Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Page 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Page 20
Kurt Larsen LUKKURIDDARINN SMÁSAGA „Hvort ég þekki spæjarann", sagði Lukkuriddarinn og strauk léttri hendi yfir umhyggjusam- lega greiðsluna. Hárið lá í breið- um sveipum niður yfir ennið. „Hvort ég þekki langa Meier? Hann hefur hirt mig þrisvar sinnum“. Síðast, það var daginn áður en ég varð tuttugu og fjögurra ára, ég var rétt kominn á fætur og gekk niður götuna, og hafði hvorki fengið vott né þurrt. Þá sá ég svo sem þann langa standa inn í porti, og um leið birtist götulögg- an. „Hvort ég vildi ekki verða samferða því að það væri maður, sem þættist eiga erindi ið mig“. Nú er ég ekki einn af þeim, sem er með leikaraskap við lögregluna eins og bróðir minn, því að hann vill helzt koma öllum stelpunum í hverfinu út í götudyrnar, áður en hann lætur undan, og þá verð- ur að binda hann rækilega þegar mest gengur á, en ég sagði við götulögguna: „Við skulum lofa Meier með, svo okkur leiðist ekki. seyði fyrst þér hirðið svona feitan bita fyrir allar aldir“ — ég þekki hann vel, piltinn, hann hefur að mestu leyti verið að þvælast á göt- unni undanfarin tvö ár. Svo fórum við niður á stöð og þá segir Meier við mig. „Nú verð- ið þér að gefa almennilega skýrslu í dag, Charles Jensen“. „Já“, segi ég, „það er að segja fyrst verð ég að fá einhvern morgunmat". „Já, guð hjálpi mér, það vant- aði nú bara; hvort ég hefði ekki fengið neitt að borða?“ „Nei, ég hef alls ekkert fengið“. „Hvað ég helst vildi?“ „Nú tvær vænar rúgbrauðs- sneiðar vel smurðar, hálfan pela og stórt ölglas; ég væri ekki með neina ósanngirni“. „Það skyldi strax koma“. Ég át og drakk; þá kom Meier aftur: „Jæja, verði yður að góðu, Jensen. „Þakka yður fyrir, Meier“. „Látið okkur nú í té reglulega skilmerkilega skýrslu um þjófn- aðinn!“ „Já, en ég gæti vel fyrst þegið kaffitár eftir matinn". Nei, nú var honum nóg boðið, ég ætti nú að geta gefið þokkalega skýrslu eftir það sem ég hafði þegar fengið. „Já, en hún verður greinilegri eftir einn fant af kaffi“. Þeir lufsuðust seint og um síðir með kaffið. „Þá er bezt að taka þjófnaðinn fyrir“, sagði Meier þegar ég hafði lokið við kaffið. „Þjófnað! Ég veit ekkert um þess háttar“. „Nú, við höfum nú ekki setið hérna og troðið yður út af mat og drykk til að hlusta á svona kjaftæði. Ég get hreint ekki áttað mig á, hvernig þér leyfið yður að bera svona lagað á borð fyrir okkur; það getið þér ekki einu sinni látið eftir yður við fyrstu yfirheyrslu. Þér getið ekki verið þekktur fyrir, Jensen, að bjóða dómaranum upp á þetta“. „Jú, það er nú mál á milli dóm- arans og mín, Meier“. Svo þvöðruðum við dálítið um þetta aftur og fram, því að ég hef nú þekkt Meier vel sæmilega lengi, og ég hélt áfram að rugla algera ráðleysu, því að þá vissi ég, að hann mundi gefa mér einn á kjammann. „Nei, hættu nú, fjandinn hirði mig, þú ert ekki maður til að standa í svona löguðu, góði minn, og nú er öllu lokið milli okkar tveggja; það þýðir ekki lengur að tala um skýrslu handa þér, má ég þá heldur biðja um einhvern ann- an!“ Ég hefði ekki átt að þúa hann. „Svo — þú þykist víst kunna eins vel til verka og ég; þú situr nú ekki á neinum kontór og skrif- ar, þótt þú getir eyðilagt skýrslu, sein við leggjum fyrir þig“. Hann varð að fara, hvort sem honum líkaði betur eða verr, ég var svo grjótharður að það togað- ist ekki orð upp úr mér. Þá sóttu þeir Nielsen fagi'a: „Góðan dag- inn, Charles Jensen, við skulum segja fimmtíu krónur fyrir rétta skýrslu án nokkurrar lygi“. „Já, fimmtíu krónur, þær geta svo sem komið sér vel; maður veit vel, að fyrir þjófnaðarskýrslu fær lögregluþjónninn tvöhundruð krónur, og þá getur sá, sem tek- inn er fastur gjarna fengið fimm- tíu; en fimmtíu krónur kalla ég ekki neitt til að leggja mikið á sig fyrir“. Jæja, en fimmtíu krónur hafði maður oft og mörgum sinnum þurft að ganga þung spor fyrir. „Já, en þeirra þarf ég ekki með, guði sé lof, ekki þegar ég er utan dyra, og það verð ég brátt aftur með guðs hjálp“. Þá gat hann ekki skilið, fyrst ég þénaði svona vel, hvers vegna VlKINGUR 20

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.