Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 14
fyrir sín ágætu madeira-vín, í öll- um sínum sætleika-tegundum, en í seinni tíð er hún orðin mjög vin- sæl sem ferðamannaland. Hér er hægt að stunda sjóböð allt árið, fara á sjóskíði, á stór- fiskaveiðar, túna-, sverðfiskveið- ar o. fl., eða bara liggja og sóla sig. Burðarmenn með bambus- stengur bera menn og konur í hengikojum um ströndina fyrir lítið gjald. Nautakerrur ognauta- sleðar fást leigðir, ef menn lang- ar til að fá hæga asalausa öku- túra úr í náttúruna. Madeira eru þrjár eyjar, ílha do Porto Santo, flha da Madeira og flhas De Sertas, og liggja þær um 345 til 390 mílur frá strönd Marokkó. Flestir íbúanna eru portúgalskir. Þó eru þarna Gyð- ingar, Márar, ítalir, Indverjar og negrar o. fl. o. fl. Portúgalska og spænska eru aðalmálin, en enska er aðallega töluð í Funchal. Sagt er að þegar Portúgalar á 15. öld fundu eyj- ar þessar, hafi þær verið óbyggð- ar. Þær hafa alltaf tilheyrt Portú- gal síðan að undanteknum þeim árum er Spánn réði Portúgal líka á fyrstu árum 19. aldar. Eldgígir eru þarna nokkrir, og landið er hátt með bröttum hlíðum, með myndríkri og fallegri skiptingu, fjallalæki með fersku og góðu vatni eins og hér. Loftslagið er þægilegt og landslagið yndislegt. Sjúkt og gamalt fólk frá Ameríku og Evrópu kemur þangað mikið á vetrum sér til heilsubóta, en þarf sennilega að eiga eitthvað af aurum til að standast ferða- og dvalarkostnaðinn. í dag rækta bændur þarna ban- ana, strawberry, mimósa, pálma, perur, sykurrófur, döðlur, fíkjur o. fl. o. fl. upp í 180/200 metra hæð, en lítill gróður er eftir að kemur upp í 760/770 metra hæð, en vínber eru ræktuð upp í 550 metra hæð. Ekki má gleyma handavinnu kvennanna. Þær eru heimsfrægar hannyrðakonur, og í gamla daga voru blúndur þeirra frægar við allar helztu hirðir Evrópu, bláar blúndur á hvítum grunni eða öf- ugt. Enn í daga halda þær sínum háa gæða standard og yfirburð- um, og hafa sett upp skóla í hand- .iðnum fyrir stúlkur, allt niður í 5 ára aldur. Efnið sem notað er, er silki, lín og gerfiefni. Dugnaður þeirra, iðni og smekkvísi er að- dáunarverð. Það er dimmt í loft, eða þoku- mistur þennan morgun, en brátt lyftir sólin þokumóðunni af, og allt baðar í sól og sunnan vindi. Jörð vor hefur mörg ljós sem lýsa, en ekki nema eina sól, líf- gefandi sól. „Eldur er beztur með ýta sonum, og sólarsýn, heillyndi sitt, ef maður hafa náir, án við löst að lifa,“ segja Ilávamál. — Makt myrkursins hefur ávallt verið mikil og stór, bæði í and- legum og veraldlegum skilningi. Við börn hinna björtu nátta, skiljum í hitabeltinu, þá miklu vizku Guðs, að láta það verða sitt fyrsta verk í veröld okkar, að skapa Ijósið, án þess hefðum við ekkert haft að gera við sjónina og aðrar góðar gjafir augans. Ljósið eyðir líka óttanum og eyk- ur vonina og lífsgleðina, og gerir okkur fært að rata vorn veg. — Ljósið er mikil blessun í lífi voru og sólin meistarastykki sköpunar- verksins. Við siglum áfram og komum til Canaríeyja þann 18. marz. Erum þvert af þeim um klukkan 12.00 og siglum á milli eyjanna La Palma og Gomera. Canaríeyjar eru 7 og nokkuð smáar. Þær eru staðsettar á milli 27. og 29. gr. N og 16. og 18. gr. V. íbúatala þeirra var 1965 908.718 manns, en er nú sennilega komin yfir milljón í dag. Eyjarnar tilheyra Spáni og skiptast í tvö sjálfstæð fylki, sem nefnd eru eftir höfuð- borgum þeirra, Santa Cruz de Tenerifa. Því tilheyra Las Palma, Comera og Hierro, og hitt Las Palmas de Gran Canaria, með Lazarot og Furteventura. Landsstjórimi býr í Santa Cruz de Tenerife og hefur hann undir-landstjóra í Gran Canarias Las Palmas, og svo fulltrúa á hin- um eyjunum. Málið er spönsku- mállýzka, en þar tala margir ensku, en Las Palmas de Gran Canaria er orðin meira sænsk og dönsk en nokkuð annað. Margir Svíar dvelja þarna allt árið, loftslagið er holt og hitinn þægi- legur, norðaustan vindur er þarna mikið ríkjandi. Lækir og ár fyrir- finnast þarna ekki og er lítið um vatn á eyjunum, og skapar það að sjálfsögðu sína erfiðleika og vandamál, sem ekki þarf að lýsa. Meðalhitinn í sjónum er 19 til 23 gr. á Celcius allt árið. Kaldast er loftið 18 gr., en heitast 25 gr. Á eyjunum má finna mikla fjöl- breytni í gróðri, eða allt frá hita- beltisgróðri til sólþurrkaðra auðna. Eldfjallagíga og snævi- þakta fjallatoppa, og einnig finn- ast þar fagrir blómfylltir dalir, t.d. Orotavadalurinn, sem enski landkönnuðurinn Humboldt skrif- aði um, sem fegursta stað er nokkurt mannlegt auga hefur lit- ið. Canarí-eyjar voru vel þekktar fyrr á tímum. Þær voru kallaðar lukku-eyjar eða gleði-eyjar. Árið 1492 byggði fransmaður, Jean Bethencourt, eyjuna Lanzar- ote. Hann fann þar innfædda, sem lifðu á steinaldarstigi. Gran Canarias voru numdar 1478 af hinum frönsku konung- um Kastaliunnar. Ibúarnir voru Ijósir á hörund, mjög frumstæð- ir, og kallaðir Guanchas, skildir Berbum Afríku. Þeir hafa bland- ast og samlagast spönsku inn- flytjendunum. — Hinn spænski hershöfðingi Juan Rejon lagði grunninn að hinni núverandi höfuðborg, Las Palmas. Þaðan hóf Columbus á sinni frægu siglingu, ferðina vestur um haf. I enda 15. aldar fékk Spánn aftur Canaríeyjar, eftir nokkra baráttu og orustur hinna hug- rökku eyjabúa við frönsku setu- liðsmennina, sem aldrei voru mjög fjölmennir. Þessar eyjar eru líka eldfjallaeyjar og er ekki lengra síðan en 1909 að eldgos varð, og hraun rann á Tenerife. Um gróður þarf ekki að ræða. Hann er svipaður og á hinum áðurnefndu eyjum. — Bændur rækta kaffi, sykurreyr, döðlur og fíkjur, banana og perur, og hveiti VÍKINGUR 192

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.