voru öll á sania tínia í viðgerð úti í New York hjá Bethlehem Steel skipa- siníðastöðinni. Talið frá vinstri: M/s TaranteJ, Noregi; ni/s Havloni, Norcgi; s/s Slialoin, Isracl; s/s Tuluea, Mexico; s/s Loide Pcrú, Brazilíu; s/s Exilona, Bandaríkjununi. Olíuóhreinkun sjávar. Eftir „Torrey Canyon“ slysið hefur víða verið hert mjög á eftirliti með olíuóhreinkun sjávar. Board of Trade í Bretiandi hafa varað sjófarendur við að dæla olíu í sjó við Bretlandsstrendur og halda strangan vörð, með skipum og flugvélum, svo hætta á kærum og refsingu er mikil. Engin hámarkstakmörk eru fyrir bótakröfum þeim, sem gera má á hendur skipstjórum, sem gerast brotlegir við hin brezku ákvæði um olíuóhreinkun á svæðinu umhverfis Bret- land, kemur jafnvel fangelsisvist til greina. Sem dæmi um það, hve alvarlegum augum er litið á olíu- óhreinkun sjávar erlendis, má nefna að norskir skipstjórar hafa verið dæmdir í 400 ástralska punda sekt fyrir óhreinkun sjávar nálægt höfninni í Melbourne og £50 sekt og 20 í málskostnað fyrir að óhreinka enska höfn. Ennfremur hefur vélstjóri nokkur á norsku skipi verið kærður fyrir það að lensa hreinu kjölfestuvatni í gegnum dælu og leiðslur, sem rétt áður höfðu verið notaðar við dælingu á dieselolíu. Enskur dómstóll hefur nýlega dæmt útlendan skipstjóra í £750 sekt fyrir að hafa dælt hráolíu í sjó við Bretlandsstrend- ur, og sennilegt er að auk þess verði gerðar bótakröfur á hend- ur eigendum skipsins að upphæð £27.000. SKIPASKOÐUNAKSTJÓRI. —___________________________________________________________0 VÍKINGUR 199

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.