Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Page 58
V í K I N G U R
ÚR EINU í ANNAÐ
HALLDÓRA SIGURDÓRSDÓTTIR
„CLEAR SHIELD“
- NÝTT EFNI
Á markaðinn er komið stórmerki-
legt efni, „clear shield", sem hrindir
frá sér vatni og ver gler fyrir hvers
kyns ágangi. Pað er fyrirtækið Gott
gler hf. sem flytur efnið inn.
I bátum og skipum skemmist gler
vegna oxunar frá áli, koltvísýrings
frá vélum og seltu sjávar. Vegna
þessara þátta skemmist glerið smám
sainan og eiginleiki þess til að hrinda
frá sér vatni minnkar stórlega. Með
árunum missir glerið gljáa, það verð-
ur matt og viðloðunin verður meiri
þegar sjór skellur á því. Að sögn
Þormóðs Jónssonar hjá Góðu gleri
kemur efnið í veg fyrir að glerið
skemmist en auk þess gerir „clear
shield“ það að verkum að sjór og
vatn perlar samstundis af því.
Árið 1987 vann „clear shield“
bresku iðnaðarverðlaunin en það var
eitt af 600 efnum sent tóku þátt í
keppninni.
Fyrir ári var allt gler í Viðey RE
hreinsað með þessu nýja efni og
árangurinn var svo góður að nú er
veriðað setja efnið á rúður allra
togara Granda. Menn geta verið
sammála um að þörfin fyrir heilar og
tærar rúður sé hvergi meiri en á sjó
þar sem öryggi sjómannanna veltur
að stórum hluta á útsýninu.
Að sögn Þormóðs er best að setja
efnið á nýtt gler því þá helst það tært
en hægt er að gera gamalt gler tært
og verja það fyrir frekari skemrnd-
um. Æskilegt er að bera efnið einu
sinni á ári á gler í skipum. Það tekur
um það bil einn dag að þjónusta stór
skip en efnið er borið á rúðurnar
þegar skipin eru við bryggju. Kostn-
aðurinn er á bilinu 35—55 þúsund
fyrir stóra togara. Gott gler þjónustar
allt landið og þeir sem hafa áhuga
geta pantað ntannskap til aðgerða í
síma 622520.
VORN FYRIR
BÖRN
Slysavarnafélag Islands hefur
ákveðið að standa fyrir átaki sent
nefnist Vörn fyrir börn. Ætlunin er
að vekja landsmenn til umhugsunar
um þennan málaflokk á margvísleg-
an hátt. Staðreyndin er sú að þótfc
allir séusammála um að börnin séu
það dýrmætasta sem til er þá hafa
Islendingar vanrækt slysavarnir
barna svo að það verða fleiri slys á
börnum hér á landi, ef miðað er við
fólksfjölda, en í flestum nágranna-
löndum okkar. Alltof stór hluti þess-
ara slysa verður vegna vanrækslu
hinna fullorðnu og ónógra slysa-
varna.
Til stendur að vekja fólk til um-
hugsunar um það með ýmsum að-
gerðum hvað gera megi til úrbóta í
umferðinni, á heimilum, í skólum og
á leiksvæðum, svo eitthvað sé nefnt.
Fjölmörg námskeið og fundir hafa
verið haldin, unnið er að gerð
fræðslukvikmynda og bæjarfélög
hafa verið hvött til samstarfs undir
58