Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Qupperneq 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Qupperneq 5
Að stíga gæfuspor Mikil værigæfa utgerðarmanna ef þeir allir sem einn féllust á það sjónarmið að tekjur útgerðar skildu á nýjan leik ráðast af aflabrögð- um og verði fyrirafla upp úrsjó. Það varaldrei markmið núverandi laga um stjórn fiskveiða að tekjur útgerðar gætu stjórnast af leigu- kvótabraski. Það er reyndar merkilegt að þær útgerðir sem fylgt hafa þeirri reglu að ávinningur útgerðar sé af veiðum og hæstu gangverðum fyrir veiddan afla skipa og skipshafnar eins og kjara- samningar LÍU og sjómannasamtaka kveða á um eru jafnframt þær útgerðir sem hvað best em reknar. Við getum bent á útgerðir eins og Ljósavík, Ögurvík, útgerð Þéturs Jónssonar RE, Hákonar ÞH og Svans RE. Fleiri mætti upp telja en það sem einkennir þessar út- gerðir eru góð laun starfsmanna, góð samskipti áhafnar og starfs- manna fyrirtækjanna ílandi og afar fátíðir árekstrar við stéttarfélög. Öll þessi fyrirtæki virðast einnig vera vel rekin. Það er vægast sagt illskiljanlegt hvers vegna forysta LÍÚ hefur tekið sér fyrir hendur að verja það leigukvótabrask sem átt hefur sér stað á undanförnum árum hjá sumum útgerðum og íraun hefur valdið þeim hörku illdeilum sem LÍÚ og sjómannasamtökin hafa háð um kvótabrask og verðmyndun síðastliðin 6 til 7 ár. Illdeilursem leitt hafa til allra verkfalla síðastliðinn áratug og eru nú enn á ný að verða til þess að í verkfall stefnir á næsta ári. Væri nú ekki þjóðráð og gæfusporað samninganefnd LÍÚ fengi þá forsvarsmenn útgerða, sem ávallt fara að kjarasamningum og komast áfram með góðan og hagkvæman rekstur ár eftir ár án illdeilna og leigukvótabrasks, til þess að kynna samningamönnum LÍÚ hvernig hægt erað stunda eðlilegan útgerðarrekstur. Rekstursem byggir á þvígöfuga hlutverki útgerðar, sem hún á að geta hagnast á að veiða aflann og selja afl- ann eftirað hann var veiddurá hæsta verði öllum til hagsbóta, bæði fyrir land og þjóð. Síðan þegarþessi endurmenntun samninga- manna LÍU hefur farið fram væri rétt að setjast yfir gerð nýs kjara- samnings afalvöru enda ætti þá að vera auðsamið við sjómenn um þær sjátfsögðu kröfur þeirra að útgerðin ætti skilyrðislaust að gera út skipin til þess að veiða kvótann sem á þau erskráð á hverju ári, ella bæri útgerðinni að skila kvótanum til ríkisins. Jafnframt yrði orð- ið við þeirri sjálfsögðu kröfu sjómanna að útgerðin ætti ávallt að uppfylla það skilyrði að reyna að fá sem hæst verð fyrir aflann og þannig að hámarka bæði tekjur útgerðar og sjómanna eins og kjara- samningar kveða á um. Þar sem það hefur marg sýnt sig að sam- keppni býr til rétt verð efrétt og heiðarlega erað verðmyndun á vör- unni staðið, fari best á þviað þau stjórnvöld sem nú sitja og kennt hafa sig við markaðslausnir sæju til þess að lög landsins væru hald- in og að fiskmarkaðsverð yrði sú markaðslausn sem leysti núverandi deilur um verðmyndun á sjávarafla. Verði sjónarmið þeirra sem virða settar samskiptareglur kjarasamninga innan LÍÚ ráðandi, þá þarf ekki að kvíða þvfað illdeilur undanfarinna ára verði ekki