Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Síða 9
G ÆTL'A EKKI AÐ NEGLA
f§pgi
\ I tt' i ’ ■■ MfSjgiil
1 ▼ / ]
I j 1/
r*. '1> m
1 | >3,.
■ Æ&SbeObI 'i f nr
fj • I n
í '&MtjjjúáÍjBfflr; 1* - ij
,u • . . * ■%;U,& V y i 1“ I
Að koma vitinu fyrir menn
— Það er ljóst að þið teljið, í sem
stystu máli, að við séum með ranga
fiskveiðistefnu og þið viljið berjast
fyrir breytingum. En hver er óvinur-
inn sem þið ætlið að berjast við?
Hrólfur: Kvótinn og frjálsa framsalið,
númer eitt, tvö og þrjú.
— Alþingi setti kvótalögin, er Al-
þingi þá óvinurinn?
Arni: Þetta er svolítið vitlaust orðað
hjá þér, við erum ekki að berjast við
neinn. En ef maður tekur svolítið stórt
upp í sig þá vil ég segja að við séuni að
reyna að koma vitinu fyrir vissa menn í
þessu þjóðfélagi. Vegna þess að þetta
þjóðfélag sporðreisist og sundrast ef
lögunum verður ekki breytt. Unt þau
er engin samstaða.
Kristinn: Sko, þetta er alveg rétt hjá
Árna. Þjóðfélagið, almenningur og
þolendur þessa óskapnaðar kerfis,
mun aldrei líða það að þetta kerfi fái
að halda áfram í óbreyttri mynd. í
fyrsta lagi vegna þess að forsendur
Hafrannsóknastofnunar standast
ekki, í öðru lagi standast ekki leikregl-
urnar, það er að segja það að banna
sumum og leyfa öðrum með þessum
groddalega ofbeldishælti, og í þriðja
lagi sienst kerfið ekki gagnvart eigna-
rétti á þeirn atvinnuréttindum sem
rnenn í sjávarútvegi hafa helgað sér
með vinnu sinni undanfarna áratugi.
Sumum er bannað að nýta sér áunnin
réttindi, það stenst aldrei frá mann-
réttindalegum sjónarhóli séð, það er
hundrað prósent öruggt.
Hvort það tekureinn mánuð, eittár,
tvö ár eða finnn ár að koma vitinu fyrir
ráðamenn þjóðarinnar, eins og Árni
sagði réttilega áðan, er enn ekki ljóst,
en spurningin er ekki um livort, held-
ur hvenær það tekst.
Árni: Eg vil bæta því við, að í nýlegu
viðtali við forstjóra ÚA, sem Morgun-
blaðið átti við hann þegar hann var hér
á SH-fundinum, kom fram viðhorf
sent kannski sýnir í hnotskurn það sent
við erurn að tala um. Þá sagði hann að
það sem þeir kalla hagræðingu til þess
Hrolfur Gunnarsson, Árni Gíslason og
spyrill sátu saman við borð meðan á við-
talinu stóð, en Kristinn Pétursson var
heima hjá sér á Bakkafirði en í stöðugu
símasambandi.
að ná fram hagkvæmni, þ.e.a.s. sam-
þjöppunina, væri óhjákvæmilegt, en
jafnframt sagði hann: „Hins vegar vit-
um við að það mun valda miklum sárs-
auka“. Það er þetta lykilatriði sem er
að gerast núna að misnninunarofbeldi
í þessu landi er að verða þvílíkt að
menn geta komið frant í fjölmiðlum
og sagt: „Við höfum ákvörðunarrétt
ttm það hverjir lifa og hverjir ekki. Við
stjórnum því“.
Umdeild vísindi
— Það er alveg ljóst að Alþingi og
ríkistjórn fór við setningu þessara
laga að ráðuni Hafrannsóknastofn-
unar. Þar hafa verið settar fram kenn-
ingarnar sem þetta kerfi er byggt á.
Eruð þið með því sem þið hafið sagt
9