Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Side 23
VÍKINGUR
Örnólfur Grótar Hálldaiiarson tekur vió verÓlaununum fyrir frækilegt björgunarafrek,
þegar Svanur ÍS—214 sökk út af Deild 29. jan. sl.
mikið hænsnabú úti á Seltjarnar-
nesi og vinnur enn langan dag og
strangan og verður ekki fundið á
honum lát. Steindór hefur skrifað
margt í blöð um hagsmunamál
sjómanna og er enn fullur áhuga
á því sem betur mætti fara í hög-
um þeirrar stéttar og er skemmst
að minnast skrifa hans um hin
tíðu sióslys, sem nú herja stétt-
ina. Hann getur trútt talað um
s.jómennsku, því hann sigldi mik-
ið í stríðinu síðasta og hefur
margt reynt.
Steindór Árnason er fæddur
27. des. 1897 á Réttarholti á
Skagaströnd, sonur hjónanna
Ingibjargar Pálsdóttur frá Syðri-
Leikskála í Köldukinn og Árna
Bónda Árnasonar frá Höfn. —
Steindór fluttist til Reykjavíkur
með foreldrum sínum 1911oghef-
ur átt þar heima síðan. Hann var
hér blaðasölustrákur fyrstu tvö
árin eftir að hann kom til bæjar-
ins, en fór þá á Hákon (áður kútt-
er Haraldur), sem Duus átti þá
og 1913 var hann á Langanesinu,
kútter, sem Milljónafélagið átti
og liefur því ekki byrjað á útgerð
neinna kotunga. Hann var á mót-
orbátum og árabátum næstu árin
og lauk farmannaprófi vorið 1920
og var síðan á ýmsum togurum
næstu árin. Fyrst á Þórólfi með
Guðmundi í Nesi í fimm ár, þá á
Hávarði ísfirðingi með Vilhjálmi
í þrjú ár, næst á Snorra goða með
Sigurði í fjögur ár og loks Andra
og fleiri skipum með Kristjáni
Kristjánssyni í 15 ár. Hann gerð-
ist skipstjóri á Agli rauðaogýms-
um skipurn þar til hann f ór í land,
en það var 1954. Hann var um
tíma framkvæmdastj óri austur á
Norðfirði. Nú rekur hann eitt
Haraldur Ólafsson er fæddur
22. marz 1904 að Breiðabólsstað í
Ölfusi og voru foreldrar Ólafur
Sæmundsson bóndi þar og kona
hans Guðrún Jónsdóttir. Harald-
ur réri fyrst þrjár vertíðir frá
Þorlákshöfn með Jóni Jónssyni
yngra á Hlíðarenda, en fór 1924
til Reykjavíkur og fór þar á
Guðjón Þráinsson varð lilutskarpasuir í stakkasundi. Hann er til liægri á myndinni og
Iieldur á bikarnum. í öðru sæti var Ásgeir Sigurðsson, sem sést til vinstri.
201