Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Qupperneq 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Qupperneq 4
Hér segir Jónas heitinn Jónasson, skipstjóri frá atburðum og draumi skip- verja eins um bor'Ó í kútter „Bergþóru" áriÓ 1904. SkráSi Jónas þetta eftir frásögn Karels Hjörtþórssonar, sem var þá skip- verji á „Bergþóru“ V______________________________________________________________________________________; Árið 1904 lagði kútter Berg- þóra úr Reykjavíkurhöfn í ver- tíðarbyrjun með fríðu föruneyti, því valinn maður var í hverju rúmi. Skipið var stórt eftir þeirra tíma mælikvarða og mesta happa- fleyta. Skipstjóri var Sigurður Guðmundsson úr Reykjavík. — Stýrimaður var Guðni Teitsson frá Hlöðunesi. Það var haldið sem leið liggur í bezta veðri, austur á Selvogs- banka og byrjað að fiska. Fiskur var talsverður, og útlitið með aflabrögð var fremur gott, en þar sem snemma var lagt út, þ.e. með marz-byrjun, mátti alltaf búast við frátökum og oft vondum veðr- um. Varð þá alltaf að sigla út, eins lengi og siglandi var, til þess að drifi frítt af Vestmannaeyjum í útsynningi, og frítt af Eldeyjar- skerjum í landsynningi, svo ef veðrin voru löng, tók það marga daga að komast upp á miðin aft- ur. Ef svo hvessti, þegar komið var á miðin, sem oft vildi verða, þegar tíðarfar var óstöðugt, þá varð að sigla út aftur. Af þessu leiddi svo, að ódrjúg urðu afla- brögðin og lítill hlutur, þegar að landi var komið, en svo var það aftur, ef góð var tíð, þá varð út- koman önnur og betri og oftkomu menn með góðan hlut í vertíðar- lok. Varð það að duga þeim mörg- um yfir veturinn, því lítið var um vetrarvinnu í þá daga. Þegar ekki var hægt að stunda veiðar vegna veðurs, var lítið að- hafst, nema standa vaktir, og var þá helzt til skemmtunar, að menn sögðu sögur, sem þeir kunnu, og sem hafði fyrir þá borið eða aðra, sem þeir þekktu. Var það oft góð skemmtun, því margir voru mennirnir og hver lagði til nokk- uð. Það var einhverju sinni um vaktaskipti, að einn af hásetun- um, Ólafur að nafni, austan úr * Þykkvabæ, kvað sig hafa dreymt einkennilegan draum, og virtist hann nokkuð dasaður eftir og hugsandi. Var hann þá beðinn um að segja drauminn, og buðust margir til að ráða og kváðust vera sérfræðingar á því sviði. Ól- afur sat hljóður nokkra stund og horfði í gaupnir sér, þar til hann leit upp og sagði: „Ég hafði ekki ætlað mér að segja frá þessu, það er bara draumórar og vitleysa, en úr því þið viljið endilega heyra það, þá var það á þessa leið: Eg þóttist koma upp úr lúkarn- um á þessu skipi, og þegar ég kom upp, sá ég, að dimmt var af nóttu. Ég sá engan mann á þilfar- inu utan einn, sem stóð við stjórn- borðsvantinn og fannst mér, að hann ætti ekki þar að vera, því þilfarið ætti að vera mannlaust, að mér undanskildum. Ég vék mér að þessum manni, en hann vék sér undan og aftur eftir þilfar- inu. Ég sá strax að þessi maður var ekki einn af skipshöfninni, ég hafði aldrei séð hann fyrr, og mér datt strax í hug, að þetta hlyti að vera skipsnissinn og ákvað að hafa nánari kynni af honum. Ég hélt því aftur eftir þilfarinu á eftir þessum manni, en hann dró sig alltaf undan, eins og hann vildi ekkert við mig eiga, og þeg- ar ég sá það, varð ég ennþá ákaf- ari að ná í hann. Leikurinn barst aftur eftir skipinu, þar til komið var aftast á skipið. Þá snéri hann sér snöggt við og leit á mig með ægilegum svip og sagði: Ólafur þagnaði snögglega. Það VÍKINGUR 182

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.