Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Síða 52
Hafmeyjan á Löngulínu hefur mátt þola ýmislegt í tímans rás en hún á sér fyrirmynd í ævintýri eftir H. C. Andersen. 52 VÍKINGUR óvenju mildum vetrum sem hafa dregið úr þörfinni á olíu, kolum og vegasalti. Hins vegar jukust gámaflutningar um 9% og fóru 116.000 gámar um höfnina á árinu 1989. Fjöldi skemmtiferðaskipa sem hafði viðkomu var mikill, 142 talsins, en það er uþb. eitt skip á dag yfir ferðamannatímann. NELSON OG ÍSLANDS- KLUKKAN Kaupmannahöfn hefur verið vinsæll kaupsýslustaður allt frá tíma víkinganna. Skjólsælar víkur og vogar Amager og Sjá- lands hafa laðað til sín kaup- sýslumenn og sæfarendur hvaðanæva úr heiminum. Á10. öld var Kaupmannahöfn lítið verslunar- og fiskipláss en upp frá því fór vegur staöarins vax- andi. Á 11. öld byggði Absalon Hróarskeldubiskup kastala á lítilli eyju úti fyrir þorpinu auk þess sem hann víggirti plássið. Auður og velsæld íbúanna jókst hægt og bítandi og árið 1445 var borgin gerð að höfuð- borg Danmerkur og konungs- fjölskyldan settist þar að. Framfarirnar hafa þó ekki verið óslitnar. Borgin var um- setin árin 1658-60 þegar Danir áttu í stríði við erkifjendur sína Svía og árið 1801 gerði Nelson flotaforingi stórskotaliösárás á borgina. Þá voru Napóleons- styrjaldirnar í fullum gangi og Englendingar voru að hefna sín á Dönum sem höfðu tekið af- stöðu með Napóleon. Það var einmitt upp úr þeirri árás sem danski kóngurinn lét safna saman kirkjuklukkum á íslandi til að endurnýja koparþökin og turnana sem Nelson hafði eyði- lagt, en um þetta hefur Halldór Laxness fjallað á meistaraleg- an hátt í íslandsklukkunni. Og í síðari heimsstyrjöldinni lögðu Þjóðverjar Kaupmanna- höfn undir sig og háðu þar margar skærur við dönsku andspyrnuhreyfinguna. HUGAÐ AD LANDVINNINGUM Nú er öldin önnur og friöur í landi. Þjóðverjar eru í hópi stærstu viöskiptavina Dana, en það nægir hafnaryfirvöldum ekki. Þau hyggja á frekari land- vinninga og ætla að laða til sín bandarísk og japönsk stórfyrir- tæki. Markmiðið er að fá þau til að koma upp vöruhúsum og umskipunaraðstöðu í Kaup- mannahöfn. Þetta hefur gengið afar vel hvað Japanina snertir. Til dæmis hefur stórfyrirtækið Sony komið sér upp mjög nýt- ískulegri dreifingarmiðstöð í Fríhöfninni og sendir þaðan vörur til allra helstu hafna í Skandinavíu. Hafnaryfirvöld sýndu hve út- sjónarsöm þau eru þegar þau kræktu í Sony. Þau könnuðu ít- arlega hverjar væru þarfir fyrir- tækisins á skandinavískum markaði, komu upp aðstöðu sem féll að þessum þörfum og buðu Sony leigusamning til langs tíma. Þessari aðferð hyggjast yfirvöld beita um alla Fríhöfnina. Þar er hægt að hanna vöruhús frá grunni og laga þau að þörfum þeirra fyrir- tækja sem vilja koma sér upp aðstöðu í höfninni. Hafnaryfirvöld guma einnig af því að geta boðið upp á að- stöðu til að setja saman bíla og aðrar framleiðsluvörur á hafn- arsvæðinu. „Með því móti spar- ast landflutningar til fjarlægra verksmiðja," segir Eric Scha- fer. í framtíðinni ætla hafnaryfir- völd að stækka höfnina og bæta aðstöðuna enn frekar. Verið er að hanna ný viðlegu- svæði þar sem hægt er að auka verulega geymslurými fyrir stórflutninga. Einnig er fyrirhugað að bæta umferðar- mannvirki, vegi og brýr, þótt tenging hafnarinnar við danskt vegakerfi sé á allan hátt til fyrir- myndar. „Markmið okkar eru skýr og einföld," segir Eric Schafer. „Við viljum að í Kaupmanna- höfn standi mönnum til boða besta hugsanlega þjónusta á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.