Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 34
Þorsteinn Pálsson hefur verið sjávarútvegsráðherra frá árinu 1991. Skoðanir hans á kvótakerfinu og hugmyndum um auðlindagjald þarf ekki að kynna fyrir lesendum Víkings. Því var þess vandlega gætt í viðtali við ráðherrann að minnast ekki á sjávarútvegsmál en því meir var forvitnast um hagi hans og lífsskoðanir. Kolbrún Bergþórsdóttir talaði við Þorstein. Málefnin mikilvaegari en metnaourinn Þú virðist vera mjög stilltur maður, varstu líka mjög stillt barn? Já, ég held það. Ég man ekki eítir að mikið hafi farið mikið íyrir prakkarastrik- um. Þó segja sögur að við Bjöm rakari höf- um verið teknir við að stela rabbabara úr görðum á Selfossi þegar við vorum dreng- ir. Það er líklega það allra lengsta sem ég hef náð í óknyttum. Gömul gagnfræðaskólasystir mín og Karls Sigurbjömssonar í einn vetur, eítir að ég fluttist til Reykjavíkur, sagði við mig á dögunum að það væri sérstakt að horfa til baka til þessa tíma, þar sem kirkjumála- ráðherrann og nýi biskupinn hefðu verið feimnustu strákamir í bekknum." Manstu tilþess að foreldrar þínir hafi lagt þér sérstakar lífsreglur í œsku? „Foreldrar mínir ólu mig upp á gmnd- velli lífsviðhorfa sem síðar urðu að ákveðnum viðmiðunum í mínu eigin lífl. Foreldrar mínir vom afskaplega hógvært fólk og nægjusamt og framkoma þeirra við aðra einkenndist af heiðarleika. Allt em þetta eiginleikar sem ég virði og tel eftirsóknarverða, og vona að mér hafi tek- ist að tileinka mér þótt í smáu sé. Ég veit að ég kemst ekki með tæmar þar sem þau höfðu hælana í þessu efni.“ Þú varst unglingur á þeim árum þeg- ar rokkið var allsráðandi. Hafðirðu áhuga á þoþþtónlist? „Ég er laglaus og hafði ekki áhuga á tón- Iist. Börnin mín spyrja mig stundum að því hvemig veröld rokksins hafi getað far- ið framhjá mér, en hún gerði það mjög auðveldlega. Myndlistin átti hins vegar sterk ítök í mér og ég hafði mikla ánægju af að teikna og mála. Þegar ég var í öðmm bekk í Verslunarskólanum sló ég mjög slöku við nám og var alvarlega að velta því fyrir mér að fara í myndlistarskóla, en það fór nú á annan veg. Ég sakna þess alltaf að hafa týnt niður kunnáttu minni í myndlist. Ég fékk snemma áhuga á stjómmálum og vildi verða þátttakandi í umræðum um þjóðfélagsmál. En ég var fremur feiminn og hlédrægur og því var átak að hafa sig í það. Ég held að áhuginn hafi rekið mig áfram. Ég gekk í Heimdall áður en ég hafði aldur til og ólst þar upp að meira eða minna leyti. f mínum huga lá alltaf beint við að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn en stefnu hans var þó ekki haldið fast að mér á heimili mínu. Foreldrar mínir vom á þeim tíma á sitt hvorri stjómmálaskoðun- inni. Faðir minn var sósíalisti og móðir mín sjálfstæðiskona. Ég er því ekki pabbapólitíkus. Frekar má segja að faðir minn hafi tekið upp pólitík stráksins." Þú fórst í Verslunarskólann og lœrðir síðan lög við Háskóla íslands. Er lög- frœðin ekki bœði þungt og leiðinlegt fag? „Nei. Þegar ég kom í Háskólann hafði ég í fyrsta skipti mjög gaman af því að læra. Ég naut þess að læra lög, fannst þetta lifandi grein og ákaflega skemmtileg. 34 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.