Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1969, Page 34
liann stóð við stýrið og hélt ferð- inni í horfið, fann hann til með Towson, ræflinum. Hugleiðingar lians tóku enda, er grannvaxin vera kom út úr káetuskýlinu, hik- aði sem snöggvast og tók svo hið gamla sæti sitt á háglugganum. „Kyrrt og friðsælt hér uppi, finnst yður ekki?“ sagði hann, er hann hafði beðið nokkra stund eftir því, að hún segði eitthvað. „Stjörnurnar eru mjög skærar í kvöld.“ „Talið þér ekki við mig,“ sagði ungfrú Alsen illþyrmislega. „Hvers vegna getur ekki þessi andstyggðar skúta verið kyrr? Það eruð víst þér, sem látið hana hoppa svona.“ „Ég?“ sagði stýrimaðurinn hissa. „Já, með þessu hjóli.“ „Þér getið verið viss um —“ byrjaði stýrimaðurinn. „Já, ég vissi að þér munduð segja það,“ sagði stúlkan. „Komið þér og stýrið sjálf,“ sagði stýrimaður, „þá getið þér séð.“ Honum til mikillar undrunar kom hún, hallaði sér mjúklega að hjólinu og lagði hendurnar smáu á hjólspælina, en stýrimaðurinn skýrði fyrir henni leyndardóma áttavitans. Þegar honum fór að liðkast um málið, vogaði hann sér að leggja hendurnar á sömu spæl- ina, og nú varð hann smám sam- an hugrakkari og studdi hana djarflega með arminum í hvert sinn er skeiðin valt til. „Þakka yður fyrir,“ sagði ung- frú Alsen og losaði sig kuldalega, þegar stýrimaður bjóst við nýrri veltu. „Góða nótt.“ Hún hvarf ofan í káetuna, um leið og dökk vera, sem var að strjúka stýrurnar úr augunum, stóð hjá stýrimanni og kímdi. „Heiðskír nótt,“ sagði sjómað- urinn, um leið og hann lagði hrammana á stýrishjólið. „Viðbjóðslegt,“ sagði stýrimað- urinn annars hugar, bældi niður andvarp, fór ofan og háttaði. Hann lá vakandi nokkrar mín- útur, vel ánægður með afrek dagsins, sneri sér og sofnaði. — Þegar hann vaknaði, þótti honum gott að verða þess var, að hin litla velta, sem verið hafði á skip- inu áður, var nú horfin, svo að það hreyfði sig varla. „Farþeginn var þegar kominn að morgunverðarborðinu. Skipstjórinn mun vera á þil- fari?“ sagði stýrimaðurinn, og ætlaði að taka upp þráðinn þar sem hann slitnaði kvöldinu áður. „Ég vona að yður líði nú betur en í gærkvöldi.“ „Já, þakka yður fyrir,“ sagði hún. „Þér verðið góður sjðmaður með tímanum,“ sagði stýrimaður. „Eg vona að ég verði það ekki,“ sagði ungfrú Alsen, sem hugsaði, að kominn væri tími til að slökkva einkennilegan blíðu- glama, sem kom fram í augum stýrimannsins. „Ég mundi ekki vilja vera sjómaður, jafnvel þó að ég væri karlmaður.“ „Hvers vegna ekki?“ spurði hann. „Ég veit ekki,“ sagði stúlkan hugsandi, en sjómenn eru yfir- leitt svo korkulegir, litlir menn, eru þeir það ekki?“ „Korkulegirsagði stýrimað- urinn eftir henni og það var hik í röddinni. „Ég vildi heldur vera hermað- ur,“ hélt hún áfram; mér geðjast vel að hermönnum — þeir eru svo karlmannlegir. Eg vildi að það væri hermaður hérna núna.“ „Til hvers?“ spurði stýrimað- urinn, eins og ólundarlegur skóla- drengur. „Ef hér væri slíkur maður núna,“ sagði ungfrú Alsen hugs- andi, „þá skyldi ég mana hann að klína mustarði á nefið á Towson gamla.“ „Gera hvað?“ spurði stýrimað- urinn forviða. „Klína mustarði á nefið á Tow- son gamla,“ sagði ungfrú Alsen og leit sem snöggvast af glashald- inu á myndina. Maðurinn var ekki með sjálf- um sér, hann hikaði sem snöggv- ast, og teygði sig svo í glashaldið, tók upp skeiðina, stóð upp fölur og einbeittur á svip og smurði í gremju hina fornfögru ásjónu matvörukaupmannsins. Grem j a hans minnkaði ekki við það, hvernig freistarinn hagaði sér, því að í staðinn fyrir að hæla honum fyrir hreystiverkið, hélt hún vasaklútnum fyrir munninn á sér og flissaði eins og hún væri viti sínu fjær. „Þar kemur pabbi,“ sagði hún allt í einu, er fótatak heyrðist uppi. „'Og þér fáið það!“ Hún stóð upp úr sæti sínu, vék sér til hliðar, svo að faðir hennar kæmist framhjá, og fór upp á þil- far. Skipstjórinn hlammaði sér á bekk, tók tepottinn, renndi te 1 bolla handa sér, og hellti því síð- an í undirbolla. Hann hafði rétt borið undirbollann að vörum sér, þegar hann sá yfir barminn á honum eitthvað, sem varð til þess að hann setti hann niður aftur, án þess að smakka á honum, og einblíndi á arinhilluna. „Hver — hver — hver djöfull- inn hefur gert þetta?“ spurði hann, með röddu sem var lík sem verið væri að kyrkja hann, og reis á fætur og virti myndina fyr- ir sér. „Eg gerði það,“ sagði stýri- maðurinn. „Þér gerðuð það?“ öskraði hann. „Þér? Hvers vegna?“ „Ég veit það ekki,“ sagði stýri- maðurinn hjárænulega. „Það var eins og eitthvað kæmi yfir mig allt í einu, og mér fannst ég verða að gera það.“ „En til hvers? Hvaða vit var í því?“ sagði skipstjórinn. Stýrimaðurinn hristi höfuðið kindarlega. „En hvers vegna vilduð þér gera annað eins apastrik?“ öskr- aði skipstjórinn. „Eg veit það ekki,“ sagði stýri- maðurinn þráalega; en nú er það búið, er ekki svo? og það er ekki til neins að tala um það.“ Skipstjórinn leit á hann með vandræðagremju. „Það er réttast fyrir yður að leita læknis, Jack, þegar við komum í höfn,“ sagði hann loksins; „ég hef tekið eftir því síðustu vikurnar, að þér haf- ið verið eitthvað undarlegur í VÍKINGUR 212

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.