Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Qupperneq 13
ÉGÆTLA EKKI A Ð NEGLA
sem ég er búinn að láta setja í tölvu-
vinnslu hjá ábyrgum aðiluni og út-
konian er þveröf'ug við það sent þeir
eru að halda fram. Eg mun á næstunni
gera frekari grein fyrir þessu. Ég hef
reyndar verið að skrifa um þetta íblöð,
en það er eins og ntenn forði sér, sér-
staklega ábyrgir aðilar, á harða hlaup-
um frá því að ræða þetta alvarlega mál.
Hrólfur: Það er með Hjálmar; ef hann
vill viðurkenna mistök þá met ég hann
bara meiri ntann fyrir það og ég ætla
að vona að hann verði maður til að
viðurkenna fleiri mistök við mælingu
ástofnstærð loðnu. Nánast öllum skip-
stjórnarmönnum, sem maður hefur
liitt og voru á sjó veturinn ’82 og ’83,
ber saman um að aldrei hafi önnur
eins loðnumergð gengið á íslandsmið
til hrygningar. Það sýnir bara að mæl-
ingin hlýtur að hafa klikkað hjá þeim
________________________________
Enn er sofið eins og verið hefur
— I framhaldi af þessu; finnst ykkur
að þessi yfirlýsing Hjálmars hafi vak-
ið verðskulduð viðbrögð hjá stjórn-
völdum, t.d. í sjávarútvegsráðu-
neytinu eða Alþingi?
Hrólfur: Ég hef ekki orðið var við að
hún hafi nokkurs staðar vakið við-
brögð, ég sé ekki annað en að enn sé
bara sofið eins og verið hefur.
Arni: Ja, ég mundi nú kannski ekki
taka alveg eins djúpt í árinni og Hrólf-
ur. Ég mundi segja að þetta hafi nú
aðeins vakið athygli unt sntá tíma en
svo hefur sú umræða koðnað niður
aftur.
— I ráðuneytinu?
Árni: Já, ég hef nú náttúrlega ekki
aðgang að ráðuneytinu en ég hef talað
um þetta við háttsetta ntenn í þjóðfé-
laginu og bent á þetta og þeir hafa
lesið þetta í blöðunum. Ég held að það
hafi ekki náð mikið lengra.
— Hver finnst ykkur að viðbrögðin
ættu að vera?
Hrólfur: Hvað ntig varðar þá hefði átt
að setja rannsókn í gang bara um leið
og svona nokkuð var upplýst.
— Sem beindist að hverju?
Árni: Við vitum allir að þessi stofnun
hefur óskaplegt vald á ákvarðanatöku
um hvað veiðiheimildir við Island séu
stórar og hafrannsóknastofnanir víða
hafa óskaplegt vald í þessum málum.
Hrólfur:... ég sé ekki annað
en að enn sé bara sofið eins
og verið hefur.
Öllu valdi hlýtur að fylgja ábyrgð.
Ég held að það sé ekkert of mikið sagt
að loðnustoppið upp úr 1980 hafi
komið mörgum loðnuútgerðum í
þannig efnahagslega stöðu að þær séu
búnar að vera meira og minna ramb-
andi síðan, hafi aldrei náð sér al-
ntennilega á strik aftur.
Fullkomið ábyrgðarleysi
Menn sem eru í ábyrgðarstöðum og
brjóta af sér, þótt það sé nú kannski of
mikið sagt í þessu tilfelli, eða gera vit-
leysur, á náttúrlega í flestum tilfellum
að draga til ábyrgðar. En það er eins
og allt sé í lausu lofti með það, þeir
geta sjálfsagl alltaf falið sig á bak við
það að þeir veili ráðgjöf.
Við getum líka tekið dæmi um fleira
en loðnubátana. Ég ætla t.d. að hin svo
mjög umtalaða Bolungarvík með sín
fjárhagsvandamál stæði nú heldur
betur í dag ef leyfð hefði verið meiri
loðnuveiði, eins og kemur frant að
hafi verið hægt, og þeir viðurkenna
sjálfir. Það eru fleiri staðir úti á landi
sem stæðu nú heldur betur ef ekki
hefði verið farið eins mikið eftir ráð-
leggingum fiskifræðinganna.
Ég ætla ekki að segja hver er ábyrg-
ur fyrir þessu, ætli jrað verði ekki end-
anlega sá sent hefur skrifað undir fjár-
liagsskuldbindingar. Ætli hann verði
ekki endanlega ábyrgur en hinir haldi
áfrant að gera \ iileysurnar, án ábyrgð-
ar.
Kristinn: Ég get nefnt íjögur atriði
sem ég tel vera svo alvarlega ábend-
ingu um að verið sé að gera ranga hluti
að jrað sé fullkomið ábyrgðarleysi af
ráðamönnum að láta hana sem vind
um eyru j>jóia. Þessi fjögur atriði eru;
yfirlýsing Hjálmars, j>au skrif sem Sjó-
ntannablaðið Víkingur hefur staðið
fyrir, grein sem Hrólfur Gunnarsson
skrifaði í Morgunblaðið í fyrra og að
lokum það sent ég hef sjálfur verið að
gera og ég hef aflrent ábyrgum aðilum
í sjávarútvegsmálum á fslandi.
Sjávarútvegsráðherra virðist ekki
gera sér grein fyrir því hvaða ábyrgð
hann ber í j>essu máli. Þögn hans unt
|>essar miklu og alvarlegu upplýsingar
er fullkomið ábyrgðarleysi.
13