Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1974, Síða 33
lögðu kapp á að hafa vandaða og
skrautlega hluti í skipum af
þessu tagi.
Ég spurði sjálfan mig: Hvern-
ig var umhorfs í Esjunni gömlu
eða Súðinni, gamla Gullfossi eða
Suðurlandinu ? Hvernig voru
stjórntækin í brúnni á Goðafossi,
Skallagrími, Júpíter gamla eða
Jóni forseta? Hvernig litu þau
út skipin Faxi og Reykjavíkin?
Enn má ýmsu bjarga, sem
fengur er að. Víða liggja enn
hlutir og ýmsir eiga enn hluti,
sem segja sína sögu og sem
tengdir eru sjómennsku þess
tíma. Og ég vil nú heita á sjó-
menn, farmenn og útvegsmenn,
sem vilja láta af hendi hluti eða
geta vísað á hluti, sem sjóminja-
safni væri akkur í að eignast, að
gera'mér viðvart um það. Þjóð-
minjasafnið mun fúslega veita
viðtöku og taka að sér varðveizlu
slíkra hluta þar til sjóminjasafn
hefur risið, en þá munu þeir
ganga þangað. Einkum ber hér
að nefna veiðarfæri og veiðitæki
hvers konar, bæði fyrir fisk,
fugl, seli og jafnvel hvali (hvala-
byssa er t. d. engin til), áhöld til
báta- og skipasmíða, merka báta
eða skip, sem hægt væri að varð-
veita í heilu lagi eða einhverja
hluta úr, líkön af skipum, stjórn-
tæki stærri skipa, stýrishjól, vél-
síma, áttavita, bjöllur og margt
annað, gömul sjókort, skrínur og
sjóklæði, skráningarbækur og
skipsbækur, að ógleymdum teikn-
ingum, Ijósmyndum og uppdrátt-
um af skipum, bátum, fiskveið-
um, áhöfnum, siglingum og frá
sjómennsku yfirleitt.
Sumt það, sem menn kunna að
eiga í fórum sínum af þessu tagi,
finnst þeim kannske lítils um
vert, en aldrei er að vita, hvað
safn kann helzt að vanta er til
kemur. Fátt er svo lítilsvert, að
það segi ekki sína sögu og skipi
ekki sinn sess í safni.
Þór Magnússon
þjó ðminj av öröur
&
Margur maðurinn segir við
sjálfan sig og jafnvel aðra:
það
kemur
alðrei
ueitt
fyrir
mig
Þetta eru staðlausir stafir,
því áföllin geta hent
hvern sem er,hvar sein er.
Það er raunsæi að tryggja.
Hikið ekki — Hringið strax
ALMENNAR
TRYGGINGARf
Pósthússtræti 9, sími 17700
SPARISJÓÐUR
VÉLSTJÓRA
Hátúni 4a
(á horni Laugavegs og Nóa-
túns)
Afgreiðslutími kl. 12,30-18,00
föstudaga 12,30—19,00.
Við bjóðum viðskiptavinum
vorum upp á alla almenna
þjónustu og næg bílastæði.
Sfmar: 17674 og 16593
til lands og sjávar
*
éloðolan?
Garðastræti 6
Sfmar: 15401 16341.
YÍKINGUE
33