Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Page 24
Gunnar Magnússon fró Reynisdal:
Upphaf nýrrar húsagerðar
í Vík í Mýrdal
dómari, þá veit ég- vel af hverju
allt þetta kjaftæði stafar, og það
er af því, að ég er kominn í góðan
vinskap við litla stúlku, sem ég
þekkti áður og heitir Meta. Og
það var einmitt kvöldið eftir, að
Siðferðisnefndin tók Valborgu, og
það hefur hlaupið hland fyrir
brjóstið á henni úti í Þrælkun-
inni, því að þar fá þær fréttir um
allt, sem gerist í allri Kaupmanna-
höfn. En ef henni er einhver
huggun í þessu vatni og brauði,
sem ég fæ, þá gerir það mér ekki
neitt. Og það er að minnsta kosti
gott, að ég stend þar sem ég stend,
og ég fer ekki alveg í Húsið í
þetta skipti; því að þetta hefði
verið heldur ómerkilegt til af-
spurnar. Það hefði helzt þurft að
vera eitthvað m(eira“.
Lukkuriddarinn gerði smá hlé á
frásögn sinni:
,,Það varð sex sinnum fimm að
þessu sinni“, sagði hann svo, ,,og
síðan hef ég haldið mig fyrir utan.
Nú skipti ég mér heldur ekki
lengur af lauslátum konum eins
og Valborgu og hennar líkum;
litla kæra Meta mín kemlur hvern
dag á ákveðnum tíma til mín upp
í Gothersgötu í litlu íbúðina mína
og leggur peningana beint fyrir
framan mig á borðið. Og vinnuna,
sem hann vildi koma mér í, dóm-
arinn, hef ég sem betur fer ekki
verið neyddur til að útvega mér.
— Það sagði ég líka við þá þarna
uppi í réttinum, að vinnan, herra
dómari, hún væri að öllu leyti
mikil bölvun. Það höfum við að
minnsta kosti lært hjá kennaran-
umj í skólanum".------
Þýtt.
Höfðabakki í Vík í Mýrdal. Nú gistihús,
sem rekið er að kaupfélaginu.
í jólablað „Víkings“ 1972 rit-
aði óg grein um forna húsagerð í
Skaftafellsþingi hinu vestra. En
nú langar mig að geta að nokkru
um upphaf nýrrar húsagerðar í
Mýrdalnum, sem hófst fljótlega
eftir að verzlun komst á í Vík á
árunum á milli 1880 og 1890.
Það ræður að líkum, að það
hafi þótt ólíkt heppilegra þá er
hús skyldi reisa, að geta tekið út
úr verzlun allt það efni, er þurfti
til að fullgera það, allt tilsniðið
í vissar stærðir og lengdir, í stað
þess að verða að vinna rekavið í
planka og borð eins og áður tíðk-
aðist. Og bárujárnið kom að
sínu gagni í stað grjóthellunnar
á þökum og hlaðinna veggja.
Nýja húsagerðin á íbúðarhúsum
hófst með byggð í Vík.
Byggð úr 1 iinliri og járnvarin
Öll þau hús, sem þar risu í
kauptúninu voru fyrst framan af
byggð úr timbri og járnvarin. J.
P.T. Bryde kaupmaður, sem setti
á stofn verzlun í Vík um 1890,
byggði verzlunarhús sín úr
timbri. Var það valinn viður, og
stendur verzlunarhús Bryde enn,
og er sölubúð Kaupfélags Skaft-
fellinga í Vík. Ibúð hefir alltaf
verið í húsinu, og er búið að
margbreyta því með innrétting-
um, en sem heild er húsið í upp-
runalegu formi hvað ytra útlit
áhrærir. Eftir að þetta verzlun-
arhús reis, og verzlun hófst í Vík
tók kauptúnið að myndast.
Erlendur Björnsson smiður
byggði sér lítið timburhús 1896
skammt fyrir vestan Brydebúð,
stendur það hús enn, og er elzt
af íbúðarhúsum þeirra Víkur-
búa. Erlendur byggði sér og syni
sínum, Einari, annað hús um
1920, er það uppi á bökkum, og
var á sínuni tíma eitt veglegasta
hús í Víkurkauptúni; heitir það
Grund. í Suður-Vík byggði Hall-
dór Jónsson bóndi og kaupmaður
stórt og vandað timburliús, mun
það hafa verið fyrir aldamót.
Smiður að því húsi var Sveinn
Ólafsson, síðar bóndi í Suður-
Hvammi. Sveinn var talinn með
beztu smiðum á sínum tíma og
var allt í augum uppi.
Risu svo húsin með tíð og tíma
í Vík eftir því sem fjölgaði í
þorpinu. Það er eftirtektarvert,
að öll elztu húsin í Vík eru byggð
úr timbri, járnvarin. Steinsteyp-
an þar hófst með byggingu Vík-
urskóla 1910, en þeir voru fáir
sem lögðu í að steypa hús sín
lengi vel; nóg er þó af steypu-
efninu á staðnum. Það hefur
sennilega verið vantrú, og skort-
ur á kunnáttu sem úrslitum réði
í því efni. Eg hygg, að þeir Jón
Olafsson kennari og Magnús
Einarsson póstur hafi verið
fyrstir manna í Vík sem byggðu
íbúðarhús sín úr steinsteypu.
Úti í sveitinni fóru menn að
byggja með nýju sniði fljótlega
uppúr aidamótum. Fyrsta stein-
steypuhúsið byggði faðir minn,
Magnús Finnbogason í Reynis-
dal, á árunum 1901—02.
Fyrsla sli-iufiúsii)
Var það jafnframt fyrsta
steinsteypuhús í sýslunni, og með
þeim fyrstu á landinu. Húsið í
Reynisdal var hlaðið úr steyptum
steinum, eftir fyrirsögn Jóns
Þorlákssonar verkfræðings sem
teiknaði það, og gaf allar for-
múlur hvað steypuna áhrærði.
Erfiðleikar margvíslegir voru við
það verk, öngvir vegir, né flutn-
VÍKINGUE
24