Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Blaðsíða 17
Cotonou 86.000 manns, en hefur fjölgað. Járnbrautarbrú gengur yfir fljótið Lac Nokue ca. hálfa mílu frá ármynninu. Höfnin er góð og nýbyggð, og í járnbrautarsambandi. — Vatn er gott þarna og er lagt fram á garð- ana. Þarna voru 9,5 tonna kranar og þrír 10 tonna og 3 tveggja tonna til losunar skipa og til for- færinga á viðlegugörðunum. 10 dráttarbátar voruþarfyrir hendi, en þarna er brimasamt og oft erf- itt í sjóinn. Hafnargarðarnir eru sterkir og gerðir úr stórgrýti, og aðalviðlegugarðarnir eru aðeins 4ra ára. Flugvöllur er rétt fyrir utan borgina, og þaðan er haldið uppi flugferðum til Biaframanna, og eins er flogið frá San Tome og Fernando Po með skreið og mat- væli á vegum Rauðakrossins. — Þetta þekkja allir svo vel af frétt- um að óþarft er að fara nánar inn á það. Um 400 skip koma til Cotonou árlega. Járnbraut tengir Contonou við Parakou og við Grand Popo í vesturhluta landsins. Eins liggur járnbrautin til Porto Novo að austanverðu til Pobé. Götur allar eru malbikaðar og frekar góðar, ef borið er saman við okkar. Alle de France er ný breiðgata og eru við hana margar stórfallegar byggingar, sendiherra og sendi- ráða og byggingar Sameinaðrar Afríku. Forsetahöllin, nætur- klúbbar o. fl. með fögrum húsa- görðum og gróðri. Alls eru göt- urnar í Cotonou 3.650 mílur. Da- homey er í síma- og loftskeyta- sambandi við umheiminn og Afríku. Árið 1963 var fólksfjöldi áætlaður 2.050.000 manna, en hef- ur að sjálfsögðu fjölgað síðan. Þetta er eitt þéttbýlasta ríki Afríku, því það er aðeins 47.000 fermílur, sem skiptast í fjögur umdæmi eða sýslur. Þó fátækt sé þarna mikil eins og allsstaðar í Afríku, er menntun almennt talin góð, ritmál og talmál er þarna mest franska og íbúarnir lítið blandaðir negrar. Dahomey fékk sjálfstæði í desember 1958 sem sjálfstætt land innan franska rík- isins, en fullt sjálfstæði í ágúst VÍKINGUR 1960. I október 1963 tók her- stjórnin völdin, og árið 1964 var stofnað lýðveldi, sem stendur enn og er stjórnað af 12 ráðherrum og þjóðþingi með 70 þjóðkjörnum þingmönnum. — Frakkar náðu þarna fótfestu 1851 og juku þarna áhrif sín. Árið 1894 var komin þar á konungsstjórn, svo Dahomey-menn hafa fengið að kynnast ýmsum stjórnarformum. Gull hefur fundist í Dahomey, og einnig járn og Cróme og sennilega eru þar fleiri málmar, en þetta hefur enn ekki verið unn- ið að neinu magni. Byggingar- steinn er til á nokkrum stöðum í Bas Dahomey, en annars eru hús mest byggð úr steinsteypu, og innfæddir byggja úr bambus, stráum og leir mjög frumstæð hús. Þeir rækta maís, linetur, kaffi og hirsikorn og fleiri næringar- jurtir. Einnig hafa þeir kýr, kindur og svín og mjög lágfættar geitur. Asnar og hestareruþarna, en virðast ekki mikið notaðir við dagleg störf. Við fórum nokkrir félagar að morgni hins 28. marz í ferðalag um borgina og svo inn í landið til gömlu höfuðborgarinnar Abomey. Þar horfðum við á vöruskipta- markað innfæddra í Abomey Cal- avi, sem var stórkostlegt æfin- Ilanu lnosii' sínu yndislcga lirosi og slair trmnlm sína. týri. Þar ægði saman matvælum, ávöxtum, fiski, fatnaði, skepnum allskonar, börnum og fólki á öll- um aldri. Þar er sjón sögu ríkari, því þessu öllu er ekki lýst í fáurc orðum, og ekki lyktinni heldur sem bæði var fjölbreytt og vond Hænsnin voru bundin saman i fótum, og geitakið og hindarkálf ar eru bornir á bambusstöngum hangandi á samanbundnum fót- unum. Það tekur tíma að venjast svona vafasömum meðferðum á skepnunum. Mannhafið er þarna mikið, og krakkar fjölmenna kringum okkur til að snýkja og skoða þessa frumlegu gesti frá íslandi. — Abomey telur 26.000 íbúa, og þorpið Ganvie, sem sótti markað þennan, telur 15.000 íbúa. Maður hefði getað haldið að helm- ingur íbúanna hefði verið mættur þarna og allir að selja og kaupa á víxl, og prútta. — Konur voru þarna í miklum meirihluta, með ber brjóstin í pils-gopum. Á á- standi brjóstanna mátti sjá aldur og hverfileik lífsblómans. Þar þekkjast ekki gerfibrjóst eða brjóstahöld. Við liéldum svo þaðan með vél- bát út á fljótið, sem þarna er grunnt, víðáttumikið og lygnt. Þar blasti við augum merkiieg- asta samsigling sem ég hefi séð. Hef þó siglt í mörgum konvojum. Tugir eintrjáningsbáta undir stjórn kvenna, sem bæði voru skipstjórar og drifkraftur bát- anna. Réru þær faglega og þjálf- að, sumar standandi, aðrar sitj- andi frá markaðsströndinni til síns heima, með bátana hlaðna af matvælum, reyr og ávöxtum og allskyns varningi, oft með há- fermi, seig þessi floti í áttina til vatnaþorpsins, þar sem börnin biðu í strákofunum úti á vatninu eftir mömmu, sem hafði brugðið sér til innkaupa í landi. Feðurnir og synirnir stunduðu á meðan veiðar á smáfiski fljótsins, með kastnetum sínum og annari veiði- tækni. Sumir þeirra höfðu komið sér upp fiskagirðingu eða eldisstöðv- um, þar sem þeir geymdu fiskinn, ef aflinn varð meiri en salan og 195

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.