Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Síða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Síða 14
INGÓLFS APÓTEK Selur lyfjaskrín, tyrir farþegaskip, vinnustaði, ferðabíla og heimili. INGÓLFS APÓTEK Aðalstraeti 4 (Fischersundi). Slmar: 11330 og 24418. ÚTGERÐARMENN! Vér erum umboðsmenn fyrir þýzku Dieselverksmiðjuna KLÖCKNER-HUMBOLT- DEUTZ, stærstu Dieselverksmiðju í heimi, hin elzta og reyndasta í sinni grein. Margra ára reynsla hér á landi. HAMAR HF. Símar: 22123 - 22125 Hann var alinn upp við sjó, ungan dreymdi um skip og sió, stundaöi alla ævi sjó, aldurhniginn fórst I sjó. í KJÖLFAR KÓLUMBUSAR Ferð norsks skipstjóra á „víkingaskipi44 yfir Atlantsliafið vakti heimsathygli Veturinn 1929—1930 sigldi norski skipstjórinn Gerhard Folg- erö skútu sinni um Atlantshaf eftir þeim slóðum, sem ætla má að Kristófer Kólumbus hafi farið cr hann rakst á Ameríku, Vestur- indíslcu eyjarnar, 1492. — Skip Folgerös var byggt mjög líkt Vík- ingaskipi, þaö er að segja stærð og lögun var nær hin sama og á Gokstað-skipinu svonefnda. Þessi sigling vakti furðu litla athygli austan hafs, og er þó afrek í m\eira lagi. Aö vísu var þetta feröalag að nokkru í auglýsinga- skyni farið, eins og fram kemur hér á eftir, enda voru fræðimenn þögulir um málið. Einn þeirra sagði meira að segja í riti um víkingaski.p, er út kom 1942 að aldrei yrði aftur farið svipuð för og Magnús Andersen fór, með eftirlíkingu Gokstaðsskipsins til Ameríku 1893, rétt eins og þessi ágæti maður hafi ekkert vitað um siglingu Folgerös. Grein sú er hér fer á eftir, er byggð á dagbókum Folgerös skipstjóra á ferðalag- inu, en er hér mikið dregin sam- an. Haustið 1928 var Gerhard Folg- erö, skipstjóri, aftur heima í Nor- egi, eftir að hafa siglt hinum 86 feta báti, Leifi Eiríkssyni, til Am- eríku. Þá för fór hann til þess að sanna, að norrænir menn hefðu vel getað siglt til Vínlands á skip- um), sem voru allmiklu stærri. Skoðanir hans höfðu unnið sér fylgi, eftir að þriggja manna áhöfn hafði siglt bátnum við erf- iðar aðstæður og hrakviðri vestur um haf, og sérstaklega höfðu þeir verið hylltir í Ameríku. Heima fyrir var þó ekki haft neitt hátt um þetta, og hlutu sjómennirnir heldur litla frægð fyrir. Það var ekki litið á þessa för sem neitt afrek, sem hún þó sannarlega var. En þeir kunnu þá heldur betur að sýna sjómönnunum sóma í Ameríku, þessum þrem mönnum, sem höfðu drýgt allóvenjulegt af- rek. Borgin Duluth (við Superior- vatn í Minnesotafylki) keypti skeiðina, og þar stendur báturinn nú í Leifs Eiríkssonar garðinum og nýtur vinsælda hjá ferðamönn- og garðgestum. IIAII í.vrirlestra í USA Meðan Folgerö skipstjóri dvaldi i Bandaríkjunum var honurn boð- ið að halda fyrirlestra, þar á með- al í katólska félaginu „Riddarar Kólumbusar". Nafn félagsins bendir blátt áfram til þess, að menn ættu ekki að ganga eins nálægt heiðri Kólumbusar og Folgerö skipstjóri hafði gert. Þó varð að játa að víkingarnir hefðu getað siglt skipum sínum yfir hafið. Þar sem Folgerö skipstjóri og menn hans höfðu gert þetta, þá varð að beygja sig fyrir stað- reyndum. Því var þó haldið fram, að með þeirri gerð skipa, sem VlKINGUR 14

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.