Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 38
Alyktun Bylgjunnar um öryggismái Nefnd sú, sem kosin var á fundi, sem haldinn var í skipstjóra- og stýrimannafélaginu Bylgjan, sunnudaginn 9. febrúar 1969, skilar frá sér eftir- farandi álitsgerð, varðandi sjóslysa- og öryggismál fiskibáta á Vestfjörðum. 1. Öll skip, sem stunda veið'ar yfir haust- og vetrar- mánuði úti fyrir Vestfjörðum, ættu að vera útbúin með járnlúgur, og sérstök áherzla skal lögð á það, að lúgur séu skálkaðar og vel frá þeim gengið eftir hverja löndun. 2. Líta skal vel eftir að útbúnaður lensporta sé í góðu lagi. Fara ætti fram athugun á vegum Skipaskoð- unar ríkisins á endurbótum á lensportum (austur- opum), þar sem komið hefur í ljós að útbúnaður á þeim hefur á mörgum skipum reynzt óheppilegur í ísingaveðri. 3. Athugun fari fram á vegum skipaskoðunarinnar á því, hvort ekki væri rétt að byggt væri yfir báða ganga á skipum, allt niður í 60 brúttólestir, úr stáli eða áli, með tilliti til aukinnar sjóhæfni þeirra, og væru þau skýli algjörlega lokuð. 4. Athugun fari fram á því að losa skip, yfir vetrar- mánuði, við þá hluti, sem tilheyra öðrum veiðiskap. Svo sem ýmislegt sem að síldarútbúnaði lýtur, t.d. of há skjólborð, bassaskýli, síldargálga og auka bómur, nótablakkir og bátsuglur. Skipum verði gert að skyldu að hafa mastursbómu niðri á siglingum yfir vetrarmánuðina, og verði þannig gengið frá út- búnaði þeirra að hægt sé tryggilega og auðveldlega að hífa hana niður í hvernig veðri sem er. Ábend- ingar þessar eru gerðar með það fyrir augum að minnka yfirísingu. Auka þarf útsýni í ísingu úr stýrishúsi með fleiri hverfirúðum, og miðað við að- stæður hér á Vestfjörðum, ætti að minnsta kosti ein af hverfirúðunum að vera í yzta glugga framan- til á bakborða. 5. Komið hefur fram við síðasta skipstapa hér úti fyrir Vestf jörðum, að miklir erfiðleikar voru á því að sjósetja gúmmíbát, sem staðsettur var á stýris- hússþaki, vegna þrengsla af ýmsum tækjum, sem þar voru staðsett. Komst hann í þessu tilfelli ekki óskemmdur í sjóinn. Bendir nefndin á að rétt væri af hálfu skipaskoðunarinnar að athugun færi fram um betri staðsetningu gúmmíbáta og útbúnaði við sjósetningu. Athuga þyrfti, hvort minnka mætti matar- og drykkjarföng í gúmmíbátum og setja í staðinn ullarfatnað. Einnig verði gert að skyldu að vara rafhlöður fyrir neyðartalstöð séu í hverjum gúmmíbát. Skipstjórnarmönnum er bent á að skipta sem oftast um rafhlöðurnar í neyðartalstöðinni og æfa sig í notkun hennar. Skipstjórnarmönnum ber að hafa ríkt í huga að taka tillit til þagnartíma á neyðarbylgjunni. 6. Skipstjórnarmenn skuli fylgjast vel með kjölfestu skipa sinna. Fá allar upplýsingar um þaðhjáSkipa- skoðun ríkisins, hve mikið magn af steypu sé í kili skipsins og bæta við salti eða öðru í þess stað, ef þurfa þykir, og ættu þeir útreikningar einnig að vera í höndum skipaskoðunarinnar. Sérstaklega á þetta við um tréskip, en einnig skal fylgjast vel með kjölfestu í stálskipum. Ber þá að hafa ísingar- hættu í huga í þessu sambandi. Gengið sé þannig frá kjölfestunni, að hún geti ekki haggast. 7. Nú á seinni árum hefur í sum skip verið settur ör- yggisútbúnaður á vélar. Öryggisútbúnaður þessi stöðvar vélina, missi hún kælivatn eða smurningu. Svo kann einnig að fara, fái skipið á sig mikinn halla. Varast skal því að hafa þennan útbúnað virk- an í aðgæzluveðrum. Komið hefur í ljós við mikinn halla skipa, að gangskiptir hefur orðið óvirkur. At- hugun fari fram á vegum skipaskoðunarinnar, hvort ekki sé hægt að fyrirbyggja slíkt. 8. Auka þyrfti fræðslu í Sjómannaskóla íslands, varð- andi meðferð skipa og báta í vondum veðrum, í ís- ingu, siglingum í ísreki, siglingum skipa nærri landi og ýmsu öðru varðandi almenna stjórn skipa, við störf á hafinu, svo og bætta umgengni í skipum. Einnig þarf að koma á fót almennri fræðslu í út- varpi og sjónvarpi, af þar til hæfum mönnum, varð- andi þessi mál. Nefndin mælir eindregið með fram- komnum tillögum varðandi skólaskip, rekið til þjálfunar sjómannsefna. 9. Auka þarf veðurþjónustu úti fyrir Vestfjörðum, ef tök eru á. Nefndin tekur það fram, að hún gerir sér fulla grein fyrir þeim örðugleikum, sem eru á því að gera ýtarlegar veðurspár fyrir Vestfirði. Nefnd- in bendir á að breyta mætti orðalagi í veðurspám, VÍKINGUR 216

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.