Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 39
Þormóður Hjörvar: ELDSTÖLPINN til þess að gera þær athyglisverðari, svo sem fari vindhraðaspá yfir 9 til 10 vindstig, komi þá inn orðið stormviðvörun. 10. Bendum við skipstjórnarmönnum á að senda veður- skeyti til veðurstofunnar, í auknum mæli. Nefndin vill beina þeim tilmælum til skipstjórnarmanna, að hafa meiri samvinnu og samfylgd í vondum veðr- um. Sigling meðfram Vestfjörðum í vondum veðr- um og ísingu er mjög varhugaverð. Skipstjórnar- menn ættu því að hafa það ríkt í huga við slíkar aðstæður, að leita vars á fyrsta hentugum stað, í stað þess að strekkja til heimahafnar. 11. Auka þarf eftirlit með eldfærum og hitunartækjum skipa. Koma þyrfti á reglulegri skipavörzlu í höfn- um inni, og komi til mála hvort tryggingarfélög skipa ættu ekki að hafa forgöngu í þeim málum. Sturla Halldórsson (sign.) Jakob Þorláksson (sign.) Baldur Jónsson (sign.) Símon Helgason (sign.) Amór Sigurðsson (sign.) Jónas Björnsson (sign.) Halldór Hermannsson (sign.) D lestin stöðvast við brautar- pallinn á Atlantic Ave.-stöðinni í Brooklyn, New York. Við komum úr neðanjarðargöngunum, þar sem skerast Atlantic Ave. og Flatbush Ave. Við göngum spöl eftir Flatbush Ave., beygjum til hægri, inn 7. Ave., þar til við komum að fyrstu þvergötunni, Sterling Plaza. Á horninu stendur einna hæðar bygging, úr ljósum múrsteini. — Bygging þessi stingur dálítið í stúf við byggingarnar í kring. Hér er til húsa jarðarfararstjóri, og er það dálítið kaldhæðnislegt, miðað við það sem hér skeði. Við hliðina á útfararstofnuninni er autt, afgirt svæði. Nú er það ekki venjulegt, á þessari öld bílastæð- ishungursins, að sjá auð afgirt svæði. Innan girðingarinnar má sjá einstakan hliðarstólpa, úr kalksteini. Einnig sér móta fyrir þrepum úr steini. Hér stóð áður kirkja, sem bar hið táknræna nafn, Eldstólpinn. (The Pillar of Fire). Rétt fyrir jólin, að mig minnir 1960, í kafajdshríð, kom þjótandi úr kófinu þota, næstum í heilu lagi. Þotan skall á kirkjunni, sem Framh. á bls. 220 VÍKINGUR 217

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.