Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 24
 Gamlir víkingar að störfuui í Hrafnistu. Taliö frá vinstri: Jón Kristjánsson, Þorsteinn GiiÓimindsson, Guð'm. Guðjónsson, Suniarliði Eyjólfsson, Ingólfur Einarsson og Þórður Stefánssou. Veiðibjölluna til GuðbjartsÓlafs- sonar, en 1925 fór hann á Baldur til Þorgríms Sigurðssonar og þar var hann í 15 ár rúm, fyrst sem háseti, en síðar með bátsmaður hjá Þórði Hjörleifssyni og f.vlgdi honum yfir á Helgafellið nýja og var þar til 1955, er hann hætti á togurum. Hann fór þá á olíuskip- ið Hazell og síðar á Bláfellið og þar er hann nú og því ennþá starfandi sjómaður og fer að nálgast það að eiga fimmtíu ár að baki við sjóinn. Haraldur hefur alla tíð verið góður og virkur fé- iagi í Sjómannafélagi Reykjavík- ur. Hann var mikill fyrirmyndar bátsmaður á togurunum, en það er eitt erfiðasta starfið á þeim skipum. — Og Haraldur var skemmtilegur bátsmaður, sem gat slegið á léttari strengi mitt í streðinu um borð. Þrátt fyrir sinn erfiða starfsferil er hann enn teinréttur og sprækur og getuv áreiðanlega enn gert að gamni sínu um borð í Bláfellinu. Guðmann Hróbjartsson, vél- stjóri er fæddur 10. apríl 1892 í Oddgeirshóla-Austurkoti í Árnes- sýslu og voru foreldrar hans hjón- in Elín Jónsdóttir og Hróbjartur Jónsson. Guðmann fór fyrst til sjós á sautjánda ári á önnu Breiðfjörð, skútu frá Hafnarfirði, sem Bryde átti, en er það víst sama skútan og var í tíð Val- garðs Breiðfjörðs, eini seglatog- ari með bómutrolli, sem hér hef- ur nokkru sinni verið. Hann var næst kyndari á Marz með Þor- steini í Bakkabúð og þá á Great Admiral með Þórarni Olgeirssyni, en 1914 fór hann í Vélstjóraskól- ann og lauk þaðan prófi um vor- ið. Hann var á Ými, þegar hann strandaði sællar minningar í Sel- voginum 1916, en björgun skips- ins var hin mesta þrekraun, sem lengi verður í minnum höfð, því að skipshöfnin stóð í látlausum austri á annan sólarhring, en skipið var fullt upp í lúgur. Guð- mann sótti Gylfa út 1919 með Jóel Jóni Jónssyni og var síðan áfram á honum 1. vélstjóri þar til hann fór tii Tryggva á Júpiter 1928, einnig sem 1. vélstjóri, og hjá Tryggva hefur hann verið síðan eða í rúm 40 ár — og getur því sagt eins og í vísunni stend- ur . . hvort að við skiljum héðan af, hann veit er okkur saman gaf.. . Guðmann fór í land, þá á Nep- túnusi, 1954 og hefur síðan starf- að í frystiliúsi Júpiters og Marz á Kirkjusandi við vélgæzlu og vaktir nú á nóttum. Hann vinnur enn 363 daga eða öllu heldur næt- ur ársins, tekur sér frí á jólanótt- ina. Guðmann var einn af stofne’id- um Hampiðjunnar 1934 og hefur setið þar í stjórn í 35 ár og verið öflugur stuðningsmaður þess nytja-fyrirtækis. — Guðmann er kvæntur Ingibjörgu Sigurgeirs- dóttur frá Isafirði og eiga þau hjón 5 börn. Mikið orð fór alla tið af Guðmanni sem vélstjóra, enda bera skiprúmin því vott, að hann hefur ekki verið neinn auk- visi. Guðmundur J. Jensson f. 7. júlí 1905, að Hóli í Önundarfirði og voru foreldrar hans Jens Albert Guðmundsson, kaupmaður á Þing- eyri og kona hans Margrét Magnúsdóttir ljósmóðir. — Guð- mundur byrjaði sjómennsku 12 ára gamall og stundaði hana jafn- framt skólanámi, en hann er gagnfræðingur frá M.R. Hann var vélstjóri á ísl. fiskiskipum, fyrst 1924—26, síðan í siglingum á íslenzkum skipum, sem kyndari og undirvélstjóri á togurum 1928- 1930, lauk prófi úr Loftskeyta- skólanum 1929 og eftir það loft- skeytamaður á íslenzkum togur- um og fraktskipum þar til 1945, en þá gerðist hann framkvæmda- stjóri F.F.S.I. Ritstjóri Víkings varð hann 1962 og hefur verið það síðan. Guðmundur er tvíkvæntur, fyrri konu sína, Aðalheiði -Jó- hannesdóttur, missti Guðmundur 13. apríl 1953. Seinni kona hans er Guðmunda Magnúsdóttir. Guð- mundur á margt barna. Hann hefur alla tíð verið ötull baráttumaður fyrir málefnum sjó- manna og einskonar framvörður um langa hríð á ritvellinum. 202 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.