settar niður í næstu samningagerð. Með von um að menn noti þann tíma, sem eftir, eráðuren til átaka kemur, til þess að semja um sanngjarnar leiðir svo koma megi á sátt milli aðila. Gleðileg jól. Guðjón A. Kristjánsson Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband íslands, Borgartúni 18, 105 Reykjavík. Ritstjórn: Síðumúla 15, 108 Reykjavik, sími 553 1414, fax 553 1419. Afgreiðsla: sími 562 9933. Auglýsingar: sími 587 4647. Ritnefnd: Guðjón A. Kristjánsson Benedikt Valsson Hilmar Snorrason Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurjón Magnús Egilsson Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir Setning og tölvuumbrot: Halldór B. Kristjánsson Filmuvinna, prentun & bókband: Grafík Forseti FFSl': Guðjón A. Kristjánsson. Framkvæmdastjóri: Benedikt Valsson. Aðildarfélög FFSl': Skipstjóra- og stýrimannafélag (slands, Skipstjóra- og stýri mannafélag Norðlendinga, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta, Félag matreiðslumanna, Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Reykjavík; Bylgjan, Isafirði; Hafþór, Akranesi; Kári, Hafnarfirði; Sindri, Neskaupstað; Verðandi, Vestmannaeyjum; Vísir, Suðumesjum; Ægir, Reykjavík. /i t 6 Umfang kvótaviðskipta og viðtal við Guðjón Guðmunds son alþingsimann 7 Sigfús A. Schopka fiskifræð- ingur um sjálfrán þorsks 8 Óheyrilegur símakostnaður sjómanna 10 Ólafur Laufdal var eitt sinn sjómaður og fylgist enn með aflafréttum 12 Ránargull, frétt um útgáfu merkilegrar bókar 14 Fannar Freyr Bjarnason er sjómaður, hann keppti um titilinn Herra Island 16 Ný stjórn Farmanna- og fiskimannasambands íslands 18 Utan úr heimi: Gámur í heimsreisu, Betra að hafa htutina ílagi 19 El Nini erfiður siglingum, Dýr ofhleðsla, Stútur undir stýri 20 Ekkert hangs, Reykingamenn 22 Flensa geysar um borð í skemmtiferðaskipi, Eitt gjaldþrot i viðbót, Myndbirtingar bannaðar, Sjóránsvandinn, Endurbætt höfn 23 Fræg bjalla hringdi fyrir Diönu, Sektaðir Forsíðumyndin Jólastemning við höfnina í Reykjavík Þorvaldur Örn Kristmundsson tók myndina w 30 Eru sjómenn að tapa hreystisímyndinni? Anna Elísabet Ólafsdóttir næringafræðingur skrifar um matarvenjur sjómanna og leggur til breytt mataræði 32 Frá þingi Fanmanna- og fiskimannasambandsins Ályktun um kjara- og menntamál 41 Á síld Kostulegur kafli úr bók Magnúsar Óskarssonar, Með bros í bland 45 Hefur skotið 1409 stórhveli Kristján Þorkelsson skipstjóri og hvalaskytta 56 Sérstætt ár Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasabands íslands koma víða við þegar hann setti 38. þing sambandsins 62 Afdrifaríkar ákvarðanir og skólaskipið Glaður Jónatan Sveinsson, lögmaður og fyrrverandi kennari við Stýrimannaskólann, rifjar upp þegar hann var á sjó 68 Myndir úr afmælishófi FFSÍ 34 Málefnin mikilvægari en metnaðurinn Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra í persónulegu viðtali 25 Ósanngjöm og röng umræða Magnús Jóhannesson, formaður skólanefn dar Stýrimannaskólans í Reykjavík / ^ , 70 Skipasmíðastöðin á ísafirði 71 Rafver 73 Merkúr 74 Á.M. Sigurðsson 75 ísmar 77 Kassagerð Reykjavíkur 5 SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.