Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Side 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Side 40
menn í innbyrðis samkeppni, ekki ein- ungis milli flokka heldur líka innan flokka, og andrúmsloftið einkennist nokkuð af því.“ Ur hvaða hópi koma þínir bestu vin- ir? „Það er svo sérkennilegt að sú vinátta sem stofnað var til á Verslunarskólaárun- um hefur orðið sterkari og dýpri með ár- unum. Fyrst eftir að Verslunarskólanám- inu lauk tvístraðist hópurinn meðan ntenn voru að koma sér fyrir og stofna heimili, en síðan styrktist vináttan á ný. Á þessum árum eignaðist ég mína bestu og traustustu vini. Ég legg mikla merkingu í orðið vinátta. Kunningsskapur jafngildir ekki vináttu og að vera félagi einhvers jafngildir heldur ekki því að vera vinur hans. Vinátta er afar sérstakt og traust samband sem aldrei verður fullþakkað." Ef við snúum okkur að fjölskyhlunni þá var eiginkona þín ein af vonar- stjörnum Sjálfstœðisflokksins og þótti vœnlegt borgarstjóraefni. Finnst þér að hún hafi fórnað pólitískum frama sín- um þín vegna? „Hún verður að svara því sjálf. Ég held hins vegar að það hefði verið mikill akkur í því fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa hana í forsvari í borgarmálum." Hvemig kynntust þið? „Á sínum tíma vorum við kjörin í stjórn Orators, ég sem formaður og hún sem gjaldkeri. Stjórnarsamstarfið bar þennan góða ávöxt og er því að okkar mati eitt best heppnaða stjórnarkjör í Orator fyrr og síðar.“ Eruð þið lík að eðlisfari? „Það er bæði hægt að segja já og nei við þessari spurningu. En við höfum afskap- lega lík lífsviðhorf og hjónaband okkar hefur verið sérlega hamingjusamt." Hvaða eiginleikum hennar laðaðist þú að? „Hún er ákaflega aölaðandi persóna, viljaföst, heiðarleg og ákveðin. Þessir eig- inleikar ásamt persónutöfrum hennar heilluðu mig og heilla enn.“ Starfi stjómmálamanns fylgir mikill erill ogfjarverafrá heimili. Óhjákvcemi- lega bitnar þetta á fjölskyldulífi og kannski einna helst á börnunum. Hef- urðu getað sinnt börnum þínum eins ogjni befðir viljað? „Nei, óneitanlega hef ég ekki sama tíma og margir aðrir til að sinna fjölskyldunni og samviskubitið nagar mig stundum þess vegna. Ég reyni þó að gera sitt besta.“ „Ég hef gaman af því að lesa sögu STJÓRNMÁLAMANNA EN ÞAÐ ER ENGINN ÞEIRRA SEM ÉG LÍT Á SEM BEINA FYRIR- MYND. ÞANNIG AÐ ÉG GET EKKI SVARAÐ ÞESSARI SPURNINGU. ÉG HEF MÆTUR Á MÖRGUM EN DÁI ENGAN.“ ÉG ER SKOÐANAPÓLITÍKUS Hefurðu gaman af því að vera ráð- herra? „Ég hef gaman af viðfangsefnunum. Öðru vísi gæti ég ekki gegnt starfi mínu.“ Segjum sem svo að Sjálfstœðisflokkur- inn fari ekki í nœstu ríkisstjóm, hvað verður þá um þig? „Það rná Guð einn vita. Ekki veit ég svarið.“ Nú er mikið rcett um sameiningu vin- stri manna, hvemig sérð þú þá þróun Jyrír þér? „Ég er vitaskuld ekki hlutlaus en ég hef alltaf jafn gaman af þeirri umræðu, sem er reyndar að mestu endurtekning á því sem áður hefur verið sagt. Ég held hins vegar að munurinn núna sé sá að ákveðin hug- myndafræðileg kreppa gerir það að verk- um að A-flokkamir eiga bágt með að kom- ast hjá því að sameinast. Líkast til mun í framhaldinu verða til nokkuð stærri krata- flokkur en óhjákvæmilegt er að við hlið hans komi róttækara afl. Þegar upp er staðið held ég að ekki verði nein stórkostleg breyting í íslensk- um stjórnmálum. Það eina sem myndi gerbreyta pólitíkinni á íslandi væru rót- tækar breytingar á kjördæmaskipaninni sem gætu leitt til tveggja flokka kerfis. Ég held að slík umskipti væru æskileg og skynsamleg en því miður eru litlar líkur á að þau muni verða í næstu framtíð. Þeir sem vilja alvöru breytingar ættu að leiða hugann að þessu stóra og vanda- sama viðfangsefni. Ég gæti einnig séð fyrir mér meiri aðskilnað framkvæmdavalds og löggjafarvalds, sérstaka kosningu forsætis- ráðherra og sameiningu embætta forseta lýðveldisins og forseta Alþingis. En ég geri mér grein í'yrir því að flestum finnst slík stjómskipuleg róttækni út í hött. Álit mitt er að hún auki pólitíska festu og efli lýð- ræðið.“ Hverjir eru eftirminnilegustu stjórn- málamenn sem Jni hefur kynnst? „Af erlendum stjómmálamönnum kom Ronald Reagan mér mest á óvart. Þegar ég hitti hann skildi ég af hverju hann hafði náð svo langt í pólitík. Hami hafði mjög skýra og vel mótaða stefnu í öllum gmnd- vallaratriðum og átti mjög auðvelt með að koma henni til skila til viðmælenda sinna. Það er erfitt að nefna einn íslenskan stjómmálamann öðmm fremur, en fyrstu ár mín á þingi var Garðar Sigurðsson þar þingmaður Alþýðubandalagsins á Suður- landi. Hann er rnjög traustur maður og var mjög skemmtilegur þingmaður með af- dráttarlausar skoðanir sem hann gat kom- ið til skila í orðræðu svo allir tóku eftir. “ Hvaða stjórnmálamanni hefur þú haft mest dálœti áfyrr og síðar? „Ég hef gaman af því að lesa sögu stjórn- málamanna en það er enginn þeirra sem ég lít á sem beina ívrirmynd. Þannig að ég get ekki svarað þessari spurningu. Ég hef mætur á mörgum en dái engan.“ En hvernig stjórnmálamaður vilt þú vera? „Ég leitast eftir því að vinna verk mín vel og fylgja sannfæringu minni. Ég lít ekki á mig sem ástríðupólitíkus. Ég er skoðanapólitíkus. Það stríðir með öðmm orðum ekki á mig að vera í pólitík, en ég er nægjanlega þver til að láta ekki dægur- vinda eða stundarhagsmuni snúa skoðun- um mínum.“ ■ 40 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.