Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 63
ÚR EINU ÍANNAÐ
Á tímum samdráttar og atvinnu-
leysis er átak á borð við þetta mikils
virði því megintilgangurinn er að
virkja sem flesta til skipulegrar og
sívirkrar vinnu við að efla sjálfa sig
og búa sig undir að mæta hverskyns
áföllum, svo sem samdrætti í at-
Sveinn Rúnar Valgeirsson, skip-
stjóri í Vestmannaeyjum, baðst lausn-
ar frá stjórnarstörfum í santbandinu
vegna þess að hann væri orðinn
annar tveggja eigenda að bát og þar
með útgerðarmaður. Hann tók fram
að hann hefði í engu skipt um skoð-
un á kjaramálum og öðrum hags-
munamálum sjómanna, en sagði að
þar eð hann væri í vissum málum
kominn með seturétt beggja vegna
samningaborðsins teldi hann það
orka tvímælis að sitja áfram í stjórn
FFSÍ. Lausnarbeiðni hans var sam-
þykkt, þó með þeim ummælum að
menn teldu skarð fyrir skildi þar sem
hann hefði setið, og honum þakkað
gott samstarf.
Margt var til umræðu á fundinum,
m.a. staðan í kjarasamningum.
Kyrrstaða er í samningamálum fiski-
manna, en stjórnin var sammála um
að aðalkjarasamningur gæti ekki
kontið tií umræðu fyrr en sérkjara-
samningar hefðu verið til lykta leidd-
ir. Jafnframt kom fram að viðsemj-
vinnulífinu eða atvinnumissi. Svo og
að vinna að því að finna eða skapa ný
tækifæri fyrir sig eða vinnuveitendur
sína. Þeir sem hafa hug á að kanna
þessi mál betur geta haft samband
við J ón Erlendsson í síma 694665 og
629921.
endur væru mjög tregir til aðljá máls
á viðræðum um Jrá. Rætt var um
hvort FFSÍ ætti að hvetja aðildar-
félög sín til að beiia sektarákvæðum í
samningum gegn útgerðarmönnum
sem brjóta gegn þeim, ef það kynni
að verða til þess að flýta för viðsemj-
enda að samningaborðinu.
Lýst var stuðningi við boðaðar
aðgerðir farmanna í sinni kjaradeilu
og rætt á hvern hátt fiskimenn gætu
stutt þá frekar, t.d. með samúðar-
verkfalli, ef þörf krefði.
Önnur mál á dagskrá fundarins
voru m.a. upplýsingar um fund sem
haldinn var í Brussel seint í apríl um
tvíhliða sanming um sjávarútvegsmál
milli Islands og Evrópubandalagsins,
og fund sem haldinn var í Kaup-
mannahöfn 18. maí um þríhliða
samkomulag íslands, Noregs og
Grænlands um veiðar úr íslenska
loðnustofninum. Á hvorugum fund-
inum fékkst endanleg niðurstaða, en
í loðnumálinu er hennar að vænta,
jafnvel áður en þetta blað kernur
fyrir augu lesenda og næsta fund við
EB verður líka búið að halda þegar
blaðið kemur út.
Þá var nokkuð fjallað um breyting-
ar á lögum um Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins og breytingar á lög-
um urn skiptaverðmæti og greiðslu-
miðlun. Um fyrrnefndu lagabreyt-
ingarnar hefur svo mikið verið rætt í
fjölmiðlum að þar er engu við að
bæta, en sú síðarnefnda felur í sér að
framlag sem áður fór til FFSÍ, skipt-
ist nú á milli FFSÍ og Vélstjórafélags
Islands og á sjávarútvegsráðherra að
setja reglugerð um skiptingu ljárins
og taka við það mið af ijölda félags-
manna sem við ftskveiðar vinna.
FRÁ STJÓRNARFUNDI í
FFSÍ, 22. MAÍ
63