Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Qupperneq 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Qupperneq 66
Ekki þótti taka því að hefja veiðar með línu þegar við komum vestur um mánað- amótin janúr og febrúar þótt vel liefði flskast á línuna það sem af var vertíð. Bát- urinn var því útbúinn til veiða í þorska- net og fyrst lagt í byrjun febrúar. Lítið veiddist fyrstu dagana en um miðjan febrúar tók veiði að glæðast og má segja að eftir það hafí mokflskast út alla vertíð- ina og þegar yfir lauk þann 11. maí höfð- um við lagt á land af þessum litla bát 930 tonn af þorski. Sama var að segja um afla annarra báta. Hæstu bátarnir fengu um og yflr 1.500 tonn og má þar nefna þær miklu aflaklær, Sigurð Kristjónsson á Skarðsvík og Tryggvajónsson ájökli. Má þess t.d. geta, að meðalafli þeirra þriggja báta, sem Halldór Jónsson gerði þá út og framangreindir synir hans voru með, nam rúmlega eitt þúsund tonnum að meðaltali á bát Ólafsvíkurflotinn endurnýjaður Þegar hér var komið sögu stóð yfir rnikil endurnýjun á flskiskipum Ólafsvík- inga. Halldór Jónsson hafði þá samið við Skipasmíðastöð Kaupfélags Eyflrðinga (KEA) um smíði þriggja fiskiskipa en stuttu áður höfðu þeir smíðað tvö fiski- skip fyrir Ólsara: Jökul fyrir Víglund Jóns- son og Hrönn fyrir Hauk Sigtryggsson og félaga , sem bæði reyndust happafleytur. Halldór Jónsson hafði þá fengið aflient fyrsta skipið, Jón Jónsson SH 167, sem var 67 rúmlestir að stærð og þótti hið glæsilegasta skip. Jón Steinn Halldórsson Ég fór með bátinn um vorið í slipp í Reykja- vík. Þurfti égjafn- framt að ganga frá ýmsum málum í Há- skólanum vegna frá- tafa minna frá nám- inu. Fljótlega fréttist í Háskólanum að til stæði að ég færi með bátinn til síldveiða og föluðust margir nem- endur eftir plássi á bátnum. Flestir voru þeir óvanir til sjós en dugnaðarstrákar og vanir að vinna. Á reknetmum voru gjarnan sex eða sjö tók við þeim bát og farnaðist vel. Þetta vor lauk smíði á vs. Steinunni SH 207, sem var af svipaðri stærð og Jón Jónsson og tók Kristmundur Halldórsson við skipstjóm á þeim bát og var með hann meðan hann var í eigu útgerðarinnar og aflaði ávallt vel. Auk Glaðs var einnig í eigu Halldórs vs. Bjarni Ólafsson, 36 rúm- lesta smíðaður á ísafirði (Marselíusarbát- ur), sem Leifur Halldórsson hafði þá tek- ið við skipstjórn á. Umrædd vetrarvertíð var fyrsta vertíð Leifs og aflaði hann 1.100 tonn á bátinn, sem var glæsileg byrjun og um leið upphafið að aflasælum og farsælum skipstjórnarferli hans. Háskólastúdentar á síld Nokkru fyrir lok vetrarvertíðarinnar kont Halldór að máli við mig og bauð mér að taka við skipstjórn á Glað, sem fyrirhugað var að gera út á reknet þá um sumarið svo sem gert hafði verið nokkur undanfarin ár með þokkalegum árangri. Ég sló til og tók það jafnframt fram að ég yrði einungis með bátinn frarn á haustið enda stóð til að halda áfram laganámi eft- ir þetta hlé sem ég hafði gert á því þá um veturinn. Ég fór með bátinn um vorið í slipp í Reykjavík. Þurfti ég jafnframt að ganga frá ýmsum málurn í Háskólanum vegna frátafa minna frá náminu. Fljótlega frétt- ist í Háskólanum að til stæði að ég færi með bátinn til síldveiða og föluðust margir nemendur eftir plássi á bátnum. Flestir voru þeir óvanir til sjós en dugn- aðarstrákar og vanir að vinna. Á reknet- mum voru gjarnan sex eða sjö menn í skipshöfn; skipstjóri, stýrimaður, vél- stjóri, matsveinn og tveir eða þrír háset- ar. Tók ég þarna þá ákvörðun að ráða nánast alfarið háskólanema á skipið. Þeg- ar upp var staðið voru eftirgreindir lög- skráðir skipverjar á bátinn auk mín; stýri- maður var Pálmi Stefánsson verkfræði- nemi, en hann hafði verið með mér í Stýrimannaskólanum og auk þess vanur sjómaður, vélstjóri var Gunnar Ingi- mundarson verkfræðinemi á þriðja ári, hann hafði lítillega verið til sjós en reynd- ist vel í sinni stöðu. Matsveinn var Björn Jónsson, þá skólastjóri í Vík í Mýrdal, en hann var á miðjum aldri og hafði verið lít- illega til sjós, en seinna kont í ljós að hann hafði lítið sem ekkert fengist við matseld. Hásetar voru Logi Guðbrands- son, laganemi á fjórða ári, með öllu óvan- ur til sjós en þekktur af dugnaði og harð- fylgi, Bjarni Arngrímsson, miðaldra sjó- maður ættaður frá ísafirði, sem ég þekkti lítið til jYÍi og Aðalsteinn Guðbrandsson mágur minn, þá verslunarmaður í Ólafs- vík, en áður vanur sjómaður. Játning kokksins Mér er enn minnisstætt er við lögðum frá Reykjavík um hádegisbil áleiðis til ' f Halldór Jónsson útgerðarmaður, sem Jónatan kallar velgerðarmann sinn, var STÓRHUGA OG LÉT SMÍÐA FYRIR SIG NÝJA BÁT, EINN ÞEIRRA VAR JÓN JÓNSSON. 66 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.