Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1969, Blaðsíða 40
Samningánefnd yfirmanna í kjaradeilunni. Frá vinstri: Eiríkur Jónsson, Björn Bjarnason, Jón Gíslason, Arthúr Sigurbergsson, Björn Ó. Þorfinnsson, Árni Gíslason, Orn Steinsson, Ingólfur Stefánsson. — Standandi frá v.: Svanberg Magnússon, Jón S. Pétursson, Einar Ásgeirsson, Karl Sigurbergsson. Á myndina vantar Ingólf Ingólfs- son vélstjóra, fulltrúa frá Hafþór, Akranesi, Veröanda Vestm.eyjum og Skipstjórafélagi Norðlendinga. Sannleikurinn í bdtadeilunni — Framh. af bls. 3 tryggingu myndu skipstjórar fara sér hægar í allri sókn. Vest- firðingarnir sýna okkur allt ann- að. ,,Útgerðin á heljarþröm“ heyr- ast líka rökin. „Hvernig á a'ö greiða slíkar upphæðir þegar ekkert fiskast?“ Svarið við þessu er ákaflega einfalt. Hagfræðigrundvöllur landsins er rangur. Það er stað- reynd, að þjóðin lifir á fiskveið- um, þar getur ekki verið um neitt tap að ræða, heldur misgóð út- koma, að öðrum kosti myndum við ekki lifa. Allur efnahagsreikningur okk- ar byrjar ofan frá og niður eftir. Því er það, að við fáum út tap á undirstöðuatvinnuvegunum og alla erfiðleika í rekstri útgerðar. Allir aðrir eiga fyrst að fá sitt, útgerðarmenn og sjómenn síðan sleikjuna. Ef reikningsaðferðinni verður snúið við og reiknað neð- an frá og upp, myndi dæmið líta öðruvísi út. Þá myndu útgerð og sjómenn alltaf fá fyrir sitt eftir aflamagni og verðlagi og aðrir í þjóðfélaginu hreyfast til með 40 þeim hreyfingum — upp eða nið- ur. Sjálfsagt er langt í land til að koma þessu í þennan eðlilega far- veg. Hagsmunaklikan á landi með völdin sín megin er of sterk til að noklcurs árangurs sé aðvænta. Greinilegasta dæmið um sönn- un þessa, voru ráðstafanir ríkis- stjárnarinnar gagnvart sjávar- útveginum með síðustu gengis- fellingu, sem eins og endra nær var talin gerð fyrir sjávarútveg- inn. Gengisfelling er þó ekkert úr- ræði til styrktar sjávarútvegi. Það hafa fyrri gengisfellingar þráfaldlega. sýnt, enda byggist okkar sjávarútvegur á of miklu erlendu fjármagni og rekstrar- vöru til að það standist. Viðbrögðin eftir gengisfelling- una til bjargar sjávarútveginum urðu lika þau, að laun sjómanns- ins voru stórlega skert og flutt yfir til útgerðar, svo tryggja mætti reksturinn. Eftir skýringar Jónasar Har- alds, aðalefnahagsmálaráðunauts rikisstjórnarinnar, hika ég eklci við að fidlyrða, að kjaraskerðing sjómanna var ákveðin minnst 27c/o miðað við landanir innan- lands. Jónas hefur skýrt frá því, að árleg hækkun fiskverðs miðist eingöngu við hækkanir kaup- gjalds í landinu almennt á und- angengnu ári. 8 % hækkun fiskverðs nú er því til samræmis við þær hækkanir á almennu lcaupgjaldi innan lands á síðasta ári og kemur því aðeins fram , að sjómaðurinn nái að veiða fyrir hlut. Kjaraskerðingin er því augljós 27c/o. Til viðhótar þessu fær sjómaðurinn sömu skerðingu á kjörum og landmað- urinn, sem mun ekki vera undir 15% eða kjaraskerðingu samtals Í2%. Getur nokkur sanngjarn mað- ur mælt með því, að sjómaðurinn einn allra launastétta skyldi neyddur til að taka á sig svona mikla kjaraskerðingu ofan á hinn rýra afla síðasta árs? Ég þelcki sjómennina það vel, að ég veit, að þeir myndu eklci færast undan að bera byrðir til jafns við aðra þegna þjóðfélags- ins, en að taka slíkri fruntagjöf sem 27% voru, gat enginn maður VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.