Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 32
Frá 38. þingi FFSÍ
Alyktun
um Riara-
38. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, haldið í Reykja-
vík, dagana 26.-28. nóvember 1997, álykt-
ar eftirfarandi um kjara- og menntamál
sjómanna.
Það ófremdarástand og ósætti sem ríkir
varðandi stjómkerfl fiskveiða og verðlagn-
ingu sjávarafla er bein afleiðing aðgerðar-
leysis stjórnvalda. Einstakir útgerðarmenn
hafa notfært sér kerfið á siðlausan hátt,
bæði með braski veiðiheimilda og í tengsl-
um við sameiningu og sölu fyrirtækja.
Ábyrgðin liggur hjá stjórnvöldum, sem
ekkert hafa gert til úrbóta, heldur horft á
rneð hendur í skauti.
Á undanförnum árum hafa sjómenn,
jafnt fiskimenn sem farmenn, staðið í bar-
áttu við að verja starfskjör sín. Úr ýmsum
áttum er vegið að kjömm sjómanna. Ekki
aðeins af hálfu útgerðarmanna heldur ein-
nig af stjórnvöldum, sem hafa staðið vörð
um stjórnkerfl fiskveiða þar sem sjómenn
em nauðugir látnir taka þátt í kostnaði
vegna veiðiheimilda í viðskiptum milli út-
vegsmanna. Atvinnumálum farmanna
hafa stjórnvöld sýnt ótrúlegt áhugaleysi
og ef heldur sem horfir mun áfram fækka
í íslenskri farmannastétt.
Atlaga stjórnvalda að launafólki birtist
einnig í breyttri vinnulöggjöf sem setur
starfsemi stéttarfélaga þrengri skorður en
áður. Jafnframt hefur réttur til atvinnu-
leysisbóta verið skertur.
Þingið varar við að hróflað verði við
gildandi sjómannaafslætti, sem er hluti af
kjörum sjómanna og verður ekki lagður
niður nema að fullar kjarabætur korni þar
á móti.
í yfirstandandi kjaradeilu milli sjó-
manna á fiskiskipum og útvegsmanna er
aflahlutakerfið í veði. Margir útvegsmenn
undir forystu LÍÚ hafa leynt og ljóst rask-
að launakerfi sjómanna á undanförnum
ánim. Þetta hefur gerst með tvennum
hætti. í fyrsta lagi með nauðungarþátt-
töku sjómanna í kvótakaupum sem rýrir
aflahlut þeirra. í öðru lagi með einhliða
verðákvörðun á fiski upp úr sjó sem ein-
nig rýrir aflahlutinn. Verði ekki spornað
gegn þessum árásum er mikil hætta á að
hlutaskiptakerfið verði eyðilagt. Þetta
knýr sjómenn á fiskiskipum til nauðvam-
ar til að halda jtcim kjörum sem þeir h;ifa
samið um. Dugi ekki önnur ráð, j~>á þjappi
sjómenn sér saman og í krafti samstöð-
unnar, stöðvi fiskveiðiflotann og veiðar
heíjist ekki að nýju fyrr en settar hafa ver-
ið starfsreglur sem tryggja sjómönnum
hlut sinn og korna í veg fyrir endalaust
brask og eignatilfærslur.
Sjómönnum ber hæsta ntögulega verð
fyrir afla. Sú jtróun sem orðið hefur í skjóli
kerfisins í verðlagsmálum sjávarafla, bitn-
ar ekki eingöngu á sjómönnum, heldur
hlýtur að vera þjóðhagslega óhagkvæmt
að einstakir aðilar verðleggi sjávarafla að
eigin geðþótta. Öll mynd af afkomu út-
gerðar í landinu hlýtur að vera röng |tcgar
aðilar innan greinarinnar með forystu LÍÚ
í broddi fylkingar komast upp með slíkt,
og þannig í raun stýra tekjum útgerðar-
innar með jtví að selja sjálfum sér aflann á
langtum lægra verði en eðlilegt er. Ein-
hliða fiskverðsákvörðun jafngildir því að
atvinnurekendur í öðrum greinum
ákvæðu launataxta einhliða.
Með hliðsjón af framansögðu skorar
sambandsþing Farmanna-og fiskimanna-
sambands íslands á samtök útvegsmanna
að ganga til samninga við samtök sjó-
manna. Helstu atriði nýrra kjarasamninga
verða þá;
• Tryggt verði að sérhvert fiskiskip
veiði a.nt.k. 90% af úthlutuðu afla-
marki.
• Tryggt verði að fiskverð myndist á
eða í tengingu við uppboðsmark-
aði.
Mikilvægasta kjaramál farmanna er að
tryggja atvinnu stéttarinnar í framtíðinni.
Fjöldi farmanna á kaupskipum í útgerð ís-
lenskra aðila hefur stöðugt fækkað. Á
þessum áratug hefur ársstörfum fækkað
um 300. Á sama tíma hefur hlutdeild ís-
lenskra farmanna minnkað úr 82% í 62%.
Til að spyma við fótum gegn jiessari þró-
un telur FFSÍ nauðsynlegt að stjórnvöld
skapi íslenskri kaupskipaútgerð álíka sam-
keppnisstöðu og er í nágrannalöndum.
Það er krafa jtingsins að siglingum til og
fni íslandi verði í framtíðinni sinnt af ís-
lenskum skipum, mönnuðum íslenskum
áhöfnum. Einnig er jxið kmfa þingsins að
litið sé á siglingar sem sjálfstæðan atvinnu-
veg, nauðsynlegan sjálfstæði eyjijóðar. At-
vinnnuveg sem gæti skilað miklum tekj-
um í þjóðarbúið sé rétt á málum haldið.
38. sambandsþing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands mótmælir harð-
lega þeirri ráðagerð menntamálaráðherra
að flytja Stýrimannaskólann í Reykjavík og
Vélskóla íslands úr Sjómannaskólahúsinu.
Húsið var byggt í þeim tilgangi einum að
vera menntasetur sjómanna. Menntamála-
ráðherra væri meiri sómi að því að gera
gangskör í lagfæringu hússins svo það
jtjóni síauknum kröfum nútímans um fag-
menntun sjómanna. - Þingið fagnar stofn-
un Hollvinasamtaka Sjómannaskóla ís-
lands.
32
SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR