Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Blaðsíða 65

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1991, Blaðsíða 65
I HENDI ÞER Slíku skilti yrði síðan komið fyrir við allar hafnir landsins til að festa í sessi þá hugarfars- breytingu sem orðið hefur meðal sjómanna í þessum efn- um. Það varð úr að LÍÚ tók að sér að fjármagna samkeppnina og lagði til verðlaunin með höföingsskap, 400 þús. kr. Skilafrestur þátttakenda rann út í byrjun apríl og höfðu þá borist 39 tillögur sem voru sýndar í Norræna húsinu dag- ana 12. og 13. apríl. Verðlauna- tillagan reyndist tilheyra Garö- ari Péturssyni, starfandi aug- lýsingateiknara. Allir þátttakendur fengu sama text- ann í hendurnar til að vinna úr og gera myndmál við. Þetta verk eiga íslenskir sjó- menn, og aðrir sem leið eiga um hafnir landsins, innan skamms von á að sjá I fullri stærð við allflestar hafnirnar. Auðvitað eru skiptar skoðanir um það hvort myndin og textinn séu heppileg. Boðskapurinn er þó augljós; við höfum það í hendi okkar hvort hafið við ís- land er hreint og þar af leiðandi hvernig hag íslands er borgið. Hreinleiki hafsins við ísland er nú þegar orðinn mesti fjár- sjóður þessa lands og hann verður undirstaða velferðar ís- lendinga í framtíðinni. Við vitum að íslendingar geta seintfram- leitt ódýrari matvæli en aðrir —það er margsannað bæði í sjávarútvegi og landbúnaði — enda kannski ekki svo mikill áhugi á því. Hins vegar geta íslendingar framleitt betri mat- væli en aðrir og gera það nú þegar á mörgum sviðum. Víða á mörkuðum erlendis eru gæði matvæla oftlega tengd hreinleika þeirra og þess umhverfis sem þau koma úr. Þetta viðhorf sækir á og verður brátt meginviðmiðun fiskkaup- enda á öllum stigum á helstu mörkuðum okkar í nágranna- löndunum. Fyrir hreina og heil- næma vöru úr hreinu og heil- næmu umhverfi eru menn og munu verða tilbúnir að greiða hátt verð. Verndun hafsins fyrir meng- un og óþverra er í sjálfu sér gott mál þótt hvergi kæmu þar nærri efnahagsleg rök af þessu tagi. Þegar þau leggjast hins vegar á eitt með mórölskum rökum þá er málið sáraeinfalt og ætti ekki að valda neinum innantök- um. Á það er verið að minna sjómenn og aðra sjófarendur með því að setja þessi skilti upp við hafnir landsins. Ég vona að þetta mál gangi svo hratt fyrir sig úr þessu að við getum séö skiltin komin upp við hafnirnar fyrir sjómanna- daginn næstkomandi, jafnvel að þau verði afhjúpuð á sjó- mannadaginn. Ég vona einnig að íslenskir sjómenn verði einskonar útverðir í þessum málum og láti mengunarmál sjávar til sín taka í framtíðinni, sem og önnur mál sem varða afkomu þeirra og allrar þjóðar- innar. Það ætti því ekki að telj- ast svo langsótt að stiila upp skilti við hafnirnar sem minnir sjómenn og aðra sjófarendur á gæði hafsins fyrir land og þjóð. Höfundur verölauna- merkisins, Garöar Pét- ursson ásamt forseta fslands, frú Vlgdísi Finnbogadóttur. Höfundurinn og Kri- stján Ragnarsson for- maður LfÚ takast í hendur. LÍÚ kostaði samkeppnina og lagði til verðlaunin. VÍKINGUR 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.